Tíminn - 20.07.1966, Side 7

Tíminn - 20.07.1966, Side 7
* Sjötugur í dag: Ingólfur Þorvaldsson í Guðfræðingatalinu er mynd af síra Ingólfi Þorvaldssyni, sem gæti gefið til kynna að ein af mörgum villum og prentvillum bók arinnar væri, að maðurinn hefði fæðzt 1896. Mynd þessi ber nefni- lega með sér, að persónan, sem hún sýnir væri svo gömul, að hér gætti mikils misskilnins. Hann væri alls ekki Prestaskólakandidat, þessi maður, hvað þá lir háskólan- um. Hann hlyti að hafa lokið af skólagöngu fyrir árið 1846, er vís- ir æðri skóla á íslandi var að verða nógu aumkunnarlega smár til þess að sérgreinir háskóla Evrópu anda giftarinnar fengi afleiðslu í presta skóla. Fram til þess tíma höfðu heimastúdentar og Bessastaðastúd entar og alls konar stúdentar geng ið inn í dómkirkjumar á Hólum og í Skálholti og í Reykjavík eftir hrun stólanna, og þegið vígslu hinna blessuðu biskupa, sem elsk- uðu aðra menn eins og sjálfa sig. Þannig gerðust ungir menn stjórn endur stærsta þáttar fólksins, sem var silfurþráður kirkjunnar. Mað- ur talar nú ekki uni trú í þessu sambandi. Hún er ekki helg op- inberlega. En of heilög hverjum einum til að veifað sé svo mjög meðfram breiða veginum, eins og menn villtist af honum ella. Nei. Hann er beinn og þeir eru víst fáir sem leiðast af honum fyrir tilstilli prestanna. Miklu fremur af öðrum ástæðum tvennum: Pen- ingum og hjarta. Tvíeðliskenning- in nýtur sín vel í nútímanum. Við erum að tala í nútíð, enda þótt myndin í Guðfræðingatali síra Björns gæfi fortíðina til kynna. E.t.v. var dulinni vitund fyrir að þakka. Hin gamallega og raunar alveg hræðilega mynd af hinum herralega og bersýnilega ofanverðr ar tuttugustu-aldarmanni minnir á, að hið gamla og góða íslenzka stúdentshjarta á hér meiri ítök en hroki hinna háskólalegu þanka- rúna. Maðurinn, sem myndin sýndi a.m.k. helmingi eldri en hann er kemur því inn hjá okkur, að hann múni vera helmingi betri, en haún lætur uppi hversdagslega. Skrifstofumaðurinp Ingólfur Þor valdsson, Hagamel 45 í Reykjavík,/ heitir hér fyrir norðan „síra Ing- ólfur á Ólafsfirði.“ Enda þótt tveir prestar í ötulla lagi hafi set- ið í gamla Kvíabekkjarbrauði síð- an síra Ingólfur veiktist og lét síð an af embætti 1958, hefur síra Ing- ólfur sízt fölnað í héraði. Hið sanna gildi hans hefur þvert á móti notið sín meir og komið enn betur í Ijós eftirá; við hinar nýju aðstæður. Síra Ingólfur Þorvaldsson er fæddur að Stærra-Árskógi 20. júlí, 1896. Faðir hans, sem drukknaði ungur 1898, var Þorvaldur Þor- valdsson, Þorvaldssonar albróður Kristínar í Yztabæ í Hrísey, móð- ur síra Stefáns prófasts á Völlum Kristinssonar. Móðir síra Ingólfs var Jónatanía Solveig Kristinsdótt ir frá Neðra-Haganesi í ^ótum Davíðssonar. Lifði hún til elli og dó í Skjaidarvík við Eyjafjörð sumarið 1956. Síra Ingólfur varð stúdent 1919 og kandidat í guðfr. þrem og hálfu ári síðar. Vígðist hann vorið 1923 eftir að hafa fengið skipun fyrir Þóroddsstað og Lundarbrekku (með Ljósavatni), en var veittur Kvíabekkur í Ólafsfirði vorið eft ir. í því brauði sat hann svo með- an hann gengdi prestskap, til 1957, við vinsældir, sem takmörkuðust af því einu að sóknarbörnin misstu hann. Prestssetrið á Kvíabekk var lagt niður og flutt í kaupstaðinn nokkru áður en síra Ingólfur fékk embættið. Bjó hann því með konu sinni, frú Önnu Nordal, í Ólafs- f jarðarkaupstað öll þau 33 ár, sem þau gegndu þjónustu prests og prestskonu þar. Enda þótt brauð- ið væri hægt með aðeins einni kirkju í kaupstaðnum, en hin gamla Kvíabekkjarkirkja var end- urvígð 1958, er síra Ingólfur skil- aði af sér brauðinu, varð prests- þjónusta hans fyrirhafnqrsöm og erfið vegna aukaþjónustu í öðrum prestaköllum. Hann þjónaði þann ig Akureyri haustið 1927, Barði í Fljótum rúm tvö ár, 1931—1933, Miðgörðum í Grímsey í tíu ár, 1937—1947 og Siglufirði hávetur- inn 1954—1955. En heima hlaut að sitja á Ólafsfirði prestskonan. Áhættusamar sjóferðir prestsins „út í Eyju“ sérstaklega, voru einn- ig erfiðar fyrir frú Önnu. Óvissa mikil. — Þeim varð þriggja barna auðið: Vilhjálmur f. 1922, Ragnar 1925 og Sigurður Jóhannes Nor- dal 1933. Allir eru þeir bræður búsettir í Reykjavík og eiga gott og elskulegt samfélag við foreldr- ana, þeir og þeirra fjölskyldur. Það er eins og myndin í Guð- fræðingatalinu hafi skírzt og fegr- ast við hugsunina um afmælisbarn ið. Og þegar hið ytra hefur þann- ig orðið sættanlegra og færzt nær, hefur jfr. aukizt gildi hins innra. Síra Ingólfur og frú Anna á Ól- afsfirði eru einstakir vinir. Minn- ist ég þess frá skólaárunum syðra hve gott var að koma heim til þessara elskulegu „fósturforeldra". Þótt gestrisni frú Önnu sé mikil og glettni síra Ingólfs og gaman- semi taki líka öllu fram var það undirspilið, hjörtu þessara trygg- lyndu og elskulegu hjóna, sem dró ungan skólapilt til sín. Síra Ingólfur og frú Anna. Haf- ið heilar þakkir mínar og foreldra minna fyrir órofa vináttu margra ára. Við minnumst allra glöðu stundanna — heyrum í fjarlægð undirspilið hinnar traustu og ófor gengilegu vináttu. Ágúst Sigurðsson Möðruvöllum. ESE g m piiiffliiilíiiniHPGJ^ Sala Rothmans er margfalt meirien nokkurrar annarrar sígarrettu af bessari gerð. Rothmans veitir með auka-lengd, fínni filterogbeztafáanlegutðbaki, mýkt ogfullnægju, sem engin önnur sigarretta býöur. Nafn Rothmans ber haest í sígarrettuheiminum. Auka-lengd Rolhmans King Sizo leiBir reykinn lengra, keelir hann og veitir aukið bragS og fullnægju. Rannsóknir Rothmans um allan heim fundu upp ffnni filter...Hreinan reyk og raunverutega reykinga-Sneogju. Rothmans King Slze eru aSeinshffhar til úr dfrasta tóhaki—hezta fáanlegu tóbaki. > ... —o . fr.f'tk v -« wntocorwcnT

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.