Vísir - 12.03.1975, Qupperneq 8
Vlsir. Miövikudagur 12. mari 1975.
Barcelona í
undanúrsEitin
Spænska meistaraliðiö Barcelona varð
fyrst liða til að komast i undanúrslit Evrópu-
bikarsins i knattspyrnu. Sigraði Atvidaberg,
Sviþjóð, H-0 i Barcelona i gærkvöldi — og
vann þvi leikina við Sviana, samtals 5-0. Þeir
voru báðir húðir i Barcelona. Mörk liðsins i
gær skoruðu Gallego i fyrri hálfleik, en Juan
Asensi og Marinho skoruðu i þeim síðari.
Aðalmenn Barcelona voru Iiollendingarnir
Cruyff og Neeskens. Sá siðarnefndi átti
skalla i þverslá á 28. min. og bakvörðurinn
Gallego náöi knettinum og skoraöi. Asensi
skoraði af 40 metra færi á 59. min., en brazil-
iski landsliðsmaðurinn Marinho á 67. min.
Sviarnir voru af og til hættulegir i fyrri hálf-
leik og La Cruz, varnarmaður, bjargaöi á
marklinu frá Hasselberg.
—hslm.
Jafnt var eftir
venjulegan leiktíma,
framlengingu og
vítakeppni!
Hraðmót i sundknattleik hófst i Sundhöll-
inni á sunnudag og er mikil þátttaka. Þetta ér
i annaö sinn, sem sllkt hraðmót er háð — lið
er úr eftir tvo tapleiki. A sunnudag urðu
úrslit þessi. Armann A vann Ægi B 3-2, Ægir
A vann KR 6-4 eftir framlengingu i tvær min.
á mark. 4-4 stóð eftir venjulcgan ieiktima.
Armann A og KR geröu jafntefli 6-6, en Ar-
mann vann á hiutkesti. Jafnt var 3-3, siðan
framlengt og þá enn jafnt 3-3. Þá var vlta-
kastskeppni og enn var jafnt eftir hana 6-6.
Arinann B vann Ægi C (sundmenn Ægis) 2-0
og Ægir B vann Ægi C 4-1. Mótið heldur
áfram á sunnudag kl. tvö, en annað kvöld kl.
9.30 verður úrslitalcikurinn i Reykjavikur-
mótinu milli Ægis og KR i Sundhöllinni.
—hsim.
Olympíumeistarinn vann
María-Theresa Nadig, svissneski Olympiu-
meistarinn, sigraði i gær i bruni heimsbik-
arsins i Jackson Hole i Bandarlkjunum —og
hafði mikla yfirburði. 15 fyrstu stúlkurnar i
keppninni bættu brautarmetið, sem Isabella
Mir, Frakklandi, setti 1970 — og var 1:57.87
min. Úrslit urðu þessi:
1. Maria-Theresa Nadig, Sviss, 1:43.27
2. Bernadetta Zurbriggen, Sviss, 1:44.49
3. Anna-María Moser Pröll, Aust. 1:45.63
4. Maria Epple, V-Þýzkalandi, 1:45.81
5. Irmgard Lukasser, Austurríki, 1:46.26
Cindy Nelson, USA, varð áttunda, Hanny
Wenzel, Lichtenstein 14. og Eva Pröll, hin 16
ára systir önnu Marlu, i fimmtánda sæti.
Næst verður keppt i Sun Valley, Bandarlkj-
unum, 13.—15. þessa mánaðar.
Sigurmark á lokamínútu
írland sigraði B-liö Vestur-Þýzkalands i
landsleik i knattspyrnu i Dublin i gærkvöldi
meö marki Jimmy Conroy, Fulham, á sið-
ustu minútu leiksins. Conroy kom inn sem
varamaður fyrir Ray Treacy, þegar 25 min.
voru eftir. irska liðið sótti mun meir I leikn-
um og Don Givens, QPR, átti stangarskot.
Hartono vann Svend Pri
Rudy Hartono, sjö sinnum heimsmeistari I
badminton (AU-England meistaramótið),
náði hefndum á Pananum Svend Pri, sem
tvivegis hefur sigrað meistarann að undan-
förnu, á danska meistaramótinu i Kaup-
mannahöfn i gærkvöldi. t úrsiitum vann Har-
tono með 12-15, 15-0 og 15-7. Lene Koppen
sigraði i einliðaleik kvenna. Danska stúlkan
sigraði Joke van Beusekom, HoIIandi, i úr-
slitum 11-1 og 11-6. Þar var öllu lokið á 15
minútum. Pör frá Indóncsiu sigruðu i tvíliða-
og tvenndarkeppni.
—hsim.
Strákarnir I Val eru mjög ánægðir með hinn nýja þjálfara sinn, Skotann Joe Gilroy, og hann er ekki slöur ánægður með þá. Þessa mynd tók
Bjarnleifur ljósmyndari okkar af honum á fyrstu æfingunni hjá Val I slðustu viku, en þá fengu þeir fyrst að taka almennilega á undir hans
stjórn.
Er ekki kominn til að
##
gera neitt kraftaverk
— segir hinn nýi knattspyrnuþjálfari Vals, Skotinn Joe Gilroy, sem meðal
annars lék með Johnny Haynes og Alan Clarke hjá Fulham
,,Ég hef ekki verið hér nema I
rúma viku, svo það er ekki mikið,
sem ég get sagt. En það sem ég
hef séð og fundiö á þessum stutta
tima hefur mér llkaö vel,” sagði
hinn nýi knattspyrnuþjálfari Vals
— Joe Gilroy — er yiö spjölluðum
við hann eftir æfingu á Hllðar-
enda I gærkvöldi.
„Ég vissi ósköp lítið um Is-
lenzka knattspyrnu áöur en ég
kom hingað. Ég vissi jú, að hér
voru til góöir knattspyrnumenn —
ég hafði spilaö á móti einum
þeirra fyrir mörgum árum, er ég
lék með Clyde. Það var Þórólfur
Beck, sem þá lék með Rangers.
Hann var frábær knattspyrnu-
maður og geysilega vinsæll i
Skotlandi.
Vinur minn Pat Quinn, sem var
hjá FH I fyrra, gaf mér nokkra
góða punkta áöur en ég fór
hingaö, og hann hafði ekkert
nema gott aö segja um Islenzka
knattspyrnu og veruna hér. Þetta
var það eina, sem ég vissi, en ég á
eflaust eftir að læra mikið og
margt I sumar.
Það sem hefur komið mér mest
á óvart hjá Val, er áhuginn og
viljinn hjá þessum áhugamönn-
um. Þeir láta veöur og vind sig
engu skipta, hvað þá heldur
slæmar aöstæður eins og verið
hafa siðustu daga. Þeir mæta —
og mæta vel — og á æfingunum
keppast allir við að gera sitt
bezta. Þetta er andrúmsloft, sem
mér likar og hlakka til að vinna I
á komandi mánuðum.
Ég er ekki kominn hingað til að
gera neitt kraftaverk með Vals-
liðið — heldur til aö vinna og
vinna vel með áhugasömum
strákum. A minum lista kemur
fótboltinn i fyrsta sæti slöan
Valur, en ég eða minn
persónulegi árangur kemur ekki
á hann.
Það eru margir mjög efnilegir
piltar hjá Val, en þvi miður hef ég
ekki haft tækifæri til að sjá þá i
leik. A þessum fyrstu æfingum
hef ég sérstaklega tekið eftir
tveim mönnum — Hermanni
Gunnarssyni og ungum pilti —
Albert Guðmundssyni. Þeir elska
leikinn eins og ég geri það, og
hafa það i sér aö spila hann. Það
eru eflaust fleiri þannig hjá Val,
en það á eftir að koma i ljós á
næstu vikum, þegar við getum
farið að æfa og leika viö viöun-
andi aðstæður.
Aðstaðan hjá Val er góð og
verður sjálfsagt enn betri, þegar
veðrið batnar. En aðstaðan er
ekki fyrir öllu — hér nægir
smáblettur, nokkrir áhugasamir
og góðir leikmenn og einn bolti til
að hafa gaman af þvi að vinna að
þessu, og það hef ég haft þessa
viku.
Það eina, sem mér hefur leiözt
hérna, er veörið og að vera að-
gerðalaus allan daginn. En þetta
skánar sjálfsagt, þegar maður fer
að þekkja fleiri og veðriö batnar.
Ég hef ekki hitt kollega mina,
sem eru komnir, þá Hooley og
Kirby, en vona, aö af þvi veröi
fljótlega.
Ég hef einu sinni talað við
Kirby — fyrir mörgum árum — en
hann man sjálfsagt ekkert eftir
þvi. Hooley þekki ég aftur á móti
ekkert, en hef heyrt hans getið.
Ég þekki Sanders, sem verður hjá
Vlking, af afspurn, og Tony
Knapp hef ég heyrt mikið talað
um, enda var hann þekktur knatt-
spyrnumaður á Englandi á sinum
tima.
Þessir menn hafa allir veriö hér
áður, svo þeir eru betur settir en
ég hvað varðar vitneskju um lið
og leikmenn hinna. En I
samvinnu við strákana hjá Val
vonast ég til að geta unnið það
upp og hef góða trú á, að okkur
takist það I sameiningu, eins og
önnur verkefni-sem við tökumst
á við I sumar.”
Gilroy er liðlega þrítugur — há-
skólamenntaður kennari — og á
að baki mjög glæsilegan og
óvenjulegan feril sem knatt-
spyrnumaður. Hann lék fyrst með
skozkum liöum, þar á meðal
Clyde. Þaðan var hann seldur til
enska liðsins Fulham árið 1966
fyrir 40 þúsund pund, sem þótti
hátt verð fyrir ungan Skota á
þeim timum.
Hjá Fulham lék hann I stöðu
miðherja með Alan Clarke — nú
tyftDUR \.
MUNIÐ
ibúðarhappdrætti H.S.i.
2ja herb. ibúð að
verðmæti kr. 3.500.000.-
Verð miða kr. 250.
Leeds — sem er mikill vinur hans,
en þeir bjuggu i sömu Ibúð, þar til
Clarke var seldur frá Fulham.
Einnig lék hann þar með Johnny
Haynes, sem var lengi fyrirliði
enska landsliðsins og fyrirliöi
Fulham á þessum árum.
Gilroy var hjá Fulham I fjögur
ár þá fékk hann sig lausan og fór
til Dundee, þar sem hann var i
smátlma.
Frá Dundee réði hann sig sem
leikmaður og þjálfari Highlands
Park i Suður-Afriku. Það var lið,
sem var neðarlega I deildinni, en
hann gerði það að stórliði á
skömmum tíma. Þá bauðst
honum að taka við skozka liðinu
Falkirk, sem var I vonlausri stöðu
I 1. deildinni i Skotlandi. Engu
munaði að hann næði að halda þvi
uppi — vantaði aðeins 2 litil stig,
þegar yfir lauk.
Undir hans stjórn lék liðið 22
leiki án taps, og I fyrra kom hann
því i undanúrslit i deildabikarn-
um, þar sem það var slegið út af
Hibs 1:0, eftir að hafa átt mun
meira I leiknum.
1 desember s.l. hætti hann hjá
Falkirk eftir ágreining við stjórn
klúbbsins um val á leikmönnum i
aðalliðið. Þá bauðst honum fram-
kvæmdastjórastaðan hjá Patrick
Thistle, en hafnaði henni, þegar
skozka knattspyrnusambandið
baö hann um að skreppa til
íslands og kanna tilboð frá Val,
sem hefði óskað eftir skozkum
þjálfara.
„Eftir þvi kem ég aldrei til með
aö sjá, það hef ég fundið á þessari
einu viku, og veit aö margar betri
eiga eftir að koma.”
—klp—
Vlsir. Miðvikudagúr 12. marz 1975.
Stórleikur-
inn í kvöld
- Leikur Yíkings og Vals í 1. deild í
kvöld — og ÍR í baráttu við Hauka
Stórleikur Vikings og Vals i 1.
dcildinni I handknattleik karla
verður i Laugardalshöllinni i
kvöld. Leikurinn hefst kl. 8.15 og
þar ráðast ekki úrslit nema
Víkingur sigri eða geri jafntefli.
Þá verður liðið tslandsmeistari. t
fyrri leik liðanna — fyrsta leik
mótsins — sigraði Víkingur með
19-17 og Vikingur hefur leikið tiu
leiki I röð án taps i 1. deild.
Sigri Valur hins vegar i leikn-
um i kvöld er sigur Valsmanna i
mótinu þar með ekki i höfn. Þá
þarf Valur einnig að sigra FH i
siðasta leik mótsins, sem verður
annan miövikudag, eða að ná
jafntefli til þess að komast
uppfyrir eða ná Viking að stigum.
Allt er þó ekki búiþ með þvi.
Armann hefur áfrýjað dómi
HKRR, sem dæmdi Val stigin i
tapleik liðsins gegn Ármanni, til
dómstóls HSt. Astæðulaust er hér
að rekja það mál nánar og visast
til bréfs Armenninga hér neðar á
siðunni. Þetta getur orðið langt og
strangt mál fyrir dómstólum og
ekki öll kurl komin til grafar.
Siðari leikurinn i kvöld verður
milli 1R og Hauka. tR-ingar verða
að sigra i leiknum til að hafa
möguleika að komast hjá falli i 2.
deild — ef liðið tapar er það fallið,
en eins og tR-liðið hefur leikiö að
undanförnu ætti það að hafa tals-
verða sigurmöguleika gegn
Haukum. —
—hsim.
COOPER TIL
MIDDLESBRO
Middlesbro keypti I gær enska
landsliðsbakvöröinn Terry Coop-
er frá Leeds fyrir 50 þúsund pund,
en framkvæmdastjóri Middles-
bro, Jackie Chariton, lék lengi
með Cooper hjá Leeds. Þá keypti
Everton welska landsliðsmann-
inn David Smallmann frá 3. deild-
arliðinu Wrexham i Norður-
Wales fyrir 100 þúsund pund.
Smallmann er 21 árs — mikill
markaskorari. —hsim.
Síðasta spyrnan
bjargaði Leeds!
— í bikarleiknum við Ipswich í gœrkvöldi
— Jafntefli eftir framlengingu
Duncan McKenzie var send-
ur inn á leikvöllinn á Elland Road
i Leeds I gærkvöldi, þegar tvær
minútur voru eftir af leiktiman-
um. Ipswich hafði þá forustu I
bikarleiknum með marki, sem
David Johnson skoraði á 17. min.
En með siðustu spyrnunni — og
var þá komið vel yfir venjulegan
leiktima, 90 minúturnar, — tókst
Duncan að jafna fyrir enska
meistaraliðið.
Tafa- og slysaviðbótin bjargaði
þvi Leeds, en i 30 minútna fram-
lengingu tókst hvorugu liðinu að
skora. Leeds sótti miklu meira i
framlengingunni — en vörn Ips-
wich var þétt fyrir eins og fyrr i
leiknum. Liðin verða þvi að mæt-
ast i þriðja sinn — og það, sem
loks sigrar, leikur við West Ham i
undanúrslitum 5. april. Ekki var
skýrt frá þvi i gær hvar 3ji leikur-
inn verður háður.
Þessi úrslit gera Leeds erfitt
fyrir vegna álags frá Evrópu-
bikarnum. Næsta miðvikudag fer
Leeds til Belgiu og leikur siðari
leikinn við Anderlecht. Liðið
hefur 3-0 forustu frá fyrri leikn-
um.
Sigurganga Fulham hélt áfram
i gærkvöldi. Liðið lék þá i Bristol
gegn Rovers og sigraði 2-1. Fyrir-
liðinn Alan Mullery skoraði
fyrra mark Fulham úr vita-
spyrnu á fyrstu min. leiksins.
Frankie Prince jafnaði eftir 15
min. en sigurmark Fulham skor-
aði varamaðurinn John Mitchell
rétt fyrir leikhléið. Bristol Rovers
er nú i alvarlegri fallhættu i 2.
deild. t 4. deild gerðu Rochdale og
Southport jafntefli 3-3.
Don Revie, enski landsliðsein-
valdurinn, hefur valið þrjá nýliða
i landsliðið gegn heimsmeistur-
um Vestur-Þýzkalands á Wemb-
ley i kvöld. Þeir eru Ian Gillard,
QPR, Steve Whitworth, Leicest-
er, bakverðir, og Alan Hudson,
Stoke, framvörður. Enska liðið
verður þannig skipað. Clemence,
Liverpool, Whitworth, Leicester,
Watson, Sunderland, Todd,
Derby, Gillard QPR, Ball, Arse-
nal, fyrirliði, Bell, Manch. City,
Hudson, Stoke, Channon, South-
ampton, Keegan, Liverpool, og
MacDonald, Newcastle. Meðal
varamanna eru Shilton, Stoke,
Tueart, Manch. City, Tbomas,
QPR, og Towers, Sunderland.
Þjóðverjar verða með sex af
heimsmeisturum sinum — Mull-
er, Overath og Grabowski eru
hættir i landsliði, Breitner á
Spáni og Hoeness meiddur.
John Conteh til hægri, þegar hann
sigraði Argentinumanninn Jorge
Ahumada á Wembley 2. október
siðastliðinn og varð þá heims-
meistari I iéttþungavigt. Conteh
sigraði þá á stigum eftir 15 lotur.
Bretinn hélt titlinum
Heimsmeistarinn I léttþunga-
vigt, John Conteh, Englandi, sem
er svertingi, fæddur í Liverpool
varði I gær titil sinn gegn banda-
riska meistaranum Lonnie Benn-
ett — miklum risa frá Kaliforniu
— og hélt titlinum. Dómarinn
stöðvaði leikinn I 5. lotu, en Benn-
ett var þá með ljótan skurð undir
hægra auga. Báðir keppendur
voru ataðir blóði.
Conteh, sem er aðeins 23ja ára,
var I varnarstöðu I tveimur fyrstu
lotunum, en siðan breyttist leik-
urinn honum I hag. I fjórðu lotu —
I lokin — var Bandarikjamaður-
inn I mikilli hættu eftir mörg högg
meistarans, en bjargaði sér með
þvi „að hanga” á Conteh. I 5. lot-
unni kom Conteh mörgum högg-
um á andlit mótherja sins á ný og
skurðurinn, sem Bennett haföi
fengið fyrr I keppninni, galopnað-
ist þá og blóðið flaut.
Eftir keppnina ásakaði Bennett
meistarann fyrir að hafa „skall-
að” sig og hann þvi fengið skurð-
inn. Hins vegar var dómarinn,
Ronald Dakin, á annarri skoðun
og sagði, að „hrein” högg Conteh
hefðu orsakað hann. A æfingu
hafði Bennett fengið skurð á
sama stað — og var hann saum-
aðursjösporum. Conteh,sem var
79,1 kg. — Bennett 78,4 en tveimur
tommum hærri — var ómeiddur
eftir leikinn.
Nokkuð hefur verið skrifað um
leik milli Conteh og Muhammad
Ali — og Ali ekki verið frá þvi að
keppa viö Conteh, einkum til að
skera úr hver sé „fallegasti”
hnefaleikamaðurinn i hringnum.
—hsim.
2. deildin í körfu:
Þrjú lið hafa mðguleika ó sigri
Staðan i 2. deild Islandsmótsins
I körfuknattieik eftir leikinn um
helgina:
Haukar—Fram
Fram
Skallagrímur
68:87
8 6 2 582:493 12
6 5 1 405:353 10
Þór
Haukar
Grindavfk
5 4 1 312:268 8
8 2 6 476:569 4
7 0 7 382:474 0
Eftir eru þessir leikir: Skalla-
grlmur—Þór, Þór—Skallagrimur
og Grindavik—Þór. Sex lið verða I
deildinni næsta ár.
Öll vítin mistókust
Danska unglingalandsliðið i
handknattleik sigraði það norska
I landsleik I Osló um helgina með
25 mörkum gegn 18. Danirnir léku
glæsilegt linuspil á köflum og
skoruðu flest sin mörk þaðan.
Norska liðið fékk fimm vltaköst
i leiknum — en öll mistókust, og
þurfti markvörður danska liðsins
ekki einu sinni að hafa fyrir þvi að
verja skotin, þau hittu aldrei
rammann!!
Markhæstur Norðmannanna
var Sven Tore Jacobsen með 6
mörk. en hjá Dönunum voru það
þeir Erik Bue Petersen og Kim
Sejr markhæstir með 4 mörk
hvor. —klp—
Opið bréf til Valsmanna frá leikmönnum Ármanns
Af íþróttavöllun-
um í dómsalina...
##
##
„Kæru” Valsmenn!
Við félagarnir I handknatt-
leiksdeild Ármanns getum
ekki lengur stillt okkur um að
senda ykkur árnaðaróskir
vegna frábærrar frammistöðu
ykkar. Þið hafið hér með sýnt
það einu sinni enn svo að ekki
verður um villzt, að ieikur er
aldrei tapaður, jafnvel þótt
hann hafi veriö flautaður af.
Fáir hefðu þrætt einstigið
þrönga með lagakrókunum af
jafn mikilli ákveðni og þið, og
fáir hefðu fundið þar leiðina til
sigurs, einsog þiö virðist hafa
gert. Lastararnir hafa reynd-
ar haldiö þvi fram, að slikur
sigur væri lítt til eftirbreytni
og hegðun ykkar bæri vott um
lágkúrulega hugsun. Þeir
skyldu þó hafa það i huga, að
Valsmenn hafa alla tið, eins og
þeir oft benda á sjálfir, starfað
i anda sira Friðriks heitins
Friðrikssonar, sem átti sér
æðri hugsjónir en fiestir menn
á jarörlki. Þvl má heldur ekki
gleyma, að I þessu máli gæti
verið um mikla fjárfúlgu að
tefla og þvitil mikils að vinna.
„Kæru” Valsmenn, þessi fá-
tæklegu orð eru skrifuð af ein-
lægri aðdáun á hinni nýju bar-
áttutækni, sem beitt er af
harðsvlraöri lögfræðingadeild
Vals (6 mál I gangi), baráttu-
tækni, sem smám saman mun
færa Iþróttirnar úr höndum
iþróttamannanna i hendur
lögfræðinganna, af iþrótta-
völlunum inn i dómssalina.
Við, Armenningar óskum ykk-
ur til hamingju með þessa
merku nýjung og leyfum okk-
ur að vona, að framtlöarsigrar
ykkar I dómsölunum verði
engu ómerkari en sigrar ykk-
ar á Iþróttavöllunum.
„Kæru” Valsmenn, við Ar-
menningar eigum vart orð til
að lýsa hrifningu okkar á þvi
merka fordæmi, sem þið hafið
sýnt með fyrrgetnum nýjung-
um. Hefur það m.a. orðið til
þess, aö forráðamenn félag-
anna hafa fengið aukinn
áhuga á yngri flokkunum, og
er það vel. Sitja þeir nú löng-
um með skeiðklukkur i hönd-
unum og reikningsstokka á
bak við eyrun og blða þess að
leikjunum ljúki, ef vera mætti
að þeir gætu fylgt fögru for-
dæmi ykkar. Segja gárung-
arnir aö nú hafi skeiðklukku-
öld hafizt I handknattleiks-
heiminum.
„Kæru” Valsmenn, okkur
Armenningum er það ljóst, að
við höfum gerzt sekir um mik-
inn glæp. Fyrir hann verðum
við dæmdir. Þaö var ekki
einungis svo, að við tefldum
ólöglcga örþreyttum táningi,
Pétri Ingólfssyni, fram ihand-
knattleik gegn hinni vlðfrægu
mulningavél, og reyndar
„löglega” örþreytta leik-
manninum ykkar, Bjarna
Guðmundssyni, heldur uröum
við einnig fyrir þvi óláni að
sigra ykkur I leiknum. En það
gerir sekt okkar vissulega
mikla. Þó vonum við vegna
kristilegs uppruna ykkar, að
þið munið fyrirgefa okkur
þessi bernskubrek, þvl aö hér
var vist aðeins um saklausan
leik að ræða.
Meö Iþróttakveðju
Leikmenn Ármannsliösins.