Vísir - 29.04.1975, Síða 12
12
Vlsir. Þriðjudagur 29. aprll 1975.
VEÐRÍÐ
ÍDAG
Allhvöss norð-
austan átt.
Bjart veður.
Frost 5-10 stig.
A EM i Israel i fyrrahaust
fékk Romik, ísrael, mikið lof
fyrir eftirfarandi spil. Það var
I leiknum við Svíþjóð, sem
sýndur var á sýningartöflunni.
Romik spilaði fjögur hjörtu i
vestur og norður spilaði út
tlgulsjöi.
4 KG64
V 8762
♦ KD10
* D6
4 10732
V 10
♦ 8752
+ G1042
4 95
VÁK93
4 963
4AK73
4 ÁD8
VDG54
♦ AG4
4985
Suður tók á tigulás, sfðan
spaðaás og spilaði tigli áfram,
sem Romik átti. Hann spilaði
hjarta á ásinn og þegar 10 kom
frá norðri vöknuðu vissar
grunsemdir hjá Romik. Hvers
vegna hafði Lindquist I suður
strax tekið á ásana sina? —
Nú, Romik spilaði þrisvar
laufi — tók síðan kóngana i
tigli og spaða og suður fylgdi
alltaf lit. Þá trompaði hann
spaða I blindum og spilaði litlu
laufi. Suður, sem átti aðeins
D-G-5 eftir i hjartanu, var
vamarlaus.
LÆKNAR
Reykjavik — Kópavogur.
Ilagvakt: kl. 08.00—17.00 mánud.
— föstudags, ef ekki næst I heim-
ilislækni simi 11510.
Kvöld- og næturvakt: kl. 17.00 —
08.00 mánudagur — fimmtudags,
simi 21230.
Hafnarfjörður — Garðahreppur.
Nætur- og helgidagavarzla, upp-
lýsingar i lögregluvarðstofunni,
simi 51166.
A laugardögum og helgidögum
eru læknastofur lokaðar, en lækn-
ir er til viðtals á göngudeild
Landspitalans, simi 21230.
Ifpplýsingar um lækna- og lyfja-
búðaþjónustu eru gefnar i sim-
svara 18888.
APÓTEK
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
varzla apótekanna vikuna 25.
april -1. mai er í Laugavegs Apó-
teki og Holts Apóteki.
Það apótek, sem fyrr er nefnt,
annast eitt vörzluna á sunnudög-
um, helgidögum og almennum
fridögum. Einnig næturvörzlu frá
kl. 22 að kvöldi til kl. 9 að morgni
virka daga, en kl. 10 á sunnudög-
um, helgidögurp og almennum
fridögum.
Kópavogs Apótek er opið öll kvöld
til kl. 7, nema laugardaga er opið
kl. 9-12 og sunnudaga er lokað.
Rafmagn: í Reykjavik og Kópa-
vogi i sima 18230. í Hafnarfirði i
sima 51336.
Hitaveitubilanir simi 25524.
Vatnsveitubilanir simi 85477.
Simabilanir simi 05.
Slýsavarðstofan: simi 81200, eftir
skiptiborðslokun 81212.
Sjúkrabifreið: Reykjavik og
Kópavogur, simi 11100, Hafnar-
fjörður simi 51100.
Tannlæknavakt er i Heilsuvernd-
arstöðinni við Barónsstig alla
laugardaga og sunnudaga kl.
17-18. Sími 22411.
Reykjavík:Lögreglan simi 11166,
slökkvilið og sjúkrabifreið, simi
11100.
Kópavogur: Lögreglan s'Imi
41200, slökkvilið og sjúkrabifreið
simi 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan simi
51166, slökkvilið simi 51100,
sjúkrabifreið simi 51100.
Jöklarannsóknafélag íslands
Vorfundur
verður haldinn þriðjudaginn 29.
april i Tjarnarbúð niðri og hefst
kl. 20,30.
FUNDAREFNI:
Eyþór Einarsson, grasafræðing-
ur, rabbar um Esjufjöll og sýnir
litmyndir þaðan. Jón Isdal,
skipasmiður, ræðir um Vatna-
jökulsferðina 1974 og sýnir lit-
myndir. Kaffihlé. SIGURÐUR
Þórarinsson bregður upp mynd-
um af „hlaupandi jöklum”. —
Stjómin
Árnessýsla —
Selfoss
Þriðjudaginn 29. april n.k. verður
haldinn fundur i sjálfstæðis-
félaginu Oðni og hefst hann kl.
21.00 i Sjálfstæðishúsinu,
Tryggvagötu 8, Selfossi. Fundar-
efni: Kosning fulltrúa á landsfund
Sjálfstæðisflokksins. Stjórnin.
Fulltrúaráösfundur
í Kópavogi
Fundur verður haldinn
þriðjudaginn 29. april kl. 20.30 i
Sjálfstæðishúsinu við Borgar-
holtsbraut.
Fundarefni:
1. Kjör fulltrúa á iandsfundi
sjálfstæðisflokksins
2. Oddur Ólafsson, alþingismaður
flytur ræðu.
Fulltrúar eru beðnir að mæta
stundvislega.
Stjórn fulltrúaráðsins.
Akranes
Fundur verður haldinn i Sjáif-
stæðishúsinu að Heiðarbraut 20,
þriðjudaginn 29. april kl. 20.30..
Ellert B. Schram ræðir um
stjórnmálaviðhorfið og svarar
fyrirspurnum. Kaffiveitingar
Kosning fulltrúa á landsfund
Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfstæðisfélögin á Akranesi.
Félagsstarf
eldri
borgara
Danssýning nemenda frá dans-
skóla Sigvalda verður miðviku-
daginn 30. april kl. 4 e.h. að
Norðurbrún 1. Húsið opnar kl. 1
e.h. eins og vanalega. Eftir
sýninguna dansa nemendurnir
við gestina.
Félágsmálastofnun
Reykjavikurborgar.
TILKYNNINGAR
Flóamarkaður
verður haldinn
laugardaginn 3. mai
i Safnaðarheimili Bústaðasóknar.
Tekið verður á móti munum i
Safnaðarheimilinu kl. 5-7 frá og
með mánud. 28. april. Sækjum
heim — hringið i sima; 32076 Asta
— 31435 Ragna — 34733 Jenny —
36212 Dagmar.
Kvennadeild
Skagfirðingafélagsins
i Reykjavik
Basar og kaffisala verður i
Lindarbæ fimmtudaginn 1. mai
kl. 2 e.h. Tekið á móti munum á
basarinn i Lindarbæ kvöldið áður
eftir kl. 8 — kökumóttaka f.h. 1.
maf.
Hollenzki
ræöumaðurinn
Gert Doornenbal o.g enski pianó-
leikarinn Peter Bye tala og kynna
Eurofest á samkomu Hjáipræðis-
hersins i kvöld kl. 20.30.
Hjálpræðisherinn.
Kvenfélag Hreyfils
Spilum félagsvist' miðvikudags-
kyöld 30. april kl. 8.30 i Hreyfils-
húsinu. Mætið vel og takið með
ykkur gesti. Stjórnin.
Kópavogur skrifstofu-
timi
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna
I Kópavogi hefur ákveðið að skrif-
stofa Sjálfstæðisflokksins i
Kópavogi að Borgarholtsbraut 6
verði framvegis opin á þriðju-
dögum kl. 17—19. Stjórnin.
Simavaktir hjá
ALA-NON
Aöstandendum drykkjufólks skal
bent á simavaktir á mánudögur.i
kl. 15-16 og fimmtudögum kl. 17-18
simi 19282 i Traðarkotssu.ndi 6.
Fundir eru haldnir i Safnaðar-
heimili Langholtssafnaðar alla
laugardaga kl. 2.
Mænusóttarbólusetning.
Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna
gegn mænusótt fara fram I
Heilsuverndarstöð Reykjavikur á
mánudögum kl. 16.30—17.30.
Hafið með ónæmiskirteini.
Ónæmisaðgerðin er ókeypis.
Heiisuverndarstöð Reykjavikur.
| 1DAG | í KVÖLO | i íDAG j í KVÖLD |
Tveir Norðurlandabúar
komu heldur betur á óvart á
miklu skákmóti, sem nýlega
lauk i Dortmund. Finninn
Westerinen sigraði með 9.5
vinninga og annar varð Norð-
maðurinn Leif Ogaard með 8
vinninga. Siðan komu Savon,
Sovét, með 7.5 vinninga,
Parma, Júgóslaviu, og Bed-
narski, Póllandi, með 7 vinn-
inga, Pytel, Póllandi, og
Kuprestsjik, Sovét, með 6.5
vinninga. Af árangri annarra
keppenda má nefna, að Keene,
Finnlandi, hlaut 4.5 vinninga
og Omstein, Sviþjóð, 3.5 vinn-
inga.
Þetta er lokastaðan úr skák
þeirra ögaard og Savon á
mótinu. Norðmaðurinn hafði
hvitt og lék siðast 26. Rg2 og
Savon, sem hafði haft erfiða
stöðu lengstum i skákinni,
bauð jafntefli, sem hinn þáði.
Skiljanlegt — má bæta við —
gegn manni, sem fyrir örfáum
árum varð skákmeistari
Sovétrikjanna.
Jakob Jónsson spjallar um Nýja testamentið kl. 21.50:
Kristilegur kommúnismi
og fjúrhagur frumsafnaðanna
Dr. Jakob Jónsson heldur
áfram að flytja sin fróðlegu er-
indi um Nýja testamentið i
kvöld kiukkan 21.50. Að þessu
sinni ræðir hann um hugtakið
kristilegur kommúnismi og
reynir að setja saman heildar-
mynd af fjármálum frum-
safnaðanna samkvæmt þvi sem
Nýja testamentið gefur i skyn.
Ekki mun fjárhagur fyrstu
kristilegu safnaðanna hafa
verið sterkur, en Jakob mun I
kvöld fræða hlustendur sina um
það, hvernig safnaðarmenn sáu
fyrir þörfum sinum og miðluðu
fátækum af fé sinu.
—JB
SJÓNVARP •
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsing-
ar
20.35 Helen — nútimakona
Bresk framhaldsmynd. 10.
þáttur. Þýðandi Jón O. Ed- •
wald. Efni 9. þáttar: Helen
flytur i kjallaraibúðina, sem
Harold, vinnufélagi hennar,
hefur boðið henni. Frank /
fær fréttir um, að hún sé
farin að búa með karl-
manni, og li"kar honum það
stórilla. Hann tekur að
njósna um mannaferðir
Lög unga fólksins" kl. 20.00 í kvöld
w
„EG ER LANGÞREYTT A ÞEIM
GRÁTBÓLGNU
B S — segir Ragnheiður Drífa, er sér
um þáttinn
,,Ef satt skal scgja er ég orðin
hálf-langþreytt á þessum grát-
bólgnu kveðjum. Við erum
margbúin að láta i það skina i
þáttunum að þcir, sem kveðj-
urnar senda, ættu að hætta
þessum eilifu stælum, en það
hefur ekki virkað.”
Þetta höfum við eftir Ragn-
heiði firifu Steinþórsdóttur, sem
Iumfjögur ár hefur nú séð um
þátlinn Lög unga fólksins.
,,En I guðanna bænum láttu
samt ekki lita út eins og ég sé
orðin hundleið á að sjá um þenn-
an hátt þvi þá reka þeir mig.
Hitt er þó staðreynd að ég held
minu ástfóstri við þáttinn eink-
um vegna blankheita,” sagði
Ragnheiður Drífa.
„Það hefur verið reynt að
breyta fyrirkomulaginu.
Sigurður Garðarsson, sem sá
um þáttinn um tima, reyndi að
lesa færri kveðjur og leika þeim
mun meira af góðum lögum,
en hann fékk fleiri skammar-
bréf en þakkarbréf. Það er
greinilegt að kveðjurnar eru
aðalatriðið og að lögin skipta
minna máli, þótt auðvitað rigni
yfir okkur skömmum, þegar við
af einhverjum ástæðum getum
ekki leikið sama lagið og beðið
er um,” sagði Ragnheiður
Drifa.
„Og eftir bréfamagninu að
dæma virðist þetta fyrirkomu-
lag lika bezt. Ég kemst aðeins
yfir einn fjórða af öllum kveðj-
unum I hverjum þætti og þykir
nú mörgum nóg um kveðjurnar
samt,” sagði Ragnheiður Drifa.
Lög unga fólksins eru á dagskrá
útvarpsins klukkan 20.00 i
kvöld. — JB