Vísir - 30.01.1975, Side 3
Vísir. Fimmtudagur 30. janúar 1975.
3
HÚSVÍKINGAR BÆTA
VIÐ SKÍÐALYFTU
Húsvikingar hafa nú tekið nýja
skiðalyftu i notkun, og eru þær þá
orðnar tvær á staðnum. Að sögn
Hauks Harðarsonar bæjarstjóra
á Húsavík, hefur verið þar önd-
vegis veður undanfarna daga og
brekkurnar vel nýttar af skiða-
fólki.
Önnur lyftan hentár vel byrj-
endum, en hin er fyrir þá, sem
lengra eru komnir i iþróttinni.
Ekki þarf langt að fara fyrir þá,
sem búa á hótelinu, þvi það eru
innan við tvö hundruð metrar að
annarri lyftunni, en rösklega
helmingi lengra að hinni.
Mikill snjór er fyrir norðan,
eins og kunnugt er af fréttum, og
skiðafæri mjög gott. — SH
STOLIÐ ÚR BÍLUM
— jafnvel í hléum bíóanna
„Það er jafnvel stolið úr bilum
þó að hlé sé og flestir kvikmynda-
húsgestir séu úti”, sagði Arni
Ilinriksson framkvæmdastjóri
Laugarásbiós, þegar við ræddum
við hann, cn talsvert hefur borið á
þjófnaði úr bilum við bióið.
„Þetta hefur þó minnkað mikið
eftir að nýja bilastæðið kom. Það
er malbikað og upplýst og kostaði
heldur ekki minna en 8—9
milljónir”, bætti Árni við.
Ekki hafa sökudólgar þó enn
sagt skilið við þjófnaðinn að fullu,
og segír lögreglan að þarna sé
ákveðinn hópur að verki.
Eftirlit er haft með þessu úr
kvikmyndahúsinu, en meiningin
er að hafa mann á stæðinu. Hins
vegar hefur verið kalt i veðri að
undanförnu og þetta þvi nokkuð
erfitt i framkvæmd.
Árni sagði, að ætlunin væri að
reyna að sameina vörzluna og
snjómokstur úr tröppum og ann-
að slikt, en frá þessu hefur ekki
endanlega verið gengið.
—EA
Eilert B. Schram alþingis-
maður gagnrýndi fiokksbrób-
ur sinn, Sverri Herniannsson
alþingsmann, fyrir að taka
stöðu framkvæmdastjóra
Framkvæmdastofnunar.
Sjálfstæðismenn voru á sinum
tima andvigir þessu „mikla
bákni” og segjast enn vilja
ýmsu breyta um stofnunina.
Sverrir verður, ásamt Tómasi
Árnasyni, Framsókn, fram-
kvæmdastjóri fyrst um sinn.
Hnútur gengu milli Ellerts og
Sverris, og skrifaði Ellert, að
Sverrir gæti vafalaust aukið
tekjur sinar með einhverjum
öðrum hætti en þessum, en
Sverrír sagði, að þetta hefði
Ellert skrifað „í flýti”. A
myndinni, sem tekin var I
herbergi þingflokks sjálf-
stæðismanna, brostu þeir blitt
hvor til annars og varð ekki
annað séð en þcir væru sáttir
að kalla.
—HH
-Sí^Yi&getunv vist þakkáð veður-.
guðúm bliðuná i dag og að ekki
skuli vera rok, þvi þá mætti bú-
ast við, að eitthvað gengi á.
Stórstreymi er óvcnjumikið
núna, og veldur þvi lágur loft-
þrýstingur, eftir því sem okkur
var tjáð hjá Sjómælingum
tslands.
Miðað við núll flöt var hæð
flóðsins 4.56 metrar í morgun,
en samkvæmt útgefinni töflu
um flóð var gert ráð fyrir, að
flóöiðyrði 4,40 Það fer þvi 16 cm
yfir það, sem ráðgert var.
Brági tók þessa mynd kl. 7 i
morgun við höfnina, þar sem sjá
má greinilega, hversu hátt flóð-
ið er. Yfirborðið nemur næstum
við bryggjubrún.
—EA
Tékkar taka vel í
að kaupa sjólaxinn
— verðið ytra hefur hœkkað verulega
,,Við höfum þreifað
fyrir okkur á ýmsum
stöðum varðandi sölu á
sjólaxinum,” sagði örn
Erlendsson hjá Sölu-
stofnun lagmetisiðnað-
arins, sem hefur á
hendi sölu til útlanda á
sjólaxinum, sem nú er
framleiddur i
Neskaupstað.
„Hér er um að ræða könnun á
sölumöguleikum, þvi sjólax hef-
ur ekki verið framleiddur hér á
landi i tvö ár. En við höfum
fengið allgóðar undirtektir, að
minnsta kosti á einum stað, það
er i Tékkóslóvakiu.
Hins vegar er ekki hægt að
ganga frá sölunni, fyrr en
framleiðslukostnaðurinn liggur
fyrir, og eins hve mikið verður
framleitt, til dæmis i þessum
ársfjórðungi. En Tékkar eru
reiðubúnir að ræða þessi mál
við okkur á kaupstefnunni, sem
haldin verður i Salima, skammt
frá Brno, i febrúar.
Verð á sjólaxi hefur hækkað
talsvert erlendis upp á siðkast-
ið, en meðan kostnaðurinn hér
liggur ekki fyrir, er ekki hægt að
ákveða neitt endanlega”.
Guðmundur Þóroddsson,
verksmiðjustjóri i Neskaupstað,
sagði Visi, að fljótgert væri að
fullnægja innlendri eftirspurn
eftir sjólaxi, en afgangurinn
yrði til útflutnings. Hann taldi
einkum tvö lönd koma til
greina, Tékkóslóvakiu og Rúss-
land. — SH
Útsvarið nœr
alls staðar
11 prósent
Langfiest ef ekki öll sveitarfé-
lög landsins munu færa sér I nyt
heimild tii að hækka útsvörin I
ár úr 10% af brúttótekjum
skattgreiðenda upp i 11%.
Vfsir fékk þessar upplýsingar
hjá Sambandi sveitarfélaga.
„Hiklaust,” var svar bæjar-
stjóra á Akranesi, en það bæjar-
félag hefur oft staðið flestum
betur fjárhagslega.
Að vlsu hafa flest sveitarfélög
ekki gengið frá fjárhagsáætlun
fyrir árið 1975, og verður það
fyrst við endanlegan frágang
þeirra eða sfðar, sem 1 ljós kem-
ur, hvort heimildin verði notuð.
Horfurnar eru samt eins og að
framan greinir. Flest sveitarfé-
lögin eru frekar illa stæð. t lög-
um segir, að sækja megi til fjár-
málaráðneytisins um að bæta
prósenti við útsvarið, ef endar
nái ekki saman ella og sé það
stutt fullnægjandi rökum.
Reykjavikurborg hefur lýst yf-
ir, að hún fari með útsvarið I
11%. Ráðuneytið hefur sagt, að
það muni nú að jafnaði ekki
standa gegn hækkun útsvara i
11% vegna bágborinnar afkomu
sveitarfélaganna. —HH
Sáttir að kalla