Vísir - 25.02.1975, Blaðsíða 1
65. árg. Þriöjudagur 25. febrúar 1975 — 47. tbl.
Samkomulag i Strandríkin fói 200 mílna
óformlegum r . ... ,.
viðrœðum ef nahags logsogu
1 óformlegum viöræðum til
undirbúnings hafréttarráð-
stefnunni hefur náðst sam-
komulag um 200 milna efna-
hagslögsögu fyrir strandriki,
sagði i frétt norsku fréttastof-
unnar NTB laust fyrir hádegi.
Þetta á að verða regla i
alþjóðarétti, segir NTB.
Norski hafréttarráðherrann
Jens Evensen, segir fréttastof-
an, hefur tjáð blaðinu Arbeider-
bladet þetta. Hann hefur verið i
forsæti á mörgum fundum milli
forystumanna sendinefnda
margra rikja, sem um máliö
fjalla, og voru fundirnir við
hann kenndir.
Evensen segir, að niðurstaða
fundanna, sem voru i New York,
sé hagstæð „bylting”. —HH
##
EDAIICI/A DVI TIKI^III^/
FKANSKA BTLTINUIN — heitur fundur hjá
/ _ Ferðafélagi íslands
BROTIN A BAK AFTUR í gœrkvöldi
Framkvæmdastjóri Ferðafé-
lags tslands „féll I frönsku bylt-
ingunni”. Hafði hann lýst þvi yfir,
að hann mundi segja af sér fram-
kvæmdastjórn félagsins, ef það
sýndi sig, að þorri félagsmanna
væri andvigur þeirri stefnu hans
að leggja aukna áherzlu á
þjónustu Ferðafélagsins við
franska feröamenn, sem hingað
hafa leitað og notið fyrirgreiöslu
hans.
Á aðalfundi Ferðafélags Is-.
lands, sem fór fram i Tjarnarbúð
i gærkvöldi fyrir troðfullu húsi,
voru kosnir fjórir nýir menn i
stjórn. Stillti meirihluti stjórnar
F.l. upp fjórum mönnum og
Einar B. Guðjohnsen og þrir fé-
lagar hans stilltu upp öðrum
fjórum. Var það skýrt tekið fram,
að hér væri ekki um listaframboð
að ræða. Kjósendum væri heimilt
aö veita atkvæði mönnum úr báð-
um uppstillingunum.
Það var þó vitað, að draga
mætti ályktanir af kosningunni,
hvað snerti deiluna um frans-
mennina. Úrslit kosningarinnar
voru lika skýr: Þeir fjórir, sem
meirihluti stjórnarinnar stillti
upp, fengu yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæöa. Samtals fengu
þeir 791 atkvæði, en menn Einars
og félaga hans fengu samtals 540
atkvæði.
„Þaö er i rauninni litið aö
segja. Hér meö segi ég af mér
framkvæmdastjórn Ferðafélags-
ins”, sagði Einar, þegar úrslit
kosninganna voru kunn.
Sigurður Jóhannsson, forseti
Það var fullt út úr dyrum á aðalfundi Ferðafélags Islands I Tjarnarbúð í gærkvöldi. Var samþykkt að
láta af þeim sið, að kaffiveitingar handa félagsmönnum væru gréiddar úr félagssjóði... Ljósm: Bragi.
llrslit kosninganna
Hér á eftir fara úrsiit kosning-
anna, sem fram fóru á aöalfundi
Ferðafélags Islands i gær-
kvöldi:
Tiliaga meirihluta stjórnar
F.I.:
Páll Jónsson bókavörður 205 at-
kvæði, Jón E. ísdai skipasmiður
197 atkvæöi, Haraldur Sigurös-
son bókavöröur 196 atkvæði og
Haukur Bjarnason rannsóknar-
lögreglumaður með 193 at-
kvæði.
Tillaga Einars Þ. Guðjohnsen,
Jóhannesar Koibeinssonar og
Jóns I. Bjarnasonar:
Ottar Kjartansson kerfis-
fræðingur 162 atkv., Tryggvi
Halldórsson múrari 150 atkv.,
Ólafur Sigurðsson arkitekt 121
atkv. og Þór Jóhannsson hús-
gagnabólstrari með 108 atkv.
Tillaga Leós Guðlaugssonar:
Böðvar Pétursson verzlunar-
maður með 87 atkvæði.
félagsins, varð örlitiö langorðari.
Sagði hann m ,a. að nú væri útrætt
um deilumálin og augljóst oröið,
hvert stefna skyldi.
Fundurinn i Tjarnarbúð er sá
langfjölmennasti i sögu Ferðafé-
lagsins, enda aldrei komið upp
eins „heitt” mál innan félagsins
sem „franska byltingin”. Hófst
fundurinn klukkan aö verða niu
og var þá hvert sæti setiö og föl-
margir stóöu. Þaö kom þó ekki
fram nein þreyta. Fundurinn stóð
til klukkan eitt i nótt.
Tóku margir til máls á fundin-
um og viku allir ræðumenn meira
eða minna aö þjónustu Feröafé-
lagsins við hina frönsku ferða-
mannahópa, Fóru þeir lika oft-
sinnis i ræðustólinn, forseti fé-
lagsins og framkvæmdastjórinn.
„Frönsku feröamennirnir geta á
þessu ári skilað félaginu allt að
2,5 milljónum i gróða, sem þýðir
það, að við getum tekizt á við
stærri verkefni i þágu Ferðafé-
lagsins”, sagði framkvæmda-
stjórinn, en forsetinn sagði: „Það
verður sifellt vart meiri og meiri
óánægju með það, að innlendir
ferðamenn komast ekki i sæluhús
félagsins fyrir erlendum ferða-
mönnum”.
—ÞJM
„Ekki í verkahring
Alþingis að setja
stafsetningarreglur"
— menntamólaráðherra afhent áskorun
um að koma z aftur í gagnið
„Satt bezt að segja veit ég
ekki, hvort ég á aö svara þessu
fyrr en ég hef kynnt mér lög um
þessi efni. Ég held þó, að rétt sé,
að málfræði- og málvisinda-
nefndir fjalli um stafsetningar-
reglur og siðan taki ráðuneyti
og ráðherra endanlega af-
stöðu. En mér finnst það ekki i
verkahring Alþingis að setja
stafsetningarreglur”.
Þetta sagði menntamálaráð-
herra Vilhjálmur Hjálmarsson,
þegar Visir ræddi viö hann
varðandi áskorun, sem honum
var afhent fyrir stuttu. Þar er
skorað á menntamálaráöherra
að taka aftur upp z-una, og eru
þar 100 menn, sem eiga i hlut.
Askorunin er birt I heild meö
undirskriftum á bls. 3.
„Arabarnir koma"
Sjá bls. 6
Hryðjuverk í
Kambódíu Sjá bls. 5
LÉTTFÆTTIR SKÓLA-
KRAKKAR FÁ
VÍSISBIKAR íþróttir í opnu
28 sveitarfélög hyggjast ráðast í gerð vatnsveitna:
26 VATNSVEITUR FYRIR 560 MILLJÓNIR
Framundan er gerð 26 vatns-
veitna hjá 28 sveitarfélögum, og
er þetta fjárfesting upp á 560
milljónir. króna. Þetta kom
fram I setningarræðu Páls Lín-
dal, borgarlögmanns, sem jafn-
framt er formaður Sambands
islenzkra sveitarfélaga, er hann
setti ráðstefnu um vatn i morg-
un.
Ráðstefnan er haldin i húsa-
kynnum hótel Esju, og sækja
hana 70-80 manns viðsvegar af
landinu. Páll Lindal sagði i
setningarræðu sinni, að það sé
almennt talin ein frumskylda
sveitarfélaga i þéttbýli að sjá
ibúunum fyrir nægu og heil-
næmu vatni, og vaxandi
þrýstingur á dreifbýlissveitar-
félög að koma á fót vatnsveit-
um.
„Lengi var það almenn trú, að
vatn hér á landi væri yfirleitt
fullkomlega hæft til neyzlu,”
sagði Páll. „Rannsóknir, sem
fram hafa farið um alllangt
árabil sýna, að vatn er hér mjög
misjafnt að gæðum. Sum sveit-
arfélög, eins og til dæmis
Reykjavik, eru svo lánsöm að
hafa frábært neyzluvatn, en
önnur búa við vatn, sem er alveg
á takmörkum að vera hæft til
neyzlu.”
Ráðstefna um vatn mun
standa fram á miðjan dag á
morgun, og eru mörg athyglis-
verð erindi á dagskránni.
—SH
Sjá einnig frétt á baksiöu.
Páll Lindal, formaöur Sam-
bands islenzkra sveitarfélaga,
setur Ráðstefnu um vatn kl. 9,30
i morgun. Næstur honum situr
Guttormur Sigbjarnarson, sem
var næstur á mælendaskrá. —
Ljósm. Visis Bragi.