Tíminn - 20.07.1966, Side 14

Tíminn - 20.07.1966, Side 14
14 TÍOVIINN MIÐVIKUDAGUR 20. júlí 1966 STROKUHERMAÐUR Framhald af bls. 1. I skýldfólk piltsins, sem býr í borg inni. Er pilturinn íslenzkur í aðra ætt en bandarískur í hina. Hafði hann ekki þolað agann í hernum að því er hann sagði lögreglunm í byrjun, og sagðist hann búast við að verða settur í 6 mánaða fangelsi, og síðan settur fyrir byssukjaftana í Víetnam. Einn- ig hafði hann orð á því, að hann ætlaði að reyna að komast á er- lent skip og fara af landi brott. Því er það alls ekki ósennilegt, að hann sé floginn úr höfuðstaðnum. Njótið hollrar útiveru í fögru umhverfi og skemmtilegum félagsskap! Skíðakennsla Gönguferðir Kvöldvökur 26. júlí —1. ágúst 2. ágúst — 7. eða 8. ágúst 9 ágúst til 14. eSa 15. ágúst 16. ágúst — 21. ágúst 23. ágúst —28. ágúst 7 dagar 6 eða 7 dagar 6 eða 7 dagar 6 dagar 6 dagar Þátttökugjald er 3650 kr. fyrir 6 daga, 4100 fyr- ir 7 daga. lnnifalið: ferðir. fæði, gisting, skíðakennsla, leið- sögn í gönguferðum, kvöldvökur. Afsláttur fyrir fjölskyldur. — Lægra verð fyrir unglinga, 16 ára og yngri, á tveimur síðustu nám- .s'keiðunum. •*&.**• 1 ‘yfff;’:' Upplýsingar og pantanir: Þorvarður Örnólfsson, sími 10470. Ferðafélag íslands. símar 19533 og 11798. Umferðarmiðstöðin, sími 22300. Skíðaskólinn í Kerlingarfjöllum LOKAÐ B DAG frá kl. 12 til 4 vegna jarðarfarar Sölufélag Garðyrkjumanna •? Þökkum innilega sýnda samúð og vinarhug við andlá? og útför ” móður okkar, tengdamóður og ömmu, Elínborqai Pálsdóttur frá Ingveldarstöðum Sigrún Sigurjónsdóttir, Elínborg Sigurjónsdóttir, Páll Sigurjónsson, Þórarinn Jónasson, og barnabörn. Benedikt Jónsson frá Húsavík lézt mánudaginn 18. þ. m. jarðarförin fer fram frá Húsavík. Börn og aðrir vandamenn. Maðurinn minn, Stefán Sveinsson fornbókasali, andaðist að morgni þess 17. þ. m. Jarðarförin ákveðin síðar. Hulda Aradóttir. Blaðamaður Tímans fór í dag; niður á lögreglustöðina í Reykja vík og hafði tal af landgöngulið- anum, sem sendur var til þess eins að bera kennsl á Michael Burt, þar sem engin skýr mynd var til af honum. Vildi landgönguliðinn ekk ert segja og bar því við, að hann mætti ekkert láta hafa eftir sér. Hann sagðist ekkert vita um for sögu málsins og væri hann hér í þeim erindagerðum einum að benda á manninn, ef hann yrði á vegi leitarmannanna. Piltur- inn er ekki brotlegur við íslenzk lög, en hjá bandaríska hernum eru sett ströng lög við stroki hermanna og hefur hann gerzt brotlegur við þau. Er hugsan- lega um ítrekað brot að ræða, þar sem hann stakk af frá lögregl unni á Reykjavikurflugvelli. Pilt- urinn er óeinkennisklæddur, mjög hávaxinn, dökkhærður og talar ekki íslenzku nema að mjög takmörkuðu leyti. FÁLKINN Framhald af bls. 1. Vikublaðið Fálkinn var stofnað laugardaginn 31. marz 1928 af Vilhjálmi Fin- sen, Skúla Skúlasyni og Svavari Hjaltested. Fyrsta tölublað- ið var 16 síður og kostaði 40 aura. Útkoma Fálkans þótti mikl um tíðindum sæta á sinni tíð. Hafin var útgáfa fyrsta mynd skreytta vikublaðsins og jafn- framt blaðs, sem ekki var háð neinni stjórnmálastefnu. Fálk inn birti fyrstur blaða af mælismyndir af þekktum borg- urum, hann birti fyrstu kross- gátuna, sem kom í íslenzku blaði hann fluttí fyrstu mynda- sögupersónuna — Adamson, sem lengi skemmti lesendum balðs- ins. Lengi vel mun Fálkunn hafa skilað arði, en á stríðsárunum, og árunum þar á eftir lenti blað ið í kröggum við og við. Fálk- inn tók miklum breytingum, er Gylfi Gröndal tók við ritstjórn Hlaðrúm henta allstaðar: i bamaher* bergiö, unglingaherbergiÖ, hjónaher- bergiðj sumarbústaöinn, vciÖihúsiÖ, ■bamaheimili, heimavistarskóla, hótel. Helztu kostir hlaðriiraanna .eru: ■ Riimin má nota eitt og eitt sér eða hlaða þeim upp í tvær eða þrjár hæðir. ■ Hæft cr að fá aukalega: Náttborð, stiga eða liliðarborð. ■ Innanmál rúmanna er 73x184 sm. Hægt er að fá rúmin mcð baðmull- ar og gúmmídýnum eða án dýna. D Rúmin hafa þrefalt notagildi þ. e, kojur/einstaklirigsrúmoglijónarúm. B Rúmin eru úr tekki eða úr brenni (brennirúmin erti minni ogódýrari). S Rúmin eru öll í pörtum og tckur aðeins um tvær mínútur að setja þau saman eða taka í sundur. HÚSGAGNAYERZLUN REYKJAVÍKÚR BRAUTARHOLTI 2 - SÍMI 11940 og virtist um skeið, að blaðið í nýjum búningi myndi komast yfir byrjunarörðugleika, en af, ýmsum ástæðum tók aftur að halla undan fæti. Undanfarin ár hefur margt verið reynt til að rétta við hag blaðsins, en sá róður hefur verið þungur af ástæðum, sem óþarfi er að rekja. Öll blöð á íslandi eiga nú í mikl um erfiðleikum og er svo langt gengið, að jafn öflugt blað og Morgunblaðið eygir jafnvel hættu á reksturfjárskorti. . Ekki er loku fyrir þáð skotið að Fálkinn kynni að hefja göngu sína á ný, en þá yrðu nýir útgefendur að kaupa nafnið fyr ir allháa upphæð. Það er sannarlega ástæða að harma þessi endalok, — enda- lok sem vikublaðið Fálkinn áftti ekki skilið. KYNÞÁTTAÓEIRÐIR Framhald af bls. 1. að óeirðirnar byggi á kjörum blökkumanna á hverjum stað, og eins á hinu, að lögreglan sýni oft verulega hörku og jafnvel ögr anir. Nefndi hann sem dæmi atvik í hverfinu Watts í Los Angeles —, þar sem hatrammar óeirðir hafa nokkrum sinnum átt sér stað á þessu ári. Þar hafi lögreglumaður stöðvað blökkumann, fyrir að ganga rangt yfir stræti, en skipti sér ekkert af hvítum presti, sem gekk við hlið blökkumanns ins. Blökkumenn og lögreglu menn flykktust á staðinn, en nokkrum mönnum tókst að koma í veg fyrir átök. Eftir þennan atburð sagði umræddur prestur, að hann væri viss um, að lögregl an væri að efna til alvarlegra átaka í hverfinu. Fréttamaður BBC kvaðst hafa rætt við blaðamenn í Cleveland, og hefðu þeir sagzt vera þess full vissir, að óeirðirnar þar hefðu ekki verið skipulagðar fyrirfram. Hann sagði, að Bandaríkjamenn óttuðust, nú, að óeirðirnar myndu dreifast út um Bandaríkin, frá borg til borgar. JARÐFIRÐARMET Framhald af bls. 1. meira eldsneyti en til var ætl- azt, er þeir eltu uppi og tengdu geimfar sitt við Agena- eldflaug, sem skotið var á loft í gær. Er geimfararnir höfðu tengt geimfarið og eldflaugina sam- an settu þeir aflvélar eldflaug arinnar í gang og létu þær „skjóta" geimfarinu á braut umhverfis jörðu í 753 km fjar lægð frá yfirborði jarðar. í kvöld opnaði Collins, ann ar geimfaranna, lúgu á geim- farinu og stakk höfði og öxlum upp úr geimfarinu til þess að taka myndir. Samkvæmt áætl- un átti hann að taka myndir í tæpa klukkustund. IÞRÓTTIR Framhald af bls. 12 stökk 5.16 metra, og Guðrún Guð bjartsdóttir fjórða, stökk 4.78 m. í 4x100 m boðhlaupi sigraði skozka sveitin á 50.3 sek en sú ís lenzka hljóp á 54.8 sek. Árangurinn í keppninni ber þess vitni, að aðstæður voru erf- iðar í gærkvöldi, en mikið rigndi meðan keppnin stóð yfir. Skozka íþróttafólkið var áberandi miklu betra — og árangur þess betri en búizt var við. Landskeppnisstemn ing náðist aldrei — enda munur til þess of mikill. IÞRÓTTIR Framhald af bls. 12 spyrnunnar — en allt kom fyrir ekki, knötturinn vildi ekki i net- ið. Ákaft hvattir af áhorfendum börðust Kóreumenn af öllum kröftum — öllu, sem ítalir köst- uðu á þá, köstuðu þeir til baka —■ og vissulega var dagurinn þeirra. Aldrei hefur erlent lið á Englandi verið hvatt eins gífur- lega, og eftir leikinn voru suðræn ar senur á Ayrsome Park. Hinn minnimáttar hafði sigrað, og það er nokkuð, sem enskir áhorfendur kunna að meta. Liðið, sem enginn bjóst við neinu af, gerði hið ótrú- lega og er sennilega öruggt með áframhald í keppninni. Hins veg ar verður þetta áreiðanlega mesti sorgardagur ítalskrar knatspyrnu þar sem kunnáttan og leiknin beið lægri hlut fyrir ódrepandi vilja og krafti. —hsím. ÍÞRÓTTIR Framhald af bls. 12 Ungverjaland—Búlgaría á Old Trafford, Manchester. Chile—Sovétríkin á Roker Park í Sunderland. England þolir að tapa — þó aðeins með eins marks mun — gegn Frakklandi og hefur þá betra markahlutfall, en tveggja marka sigur nægir Frökkum hins vegar. Spánn verður að vinna Þýzkaland til að komast áfram, Ungverjar mega tapa með einu marki gegn Búlgör- um, en Chile verður að vinna Sovétríkin, annars kemst N-Kórea áfram. 14 ÁRA TVÍBURAR Framhald af bls. 2. en þá yrði komið fram í Æsku- lýðsheimili Kópavogs. 10. ágúst yrði svo lagt af stað á ný og þá haldið norður í land. Magnús kvað sjóðinn hafa verið stofnaðan fyrir þremur árum í því augnamiði að styrkja til náms og hlaupa undir bagga með ung- lingum, sem ættu við örðugar og óeðlilegar heimilisaðstæður að búa. Kvaðst hann hafa rekið sig á það í starfi sínu og víðar, að mikil þörf væri í sumum tilvik- um áj slíkri aðstoð, einkum vegna þess,Hað ríkið hætti undantekning arlaust meðlögum til unglinga, eftir að þeir hefðu náð 16 ára aldri. Hefði sjóðurinn styrkt tölu vert marga unglinga með misjafn lega háum fjárframlögum og not- að ýmsar leiðir í fjáröflunarskyni. Kvaðst hann mjög ánægður með þann áhuga og skilning, sem marg ir sýndu þessu starfi. Litprentað kort af Reykjavík komið í búðir Offsetprentsmiðjan Litbrá hef- ur sent á markaðinn litprentað kort af Reykjavík, sem skreytt er ljósmyndum úr borginni og teikn ingum af helztu styttum og bygg ingum. Kort þetta, sem aðallega er ætl að erlendum ferðamönnum, og ut anbæjarfólki, er allnýstárlegt fyr- ir það að hótelin, iferðaskrifstof urnar, söfnin o.fl. sem ferðafólk hefur áhuga á, er merkt með núm erum inn á kortið og er því auð- fundið í borginni. Aftan á kortinu eru svo heimil isföng og símanúmer yfir þau helztu fyrirtæki, er veita ferða fólki þjónustu — hótelin, bank- arnir, ferðaskrifstofurnar, bíla- leigurnar, flugfélögin, minja- gripaverzlanirnar, skipafélögin, bifreiðastöðvarnar og veitingastað- ir. Kort þetta sem er smekklega úr garði gert, hefur Torfi Jónsson, sett upp og teiknað. Verð í lausasölu er kr. 25.00.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.