Tíminn - 13.08.1966, Síða 2
TBMINN
.
...
S®'* ^ ÍHHl ”
Myndin er tekin af þingmönnunum sænsku í Námaskarði.
..: . :. ■ :■
(Tímamynd GPK)
Sænsku þingmennirnir
hafa ferðazt víða um land
LAUGARDAGUR 13. ágúst 1966
Störf rannsóknarráðs Noregs
fjölþættara en þess íslenzka
EJ-Reykjavík, föstudag.
Hér á landi eru 12 sænskir þing
menn og hafa þeir ferðazt um
landið og kynnt sér atvinnulíf og
þjóðlíf. Þeir komu hingað til lands
4. ágúst s. 1., og halda utan á mánu
dag.
Friðjón Sigurðsson, skrifstofu-
stjóri Alþingis, sagði blaðinu í
dag, að þingmennirnir hefðu kom
ið hingað til lands að eigin frum-
kvæði, en Alþingi hefði verið
þeim innan handar um skipulagn-
ingu ferðarinnar um landið.
Þingmennirnir hafa farið víða.
5. ágúst dvöldu þeir í Reykjavík
og skoðuðu alþingishúsið, Lista-
safn ríkisins og heilsuverndarstöð
ina, Reykjalund, hitaveituna og
Áburðarverksmiðjuna. Á sunnudag
fóru þeir upp í Hvalfjörð og skoð
1 1
IÞessi glæsilegi landferða
bíll er í eigu Siglufjarð
arleiðar, og fór sína fyrstu
áætlunarferð milli Reykja
víkur og Siglufjarðar í
síðustu viku. Bíllinn er hinn
vandaðasti að allri gerð og
er með loftþrýstiútbúnaði
sem dregur mjög úr hrist-
ingi á ójöfnum vegum, en
einnig má geta þess, að
hann er byggður fyrir
hægri handar umferð.
Áætlunarbíll þessi, sem rúm
ar milli 60 — 70 farþega,
er byggður í Þýzkalandi,
og er af Mercedes-gerð. Hér
sést bíllinn á veginum, sem
liggur upp að Siglufjarð
arskarði.
uðu hvalveiðistöðina þar, sem-
entsverksmiðjuna á Akranesi og
hraðfrystihús þar, og bændaskól-
ann á Hvanneyri, en um nóttina
gistu þeir í Bifröst. Á mánudag-
inn heimsóttu þeir Reykholt, en
héldu síðan til Þingvalla, Laugar-
vatns, Gullfoss og Geysis, en til
Reykjavíkur komu þeir um kvöld-
ið.
Styrkur veittur úr
Minningarsjóði dr.
Rögnvalds Péturs-
sonar
Stjórn Minningarsjóðs dr.
Rögnvalds Péturssonar til efl-
ingar íslenzkum fræðum hefur
veitt styrk að fjárhæð þrjátíu
og fimm þúsund krónur til Njarð
ar P. Njarðvík cand. mag. Kandí
datinn mun vinna að útgáfu á Sól
arljóðum með rækilegum skýr-
ingum og semja fræðilega rit
gerð um kvæðið.
f stjórn Minningarsjóðs dr.
Rögnvalds Péturssonar eiga sæti
prófessorarnir dr. Halldór Hall
dórsson og dr. Steingrímur J.
Þorsteinsson og háskólarektor,
prófessor Ármann Snævarr.
Styrknum er úthlutað á 89. af-
mælisdegi dr. Rögnvalds Pét-
urssonar, og er þetta þriðja veit
ing úr sjóðnum.
Á þriðjudaginn dvöldu þeir í
Reykjavík, en daginn eftir flugu
þeir til Neskaupstaðar og skoðuðu
þar síldarplön og síldarverksmiðjur
en voru þó ekki svo heppnir að
fá að sjá síld, þar sem veiði var
þar engin. Þaðan héldu þeir til
Akureyrar og á fimmtudaginn
fóru þeir til Mývatns og fengu
ágætt veður.
í dag, föstudag, komu þeir til
Reykjavíkur, en áður höfðu þeir
skoðað verksmiðjur á Akureyri.
Þrír þingmannanna eru konur,
en auk þess hafa sex þingmenn
eiginkonur sínar með í förinni.
Upphaflega voru þeir 13 talsins,
en einn þingmannanna varð að
halda heim til Svíþjóðar á mið-
vikudaginn.
Dagana 25. og 26. ágúst n- k. verð
ur þing Flugmálasambands Norð
urlanda haldið í Reykjavík.
Flugmálasambandið var stofnað
26. jan. 1963, og eru öll flugmála
félög Norðurlandanna í því.
Flugmálafélag íslands mun
annast þetta fjórða þing, og hið
fyrsta hér á landi, og munu sækja
það tveir fulltrúar frá Danmörku
tveir frá Finnlandi, þrír frá Nor
egi, og tveir frá Svíþjóð.
EJ-Reykjavík, föstudag.
Hér á landi er staddur um
þessar mundir E. Fjellbirke
land, yfirmaður „Hovedkomité-
en for norsk forskning“ í Nor-
egi, í boði Rannsóknarráðs rík
isins og menntamálaráðherra. Er
nefnd sú, sem Fjellbirkeland er
framkvæmdastjóri fjTÍr, nýkomin
á laggirnar og er ráðgefandi um
skipulag og fjárveitingar til „raun
sókna. Nær verksvið nefndar
innar til allra rannsókna, og er
því nokkuð víðtækara en verk-
svið hins íslenzka rannsóknar-
ráðs.
Fjellbirkeland skýrði blaða-
mönnum í stórum dráttum
frá skipulagningu rannsóknar-
mála í Noregi, en Steingrímur
Hermannsson, framkvæmdarstj.
Rannsóknarráðs ríkisins, og pró
fessor Magnús Magnússon, for
maður framkvæmdanefndar
Rannsóknarráðs, kynntu hann
fyrir blaðamönnum. Er Fjell
birkeland þjóðhagsfræðingur að
mennt og hefur um árabil verið
framkvæmdastjóri eins af þrem
rannsóknarráðum Noregs —
„Norsk almennvitenskaplig forskn
ingsrád".
Fjellbirkeland sagði, að í „Hov
edkomitéen" væru 18 menn, sem
valdir væru af ríkisstjórn
inni. Væru nefndarmenn sér-
fræðingar á sviði vísinda, atvinnu
lífs og stjórnunar, og ættu að
vera sjálfstæðir í afstöðu sinni
og ótengdir stofnunum eða sam
tökum. Verksvið nefndarinnar
væri að gera tillögur til ríkis
stjórnarinnar um skipulagningu
rannsóknarmála og fjárveiting
ar til þeirra.
Ríkisstjórnin norska hefur sér
staka rannsóknarmálanefnd, sem
í eru fimm ráðherrar. Eru
tillögur yfirnefndarinnar þar
Á þinginu hér verða mörg mál
til umræðu enda löngu sannað,
og viðurkennt, að flugmála-
félögn hafa verið og munu verða
sá ræðari, sean flugmálum land
anna veitir hvað bezt og kem
ur þeim í höfn. Flugmálafélög
um allan heim miðla hvert öðru
mikilli þekkingu og reynslu,
og Flugmálafélagi íslands er
mjög gagnlegt að halda _ við
þau traustum tengslum. Á hin
um Norðurlöndunum eru flug
málafélögin tiltölulega mann
margar og fjársterkar stofnan
ir, og þar sem Flugmálafélag ís
lands hefur ekki bolmagn til að
fylgja öðrum eftir, hefur það tíð
um falið hinum Norðurlöndun
um umboð sitt. Hafa þau sýnt mik
inn skilning á sérstöðu okkar og
reynzt hið bezta í hvívetna.
Svo skemmtilega vill til, að
Flugmálafélag fslands er 30 ára
25. ágúst. Afmælisins verður þó
ekki minnzt fyrr en á Flugmála
hátíðinni, sem haldin verður í
haust. f Flugmálafélag íslands
hafa þeir jafnan skipað sér,
sem flugi og flugmálum unna.
Má t.d. nefna núverandi flug-
málastjóra, Agnar Kofoed-
Hansen, sem var fyrsti for
seti félagsins, og síðan má áfram
benda á menn í öllum greinum
flugsins, hvort heldur um er að
ræða áhuga- eða atvinnumenn.
teknar fyrir, og framkvæmda
stjóri hennar, Fjellbirkeland,
situr fundi þessarar ráðherra
nefndar. Er skipulagið því,
nokkuð öðruvísi í Noregi en
hér á landi.
Fjellbirkeland sagði, að aðal
tilgangurinn með stofnum þess
arar yfirnefndar væri að móta
heildarstefnu í rannsóknarmál
um.
Framkvæmdastjórinn hélt fyrir
lestur um þróun rannsókn
armála í Noregi og sérstaklega
þá hlið þeirra, sem að skipu
lagí snýr í Háskólanum s. 1.
fimmtudag. í dag sat hann
fundi með fulltrúum úr Rann
sóknarráði og Vísindasjóði, og
var menntamálaráðherra þar við
staddur, en hann er formaður
Rannsóknarráðs.
Leikvöllur opnaður
í Grundarfirði
BB—Grundarfirði, fimmtudag.
Á mánudaginn var hér opnaður
nýr leikgæzluvöllur. Það var
kvenfélagið GLEYM-MÉR-EI í
Grundarfirði, sem barizt hefur
fyrir smíði leikvallarins. Á
leitoyellinum eru öll helztu
tæki, rólur, sandkassar, vega
sötl, og - rennibraut. Tvær stúlk
ur gæta barna frá klukkan
1—6. Völlurinn er troðfullur alla
daga, enda var enginn leikvöll
ur fyrir á staðnum.
Sigurbergur
Magnússon,
Steinum, fimmtug-
ur í dag
Hinn góðkunni bóndi Sigur
bergur Magnússon, Steinum und-
ir Eyjafjöllum er fimmtugur í
dag. Sigurbergur er þekktur í
sinni sveit og víða sem hinn mesti
greiðamaður, hestamaður og höfð
ingi heim að sækja. Munu vissu
lega margir á þessum afmælisdegi
hans, hugsa hlýtt til hans, og árna
honum allra heilla.
Syndið 200 metrana
ÞING FLUGMÁLASAMBANDS
NORÐURLANDA HALDIÐ HÉR