Vísir - 21.01.1975, Síða 8
Aðeins Svíinn veitir heims-
meistaranum keppni í svigi
— Báðir hafa hlotið sjötíu stig í svigi í keppninni um heimsbikarinn
heimsbikarsins/ KitzbUhel — Franz Klammer
Handhafi
Piero Gros/ ítalíu sigraði í
Hahnenkamm svigkeppninni
i Kitzbuhel í Austurríki á
sunnudag og bætti því enn 25
stigum við stigasafn sitt í
keppninni um heimsbikarinn.
En hættulegustu keppinautar
hans gerðu það einnig gott,
þegar síðari hluti keppninnar
um heimsbikarinn hófst í
sigraði í brunkeppninni og
Gustavo Thoeni varð þar ann-
ar — og sigraði samanlagt, þó
hann næði ekki nema 13. sæti í
svigkeppninni. Klammer —
með rásnúmer 64 í sviginu —
//keyrði" brautina aðeins af
öryggi og náði 29. sæti — en
3ja sæti samanlagt, sem einn-
ig gefur stig í keppninni. Jók
hann við það forskot sitt á
Gros.
Eftir keppnina i Kitzbiihel var
stigatala efstu keppendanna þannig:
— eftir 14 greinar.
1. FranzKlammer, Aust., 159
2. Piero Gros, ttaliu, 145
3. Gustavo Thoeni, ít. 135
4. Ingemar Stenmark, Sviþj. 90
5. W. Grissmann, Austurriki, 81
6. P. deChiesa, Italiu, 67
7. H. Plank, Italiu, 54
8. Erik Haaker, Noregi, 51
9. F.F. Ochoa, Spáni, 40
10. M. Veith, V-Þýzkalandi, 35
11. H. Hinterseer, Austurriki, 33
12. J. Walcher, Austurriki, 30
13. F. Radici, ttaliu, 30
14. W. Tresch, Sviss, 27
15. B. Russi, Sviss, 23
I svigkeppninni á sunnudag náði
Gros beztum tima i fyrri umferðinni,
57.79 sek. og næstur honum var Neu-
reuther, en hann féll i síðari umferð-
inni. Geoff Bruce frá New York var
með þriðja bezta timann — rétt á
undan Ingimar Stenmark. I siðari
umferðinni náði Sviinn ungi hins
vegar beztum tima — var sex
hundruðustu úr sekúndu betri en
Gros, en við sigri hans tókst honum
ekki að hrófla. Hins vegar var annað
sætið hans. beir Ingimar og Gros eru
nú stigahæstir i sviginu i heims-
bikarnum — báðir með sjötiu stig. 1
þriðja sæti er de Chiesa með 58 stig
og Thoeni er fjórði með 31 stig.
Olympiumeistarinn spánski Ochoa
varð áttundi i svigkeppninni — en
annar á eftir Thoeni samanlagt. Eft-
ir fyrri umferðina, þar sem miklar
ismyndanir voru i brautinni, byrjaði
að rigna og brautin varð meyr. Háði
það þeim mjög, sem voru aftarlega
með rásnúmer.
Úrslit i sviginu urðu þessi:
1. Piero Gros, Italiu, 111.35
2. Ingemar Stenmark, Sv. 112.21
3. P. de Chiesa, ítaliu, 112.40
4. H. Hinterseer, Aust. 113.46
5. G. Bruce, USA, 113.66
6. J. Bachleda, Pólland, 114.11
7. H. Kniewasser, Aust. 114.13
8. F.F. Ochoa, Spáni, 114.47
9. R. Roche, Frakkland, 114.63
10. W. Junginger, V-Þýzk. 114.71
Thoeni varð 13. á 115.22. —hsim.
Meiddur — en sigraði samt
Þetta var óvænt — vegna meiðsla
og mistaka bjóst ég alls ekki við
sigri. Ég var slakur I lokin, sagði
hinn tvitugi Austurrikismaður,
Franz Klammer, eftir að hafa komið
i mark einum hundraðasta úr sek-
úndu á undan italanum fræga, Gust-
avo Thoeni, I brunkeppninni I Kitz-
buhel á laugardag og þar með jafnað
met Jean Claude Killy, sem 1967
sigraði á fimm mótum I röð, i bruni.
Klammer var mjög bólginn á
hægri fæti eftir slæmt fall á æfingu
daginn áður, en hann neitaði að taka
inn verkjatöflur áður en keppnin
hófst. Meðalhraði hans i brautinni
var 102.5 km og þrátt fyrir meiðslin
bætti hann brautarmet svissneska
olympiumeistarans Roland Collom-
bin um sjö hundruðustu úr sekúndu.
Collombin var meðal 35 þúsund á-
horfenda. Klammer var i stórhættu I
Hausbergbrekkunni — sjá myndina
að ofan, sem tekin var þar af honum
á laugardag — erfiðasta hluta braut,-
arinnar, sem er 3510 metrar að
lengd, og urðu þar á mistök. En hon-
um tókst að rétta sig af i brekkunni
og hinum erfiðu beygjum hennar.
Hann hafði rásnúmer eitt i keppn-
inni — en Thoeni, sem varð annar,
var með rásnúmer 22.
,,Ég bjóst alls ekki við þvi, að
timamunur væri svo litill.Ég fann þó
að rennslið var gott og að vel gekk i
beygjunum”, sagði Thoeni eftir
keppnina. Hann bætti einnig braut-
armetið — og árangur þeirra kom á
óvart. Brautin var ekki talin góð
vegna skyndibreytingar á veðurfari
nóttina fyrir keppnina. Frostið jókst
þá mjög. 1 þriðja sæti varð Werner
Grissmann — rétt á eftir köppunum
frægu — en hann er með 81 fyrir
brunið. Klammer hefur 125 stig — og
ítalinn Plank er þriðji með 54 stig.
Úrslitin urðu þessi:
1. F. Klammer, Austurr., 2:03.22
2. G. Thoeni, ttaliu, 2:03.23
3. W. Grissmann, Aust. 2:03.30
4. R. Berthod, Sviss, 2:03.80
R. W. Vesti, Sviss, 2:04.13
6. H. Plank, ítaliu, 2:04.14
t dag verður keppt i stórsvigi i
Fulpmes, tyrólskum smábæ i
Austurriki, og kemur sú keppni i stað
12. mótsins, sem vera átti i Kran-
jaska Gora i Júgóslaviu 20. desem-
ber, en var frestað vegna snjóleysis
þar. Það er fjórða stórsvigskeppnin
— og Piero Gros hefur sigrað i þeim
þremur fyrstu. Reikna má með að
hann nái forustu i stigakeppninni eft-
ir keppnina i dag, þar sem ólíklegt
er, að Franz Klammer nái þar stig-
um — einkum þar sem þetta mót
telst til fyrri hluta keppninnar, og
þá telja sjö beztu afrek hvers og eins.
Klammer hefur þegar sigrað i fimm
brunmótum — og á að auki fjórða og
fimmta sæti úr öðrum mótum. Gros,
með fjóra sigra og eitt annað sæti,
nýtur allra þeirra stiga, sem hann
hlýtur I dag.
—hsim.
Þegar keppní hefst
þá vil ég ná sígrí!
Þetta var auðveit — og snjórinn
svo failegur. Engar áhyggjur, þar
sem ég hef þegar náð hámarksstiga-
fjöldanum úr fyrri hluta heims-
bikarsins. En samt sem áður vil ég
sigra, þegar ég stend i rásmarkinu.
Gera eins vel og ég get — og gleðjast,
sagði snillingurinn Anna-Maria Pröll
Moser eftir að hafa sigrað með yfir-
burðum i stórsviginu í Jahorina I
Júgóslaviu á sunnudag.
Allir undrast yfirburði hennar — er
slikt hægt endalaust i keppni þeirra
beztu. Hún er með 57 stigum meir, en
sú, sem næst kemur henni i stiga-
képpninni — og hefur þó hlotið 72 stig
aö auki, sem ekki eru reiknuð með
hjá henni. Engin stúlka virðist geta
ógnað sigri hennar fimmta árið I röð
I keppninni um heimsbikarinn.
Stigatalan eftir keppnina I Júgó-
slaviu var þannig: 1. Anna Maria 175
stig 2. Rosi Mittermaier 118 stig 3.
Hanni Wenzel 97 stig 4. Fabienne
Serrat 86 stig 5. Cindy Nelson 85 stig
6. Zechmeister 82 stig 7. Nadig 77 stig
8.-9. Drexel og Zurbriggen 76 stig og
10. Morerod 47 stig.
Úrslitin á sunnudag.
1. Anna Maria, Austurriki, 1:14.79
2. Morerod, Sviss, 1:15.07
3. Mittermaier, V-Þýzkl. 1:15.13
4. M.T. Nadig, Sviss, 1:15.33
5. B. Zurbriggen, Sviss, 1:15.60
6.1. Epple, V-Þýzkalandi, 1:15.62
7. C. Nelson, USA, 1:15.82
8.1. Gfölner, Austurriki, 1:15.85
9. F. Serrat, Frakkland, 1:15.88
10. N. Spiess, Austurriki, 1:15.89
—hsim.
Bernadette Zurbricken sigraði i brunkeppninni i Schruns 15. janúar
Nýja skiðalyftan I Skálafelli var formlega tekin f notkun á sunnudaginn, og mörg hundruð manns fóru I lyftuna þennan fyrsta dag.
Ljósmyndir Bj. Bj.
Skókrfell - þar sem útverðir
KR hafa byggt vetrorporadís
A sunnudaginn tóku KR-ingar i
notkun fimmtu skiðalyftu sina I
Skálafelli. Buðu þeir nokkrum
gestum að vera viðstaddir þá at-
höfn og jafnframt skíðaáhuga-
fólki ókeypis aðgang að öllum
lyftunum.
Það boð var vel þegið, enda
veðrið ákjósanlegt i alla staði.
Komu mörg hundruð manns i
Skálafellið þennan dag, og voru
langar biðraðir i öllum lyftunum,
sem voru i gangi frá þvi snemma
um morguninn og langt fram á
kvöld, en þá var hópur fólks að
renna sér i upplýstri brekkunni.
Nýja lyftan var vigð með þvi,
að formaður skiðadeildar KR,
Einar Þorkelsson, fór fyrstur i
hana og þar á eftir nafni hans Sæ-
mundsson, formaður ICR. Siðan
kom hver af öðrum, og var stanz-
laus röð upp með lyftunni — og
niður aftur á skiðunum — það
sem eftir var dagsins.
Með tilkomu nýju lyftunnar er
Skálafell orðið hrein paradis fyrir
allt skiðafólk. Nú getur fólk valið
um erfiðar eða léttar brekkur —
allt eftir þvi hvað það kann og
getur á skiðum. Er nýja lyftan
t.d. þannig staðsett, að hún hent-
Reykjavíkur-
mót í frjálsum
Reykjavikurmótið i frjálsum
iþróttum innanhúss fer fram
dagana 25.-26. janúar n.k.
Fyrri daginn verður keppt i
Laugardalshöllinni og hefst
keppnin kl. 12.30. Keppt verður i
eftirtöldum greinum: Stangar-
stökki, 1500 metra hlaupi og kúlu-
varpi karla og i kúluvarpi og 800
metra hlaupi kvenna.
A sunnudag verður keppt i
Baldurshaga og hefst keppnin þar
kl. 14.00. Þar verður keppt i þess-
um greinum: Langstökki, þri-
stökki, hástökki, 50 metra grinda-
hlaupi og 50 metra hlaupi karla,
og i sömu greinum kvenna nema
þristökki.
Þátttökutilkynningar berist til
Stefáns Jóhannessonar fyrir
miðvikudaginn 22. janúar.
ar sérlega vel fyrir þá, sem eru
stutt á veg komnir i göldrum
skiðaiþróttarinnar.
Einar Þorkelsson sagði okkur,
að nýja lyftan gæti flutt um 400
manns á klukkustund, en þegar
allar lyfturnar væru i gangi, væri
hægt að flytja yfir 2000 manns. Á
Einar Þorkelsson, formaöur
skiðadeildar KR, flytur
setningarræðuna, þegar fimmta
skíðalyftan i Skálafelli var opnuð.
degi eins og þessum væri það
samt ekki nóg, og þó gengi allt á
fullu.
t Skálafelli eru feiki mikil
mannvirki, og er ótrúlegt, þegar
maður horfir á þau, að nær allt
hafi verið byggt i sjálfboðavinnu
af félagsmönnum. En þannig er
það nú samt, enda eru KR-ingar
ekki neinum öðrum likir, þegar
að sameiginlegu átaki kemur.
Einar sagði okkur að nýja lyft-
an hefði — eins og hinar — verið
reist i sjálfboðavinnu og þar
margir lagt hönd á plóginn, og
ekki alltaf i bliðskaparveðri. Þá
hefðu félagar fjármagnað kaupin
að mestu leyti — hver þeirra hefði
ábyrgzt 20 þúsund króna greiðslu
— og siðan unnið við uppsetning-
una. Þannig hefðu þeir getað klof-
Handbolti
í kvöld
Tveir leikir verða leiknir I 1.
deild karia i tslandsmótinu i
handknattieik i Laugardals-
höllinni i kvöld, og einn leikur fer
fram I 1. deild kvenna á sama
stað.
Kvennaieikurinn verður á milli
Fram og Armanns, sem eru I 3ja
sæti í deildinni, en karlaleikirnir
á milli ÍR og FH og Vikings og Ar-
manns. Fyrsti leikurinn hefst kl.
19.15, en karlaleikurinn kl. 20.15.
-klp-
ið þetta, og allir verið ánægðir,
enda metnaður þeirra að hafa allt
sem bezt i Skálafelli — ekki að-
eins fyrir þá heldur og alla skiða-
unnendur. óhugsandi er að
meta alla þá vinnu, sem unnin
hefur verið I Skálafelli. Þeir einu,
sem gera sér grein fyrir þvi, eru
þeir mörgu, sem hafa unnið verk-
in og fylgzt með frá upphafi.
Ef öll mannvirki KR-inganna
yrðu boðin til sölu, yrðu þau
aldrei seld á minna en 50 milljónir
— og er það lágt reiknað. En að-
staðan verður aldrei metin til
fjár, það viðurkenna jafnvel þeir,
sem horfa öfundaraugum á
Skálafellið og stórveldið, sem þar
býr bezta skiðabúi sunnan heiða.
—klp—
Miller slœr
öll golfmet!
og er nú sagdur bezti golflelkari heims
Johnny Miller, sem i fyrra sló
met Jack Nicklaus i peningaverð-
launum I atvinnumannakeppn-
inni i golfi, byrjaði keppnistima-
bilið i ár með þvi að ná sér i
60.000 dollara fyrir fyrsta sætið i
Phoenix Open golfkeppninni I
Arizona, sem lauk i siðustu viku.
Var hann 14 höggum á undan
næsta manni —- Jerry Heard — og
16 höggum á undan Tommy
Aaron, sem varð þriðji á 276
höggum. Miller fór á samtals 260
höggum 72 holurnar, sem er 24
undir pari og annar bezti árang-
ur i 72 holu golfkeppni i heimin-
um til þessa. Bezti árangurinn i 72
holu keppni náðist árið 1955, er
Milce Souchock lék á 257 höggum
i stórmóti atvinnumanna.
Miller lék frábærlega alla fjóra
hringina og var með 67:61:68:64,
sem þykir stórkostlegt á hinum
erfiða Phoenix Country Club golf-
velli, sem er par 71. Setti Miller
nýtt vallarmet á honum er hann
lék á 61höggi — 10 undir pari —
annan dag mótsins. .
í fyrra sló Miller met Jack
Nicklaus i peningaverðlaunum
með þvi að ná sér i rúmlega 350
þúsund dollara — 23 þúsund
dollurum meir en Nicklaus náði
sér i 1972. Þeir, sem hafa séð
Johnny Miller leika að undan-
fömu, segja að hann sé bezti golf-
maður I heimi — jafnvel betri en
Jack Nicklaus, er hann var upp á
sitt bezta fyrir tveim til þrem ár-
um.
1 gær lauk Dean Martin golf-
mótinu og þar hafði Johnny Mill-
er sömu yfirburði. Hann fór á 263
höggum, sem er nýtt met i þess-
ari keppni — varð niu höggum á
undan næsta manni. t lokaum-
ferðinni, 18 holum, iék hann á 61
höggi og er það i 3ja skipti, sem
slikt á sér stað á átta dögum —
Tveim
um of lítið
Okkur vantaði 2 mörk til að
fara með alveg nákvæmlega
réttar tölur i stuttri frásögn okkar
af leik Þróttar og Breiðabliks I 2.
deild karla i blaðinui gær.
Við sögum, að Þróttur hefði
sigrað i leiknum 28:18, enrétt var
það 28:20. Við biöjum hina ungu
leikmenn Breiðabliks afsökunar á
þessum mistökum, sem eru
okkar, en ekki hins þjáða prent-
villupúka. -klp-
Miller tvlvegis og Alan Henning á
móti I Suður-Afriku. Næsta
keppni atvinnumannanna i
Bandarikjunum verður Bing
Crosby-keppnin og ef MiIIer sigr-
ar þar verður hann fyrsti maður-
inn til þess, að sigra á þremur
fyrstu mótum atvinnumanna tvö
ár I röð.
George Best fór frá New York I
gærkvöldi til Manchester án þess
að ná samningum við Cosmos,
knattspyrnuliðið I New York. Eft-
ir 3ja daga samningaviðræður
gáfu Best og formaður Cosmos,
Clive Toye, út þá yfirlýsingu, að á
sumum sviðum hefði samkomu-
lag náðst — en á öðrum ekkert
gengið. Best vill fá 100 þúsund
dollara á leiktimabili. Formaður-
inn mun fljúga til Manchester sið-
ar i þessari viku og ræða nánar
við Best. Myndin að ofan var tek-
in af Best I New York um helgina.
DLTINN
ER KOMINN
Lesið um Stoke City — Enska einvaldinn Don Revie.
Sorgarsögu Manchester United.
Ásgeir Elíasson — Laun atvinnumanns o.fl.
Litmynd af Stoke City.
Fœst á nœsta blaðsölustað
Mundi lætur handtaka Helenu
og kaffisalann...
Hinn viðsjáli „bróðir” þinn er j
------7 næstur... 1 ' —
Þú nærð honum aldrei,
hann er of snjall!
Páll Mörður eða öllu heldur Cesar
Vargur þykist vinna að ljósmyndun
i búningsherbergjunum--------J
8-13