Tíminn - 26.06.1966, Síða 12
12
TÍMINN
SUNNUDAGUR 26. júní 1966
Ávallt fyrirliggjandi
miki'ð af varahlutum
í flestar gerðir bíla.
Ford
Consul
Land-Rover
Moskwitch
Opel
Skoda
Volkswagen
Taunus o.fl.
Sendum í póstkröfu.
U*.
BILA-
varahlutir
Bremsuborðar
Kúplingsdiskar
Demparar
Stýrisendar
Slithlutir
Kveikjuhlutir o.fl.
SLITPARTAR
Flestar gerðir.
Kristinn Guönason h.f.
Klapparstíg 25—27 — Laugavegi 168,
Símar 12314 og 21965.
*
Rent
í TIMANUM
ÞÁTTUR KIRKJUNNAR
Prestastefna - synodus
Merkur fundur einnar
minnstu en merkustu stéttar
landsins hefur verið haldinn
síðustu daga
Það er synodus íslenzkra
presta.En synodus er grískt orð
sem þýðir krossgötur eða sam-
liggjandi vegir.
Fundur slíkur sem þessi er
því enginn venjulegur félags-
fundur, heldur aldaforn að
uppruna, eðli og hefð, eins og
allt, sem snertir kirkjuna í
snertingu við aldaraðir — ei-
MSfð.
Og oft hafa synodur ís-
lenzkra presta verið hin merk-
ustu þing, þótt langt sé síðan
þær gátu haft úrslitavald og
úrskurðarvald yfir mönnum og
málefnum.
Gott er þeim að hittast og
blanda geði og skoðunum, sem
vinna einangraðir við störf sín
árið eða árin um kring. Þarna
getur takmarkið skýrzt, átök-
in eflzt til samtaka um hið
eina nauðsynlega, guðsríkis-
hugsjón mannkyns, hið góða.
fagra og fullkomna, réttlæti —
frið og fögnuð í sálum og sam-
félagi manna.
En þetta er líka nokkurs
konar aðalfundur um starf-
semi kirkjunnar, og þá kemur
ýmislegt í ijós, sem annars
væri að mestu eða öllu dulið.
Þar sézt meðal annars að starfs
hættir presta og safnaða eru
nú óðum að breytast frá hinu
formfasta og hefðbundna
nessuformi til hins fjölbreytta
félagsíega lífs.
Kirkjan snýr sér nú og verð-
ur að snúa sér meira og meira
að fólkinu o<g söfnuðum sem
einstaklingum, í stað þess að
loka starfsemi sína inn í tóm-
um kirkjum, þótt við hina
snjöllustu messu og predikun
væri.
Þetta gerir mikla breytingu
á starfi og allri aðstöðu prests-
ins. Hann verður nú helzt að
vinna og vera meira og sem
mest úti meðal fólksins í
barnafræðslu eða barnasam-
komum í æskulýðsfélögum,
fundum ungs fólks og ferða-
lögum þess. Ein skemmtiferð,
sem ber af í siðfágun, kurteisi
og drengilegri gleði hreinleika
og háttvísi getur verið og er
á við margar predikanir, ekki
sízt ef fáir hlusta eða engir
koma til messu nema með-
hjálparinn og prestskonan.
Áður væru börn naumast tal
in með sem messufólk eða
kirikjugestir, nú þykja barna-
samkomur kirkjunnar hinar
mikilvægustu uppeldisaðferðir,
og síður en svo minna virði
fyrir menningu og farsæla fram
tíð þjóðarinnar en formbundn
ar messur fullorðna fólksins.
Og víðast hvar eru líka barna-
samkomur presta, sem á ann-
að borð sinna þeim hinar fjöl-
mennustu, og væri sá fólks-
fjöldi, sem þær sækir talinn
til höfðatölu í starfi presta yrði
kirkjusókn á fslandi allt í einu
að teljast prýðileg.
Og ég spyr er koma barns-
ins til kirkju sinnar í nokkru
ómerkari en kirkjuganga full-
orðna fólksins? Sagði ekki
meistarinn mikli einmitt með
sérstakri álherzlu:
„Leyfið börnunum að koma
til mín.“
En það eru fleiri málefni
en starfsaðferðir kirkjunnar og
breytingar á þeim sviðum, sem
setja nú svip sinn á skýrslur
og málflutning synodusar.
Það er ekki síður starfsað-
staða prestanna eða hinn
kirkjulegi starfsvettvangur,
sem þar ber á góma. Og er
þar satt að segja oft undar-
legt um að litast í þeim miklu
byltingum sem orðið hafa í
þjóðlífi fslands hina síðustu
áratugi.
Það er í raun og veru miklu
furðulegra en við gerum okk-
ur flest í hugarlund, af því að
þetta gerist fyrir augum okk-
ar og mitt á meðal okkar.
Hér eru til prestar, sem eru
húsnæðislausir eða á hrakn-
ingi milli leiguíbúða ár eftir
ár í sjálfri höfuðborginni, og
ekiki nóg með það, heldur er
söfnuður þeirra hvað húsnæði
snertir einnig meira eða minna
„á götunni" líka hefst við í
skólum eða misjöfnum sam-
komusölum oftast fremur illa
séður eða að minnsta kosti í
hálfgerðri óþökk. Þannig hefur
meira að segja verið um suma
fjölmennustu söfnuði landsins
árum saman.
Þessu þarf að breyta. Það
ætti aldrei að stofna til safn-
aða og prestslegs starfs áður
en þeim er tryggð sæmileg
starfsaðstaða bæði íbúð og hús-
næði til samkomuhalds og
guðsþjónustu. Erfiði prests sér
staklega í fjölmenni og starf
hans ætti að vera ærið nóg,
þótt hann þyrfti ekki að verja
miklu af tíma og kröftum til
fjáröflunar og meðhöndlunar
á samtökum og svokölluðum
sníkjum til kirkjubygginga og
vera þó sjálfur húsnæðislaus.
En nú eru það kallaðar sníkj-
ur, ef fólk er beðið um fimm
krónur til byggingar kirkju,
jafnvel þótt það fái þær borg-
aðar í skemmtun eða veizlu-
höldum, en ef það sama fólk
er rúið um 5000 krónur til
skólabygginga þá tekur það
naumast eftir því og ræðir það
ekki öðruvísi en sjálfsagt.
Svona er blekking tízkunnar
á háu stigi.
Á hinn bóginn má minna
á, að sumir prestar á íslandi
hafa verið og eru næstum safn
aðarlausir, þótt þeir hafi sæmi-
lega íbúð, sem raunar er nú
ekki nógu víða og þótt nóg
sé af kirkjum út um lands-
byggðina.
Þetta er líka fáránlegt. Og
einmitt núverandi prestastefna
tók þetta mál til meðferðar.
Og er það tákiirænt fyrir
mennt íslenzkrar prestastéttar,
sem oft er þó atast við og
hæðzt að, að þeir leggja sjálfir
til að fækka nú prestaköllum,
það er að segja embættum um
nær sjötta hluta eða vel það,
á sama tíma sem skrifstofu-
báknin og önnur svokölluð
þjónusta hrúgast upp í „vir-
var“ og vitleysu og fólk er
sent eftir einu bréfi eða skjali
úr einni skrifstofu í aðra og
embættum fjölgar þar alveg
hroðalega.
Framhald á bls. 15
Augiýsíð í íimanuitk
RÍKISINS
M.s. Baldur
! fer til Rifshafnar, Ólafsvíkur,
J Grundarfjarðar, Stykkishólms,
j Skarösstöðvar, Króksfjarðar-
ness, Hjallaness og Flateyjar
á miðvikudag. Vörumóttaka á
þriðjudag.
TIL SÖLU
er steypuhrærivél með benzín-
hreyfli. Auðveld í flutningi.
Er á lofthjólum.
Upplýsingar i síma 22 6 92 eft-
ir kl. 20 daglega.
SKRIFSTOFUSTARF
Vanur bókhaldari óskast til starfa við útflutnings-
og innflutningsfyrirtæki. Góð vinnuskilyrði og gott
kaup. Upplýsingar um
ast sendar afgreiðslu
merkt „A-2265”.
menntun og fyrri störf osk-
blaðsins fyrir 6. júlí n.k.,
Hreingern-
ingar
Hremgerningar með
nýtlzku vélum.
Fljótleg og vönduð vinna.
Hreingerninaar sf..
Sími 15166, eftír kl. 7 e.h.
32630.