Tíminn - 10.08.1966, Síða 12
T2
IÞRÓTTIR
TÍM
IÞROTTIR
MIÐVIKUDAGUR 10. ágúst 1968
Gunnar Felixson, ICR, í leiknom á móti Þrótti í fyrrakvöld. Hann skoraSí fjögur mörk — og hefur nú veriS valinn í landsliSiS. (Tímamynd: Bjarnl.)
Akureyri og
KR leika á
fimmtudag
Alf — Reykjavík. — Leik
ur, sem margir hafa beufð
eftir, ekki sízt Akureyring-
ar, verður leikinn n.k.
fimmtudagskvöld, en það er
ieikur Akureyringa og KR
fyrir norðan, en eins og
kunnugt er, þá varð að
fresta þessum leik. Bæði KR
og Akureyri hafa enn-
þá möguleika á að vinna
mótið, en það iiðið, sem tap
ar á fimmtudag, missir af
Iestinni. Leikurinn / hefst
ki. 20.
Framhald á bls. 13.
Eusebio
“beztur,,
Lesendur enska vikubiaðs
ins .J'íews of the World",
kusu portúgalska leikmann-
hm Eusebio sem bezta leik
mann heimsmeistara
keppninnar. Úrslitin komu
nokkuð á óvart, þvi að bú
izt var við, að annað hvort
Bobby Charlton eða Bobby
Moore yrðu fyrir valinu. En
þessi úrslit sýna vel góðan
íþróttaanða, sem ríkir með-
al Breta.
Fyrir bragðið hreppir Eu
sebio upphæð, sem svarar til
120 þús. ísl. króna, en það
er sama upphæð og hann
fékk fyrir að vera marka-
hæsti leikmaður keppninn
ar. Eins og kunnugt er, er
upplag News of the World
um 9 millj. eintök og er
ekkert blað í heiminum gef
ið út í eins stóru upplagi.
Eusebio fór grátandi út af
vellinum eftir leikinn gegn
Englandi.
LANDSLIÐSNEFND í „STUÐS“:
Átta nýliðar í landsliðinu
á móti áhugamönnum Wales
í gærdag tilkynnti stjórn KSÍ
íslenzka landsliðið, sem leika á
gegn áhugamönnum Wales á Laug
ardalsvellinum, n. k. mánu-
dagskvöld. Og í ljós kemur, að
landsliðsncfnd hefur verið röttæk
í vali sínu, því að hvorki meira
né minna en 8 nýliðar eru í lið-
inu. Þeir, sem áður hafa leikið í
landsliði, og eru valdir nú, eru
þeir Árni Njálsson, Ellert Schram
og Gunnar Felixson, en samtals
hafa þessi Ieikmenn 36 lands-
leiki að baki.
Annars er liðið þannig skipað,
talið frá markverði til vinstri út
herja:
Einar Guðleifsson, Akranesi,
Sama verð á
aðgöngumiðum
Sala aðgöngumiða að landsieikn
um n.k. mánudagskvöld hefst við
Útvegsbankann á föstudag kl. 9.
Verð aðgöngumiða er það sama
og á síðasta iandsleik, þ.e. stúku
miðar á kr. 150, stæði á kr. 100
og barnamiðar á kr. 25.
Leikurinn hefst kl. 20 og verð
ur þetta fyrsti landslcikur okkar
gegn Wales.
Árni Njálsson, Val (fyrirliði),
Ársæll Kjartansson, KR,
Magnús Torfason, Keflavík,
Anton Bjamason, Fram,
Sigurður Albertsson, Keflavík,
Reynir Jónsson, Val,
Hermann Gunnarsson, Val,
Jón Jóhannsson, Keflavík,
Ellert Schram, KR,
Gunnar Felixson, KR.
Varamenn eru Sigurður Dags
son, Val, Jóhannes Atlason, Fram,
Baldur Scheving, Fram, Ingvar
Elíasson, Val, og Hörður Markan
KR.
Eflaust verða einhverjar deil
ur um þetta lið, eins og jafnan,
þegar landslið er valið. En lands
liðsnefnd er sannarlega ekki öf-
undsverð af hlutverki sínu, því að
meðalmennskan í ísl. knattspyrnu
hefur sjaldan verið eins áberandi
og í ár, og þess vegna afar erfitt
að velja lið „ellefu beztu.“
Landsliðsnefnd hefur tekið það
ráð að velja í stöðu markvarðar
kornungan Skagamann, Einar Guð
leifsson, og virðist hafa gert rétt
í því. Einar er efnilegur mark-
vörður, en skortir ennþá marga
eiginleika, sem landsliðsmarkvörð
ur þarf að hafa, t.d. eru staðsetn
ingar hans oft afleitar. En það er
ekki um auðugan garð að gresja,
þegar velja á markvörð, og sá
markvörður, sem stendur næst því
að hreppa stöðuna, fyrir utan Ein
ar, er Sigurður Dagsson, Val, og
er hann varamarkvörður. Guð
mundur Pétursson, KR, er einn
hinna ungu markvarða, sem kom
ið hafa fram á sjónarsviðið í sum
ar, og kom hann sterklega til
greina í stöðuna fyrr í sumar, en
virtist ekki í góðri æfingu um þess
ar mundir.
f bakvarðarstöðuria eru þeir
Arni Njálsson, Val, hinn knarg
reyndi landsliðsmaður, og Ársæll
Kjartartsson, KR. Árni er sterk
asti bakvörður okkar í dag, og því
sjálfsagður í liðið, en hæpin ráð
stöfun er það að velja Ársæl 1
stöðu bakvarðar. Ársæll er fyrst
og fremst miðvörður og sem slík
ur kæmi hann fullt eins til greina
í liðið og Anton Bjarnason.
Reynsla undanfarinna ára hefur
sýnt, að sjaldan hefur reynzt
happadrjúgt að setja miðvörð í
bakvarðastöðu í landslið.
Framverðir í liðinu eru Kefl
víkingarnir Magnús Torfason og
Sigurður Albertsson. Magnús er
mjög lipur leikmaður, sem sýnt
hefur prýðisleiki með Keflavíkur
liðinu, og er að mínu áliti sjálf
Færeyskir knattspyrnumenn
hingai í boði Kefivskinga
- leikp fyrsta leikinn á Njarðvíkur-vellinum í kvöld gegn ÍBK
Alf — Reykjavík. — í dag er
væntanlegt til landsin^ í boði íþr.-
bandalags Keflavíkur færeyskur
knattspyrnuflokkur frá Klakks-
vík. Mun liðið leika þrjá leiki í
förinni, þann fyrsta í kvöld gegn
ÍBK. Fer leikurinn fram á Njarð
víkurvellinum og hefst klukk-
an 20.
Annar leikur liðsins verður
gegn Knattspyrnusambandi Kefla-
víkur á föstudag á Njarðvíkur
velli kl. 20. Og þriðji og síðasti
leikurinn verður gegn Ungmenna
félagi Keflavíkur á sama stað á
sunnudag, kl. 17.
íþróttafélag Klakksvíkur á eitt
sterkasta knattspyrnulið Færeyja.
og verður eflaust gaman að sjá
liðið leika hér.
Þetta er í annað skipti, á bessu
ári, sem Keflvíkingar taka erlent
lið upp, en fyrr í sumar tóku þeir
á móti þýzku áhugamannaliði. Kef!
víkingar fóru til Færeyja í fyrra
og heimsóttu þá m.a. Klakksvík-
inga.
sagður í liðið. Öðru máli gegnir,
með Sigurð AÍbertsson, sem er af
ar stórskorinn leikmaður og sterk
ur. Við eigum til betri framvörð
en Sigurð í þessa stöðu, t.d. frá
Akureyri. Hætt er við, að uppbygg
ingastarfsemi framvarðanna í
leiknum á mánudagskvöld verði lít
il nema ef leikið verður „4-2-4“
þar sem báðir eru frernur
stöðvunar-framverðir en sóknar
framverðir, sérstaklega Sigurður
sem betur á heima í miðvarðar-
stöðu.
Anton Bjarnason, Fram, hefur
verið valinn miðvörður, og að
mínu áliti á hann jafnan rétt á
stöðunni og Ársæll og Sigurðar
Albertsson. Anton er stór og stæði
legur leikmaður, sem hefur gott
auga fyrir samleik, og er það
kostur, sem hann hefur umfram
bæði Ársæl og Sigurð.
í útherjastöðunum eru Reynir
Jónsson, Val, og Gunnar Felix-
son, KR, — og er vel skipað í
þær stöður, þó að Gunnar eigi
kannski fremur heima á miðjunni,
a.m.k. sýndi hann það í leiknum
á móti Þrótti, þar sem hann skor
aði 4 mörk. Reynir er ákaflega
fljótur leikmaður, en helzti gall-
inn við hann, er hve hann er gjarn
á að gefast upp, ef á móti blæs.
Innherjar eru Hermann Gunn-
arsson, Val, og Ellert Schram, KR
og er ekki að efa, að þeir muni
báðir skila stöðunum vel. En þó
er ég á því, að sterkara yrði fyrir
liðið að hafa Ellert í framvarðar
stöðu. KR reyndi Ellert í framlínu
á móti Val í fyrri hálfleik um dag
inn og fékk ekki eins mikið út úr
Framhald á bls. 15
Svndið 200 metrana