Vísir - 14.05.1975, Qupperneq 6
6
Vísir. Miövikudagur 14. mai 1975.
VÍSIR
tJtgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiðsla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Síðumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 700 kr. á mánuði innanlands.
t Iausasölu 40 kr.eintakið. Blaðaprent hf.
Höggið reið
Svo fór, sem vænta mátti, að þjóðfrelsis-
hreyfingarnar svokölluðu létu ekki staðar numið
eftir að hafa lagt undir sig Kambodiu og Suð-
ur-Vietnam. Nú hefur það gerzt, að Pathet-Lao
skæruliðar, bandamenn sigurvegaranna i grann-
rikjunum tveim, hafa tekið völdin i Laos.
Laos hefur um áratuga skeið verið i hers hönd-
um. Þar hefur meira og minna geisað borgara-
styrjöld, þar sem þrjár fylkingar hafa átzt við, /
Pathet-Lao, sem kommúnistar hafa stutt, hlut- )
leysissinnar og hægri menn, sem oftast hafa hall- 1
azt til vesturs. Þessar fylkingar hafa átt það til að (
mynda samsteypustjórn annað veifið, en berjast /,
þess á milli. í samsteypustjórnunum hafa þær )
jafnan setið á svikráðum hver við aðra, eins og nú V
hefur bezt sézt siðustu daga. Bandamenn t
kommúnista voru fljótir að hrifsa völdin og reka )(
af höndum sér hægri sinnaða ráðherra. Souvanna 1
Phouma, forsætisráðherra, sem er hlutleysis- y
sinni, virðist nú vera bandingi kommúnista. /|
Nýskipaður landvarnaráðherra hefur öll völd i /i
hernum, og það ræður vafalaust úrslitum. Hann )(
er fylgismaður Pathet-Lao. Mikill straumur 1
flóttamanna er frá landinu og hægri menn sagðir y
flýja unnvörpum. Bandamenn kommúnista eru /(
þegar farnir að skipta um menn i mikilvægum )/
stöðum og treysta völd sin. V
Með þessum hætti hafa þjóðfrelsisöflin lagt V
undir sig Indó-Kina-skagann. Ekki hefur skort, y
að Bandarikjamenn hafi reynt' að stemma stigu /(
við útþenslu kommúnismans á þessum slóðum. í l
það hefur verið eytt miklu fé. Samkvæmt svokall- '
aðri dóminókenningu var það býsna mikilvægt, (
að kommúnisminn næði ekki undirtökunum i (
þessum rikjum, ella myndi hann ná enn lengra og ,
hrifsa enn fleiri lönd. Sá ótti er ekki ástæðulaus, '
að eftir að kommúnistar og bandamenn þeirra
hafa náð þessum rikjum, muni þeir búa sig undir
frekari landvinninga.
Þótt þessar hreyfingar séu að ýmsu leyti ólik- V
ar, munu þær tvimælalaust vinna saman i stuðn- «V
ingi við skyldar hreyfingar i nálægum löndum. ((
Pathet-Lao menn hafa löngum ráðið lögum og /(
lofum i austurhluta Laos, en þar hefur verið hluti
hins svokallaða Ho Chi-Minh vegar, sem hefur
verið lifæð hers Norður-Vietnama og þjóðfrelsis- (
hreyfingarinnar i Suður-Vietnam. Valdatakan i ;
Kambodiu og Suður-Vietnam hefur tvimælalaust
verið kornið, sem mælinn fyllti, og gefið Pat- (
het-Lao það, sem til þurfti. (
Af rikjum Indó-Kina hefur Laos ekki notið frið- (
sældar fremur en grannriki þess. Japanar réðust (
inn i landið á striðsárunum. Laos varð sjálfstætt '
eftir striðið, en skömmu siðar var Pathet-Lao (
hreyfingin stofnuð og borgarastyrjöld brauzt út. (
Nú um skeið hefur samsteypustjórn verið (
reynd undir forystu hlutleysissinna, sem voru (
sem sáttasemjarar i deilum vinstri og hægri
sinna. Vita mátti, að fylkingarnar sætu ekki lengi (
á friðarstóli. Kommúnistar biðu færis og ráku
hnifinn i bakið á samstarfsmönnum sinum, um
leið og færi gafst.
Miðað við fyrri reynslu þýðir þetta, að hlutleys-
issinnar eru varnarlaus fórnarlömb kommúnista,
þegar þeir hafa ekki lengur vörn hægra megin.
— HH
Tony Benn-
draumóra-
maðurinn,
sem er
stundum
nefndur
„Dracula"
iðnaðarins
Fyrrverandi enskur lávarður, sem afsalaði sér
titlinum til að helga sig stjórnmálum, er í farar-
broddi róttækrar vinstrihreyfingar, sem vill koma i
kring byltingu i iðnaði Breta. — Hann er um leið
miðdepill þeirrar stjórnmáialegu og efnahagslegu
ólgu, sem setur svip sinn
ar.
Þetta er Anthony Wedgewood
Benn — stundum nefndur Tony
Benn — hinn fimmtugi iðnaðar-
ráðherra I stjórn Harolds Wilsons
og Verkamannaflokksins.
Dag eftir dag sætir hann árás-
um stjórnmálaandstæðinga sinna
og fréttaskýrenda, sem skiptast á
um að skrifa um hann eða verð-
bólguna og fallvalt gengi
sterlingspundsins.
Benn er þeirrar skoðunar, að
frjálsu framtaki hafi mistekizt að
sjá iðnaðinum fyrir nauösynleg-
um fjárfestingum og skilið við
verksmiðjurnar með úrsérgengn-
ar vélar og afdankaðar fram-
leiðsluaðferðir.
Hann vill lög, sem færi stjórn-
inni I hendur meira vald yfir fjár-
festingu og geri framkvæmda-
stjóra fyrirtækja minna ábyrga
gagnvart hluthöfum en hins veg-
ar háðari áætlanasmiðum þess
opinbera og stéttarfélaganna.
Hann er algerlega andvigur
á Bretland þessar vikurn-
mmmm
(Jmsjón: G.P.
þvi, aö atvinnurekendur gripi til
uppsagna á starfsfólki til þess að
tryggja fyrirtækjunum arð, og er
eindreginn talsmaður aukinna
rlkisafskipta og þjóönýtingar.
Þessum boðskap hans hefur
verið tekið af fullum fjandskap
fésýslumanna og einkarekstrar-
postula, og að fordæmi íhalds-
flokksins kalla þeir þessar hug-
myndir hans „Bennsku.”
Það þykir ekki ósennilegt, að
Tony Benn eigi fyrir höndum bar-
áttu upp á lif eða dauða sinn I
stjórnmálallfinu við hægfara-
sinnaðri leiðtoga Verkamanna-
flokksins, sem óttast að bægsla-
gangur hans geti velt fyrir þeim
bátnum. — Menn vita, að Wilson
er ráðinn I að herða á flokksagan-
um, þegar atkvæðagreiðsl-
an 5. júnl er hjá liðin. Þá greiða
Bretar atkvæði um, hvort þeir
vilja vera áfram I Efnahags-
bandalagi Evrópu.
Fram til þessa hefur Wilson
gefið ráðherrum slnum frjálsar
hendur um að vera á móti stefnu
sinnar eigin stjórnar, en hún
mælti með þvl viö kjósendur, aö
þeir greiddu atkvæði með aðild.
— Benn er ákafur andstæðingur
EBE, sem hann telur þröskuld i
vegi sósfalisma I Bretlandi.
Flestir fjölmiðlar Breta, sem
þykja aö meirihluta til Ihalds-
samir, hafa lýst Benn sem fáráð-
um hugsjónamanni, er stofni
efnahagsllfi þjóðarinnar I hættu á
annars þrengingatlmum.
Það hefur gengið svo langt, að
hann hefur verið kallaður „Dra-
cula,” sem sjúgi blóðið úr iðnaö-
inum, er berjist I bökkum vegna
skatta og verðbólgu.
Sumir fréttaskýrendur hafa
tekið svo mikið upp I sig sem að
spá þvl, að Benn verði vikið úr
stjórninni af hægfarasinnaðri
keppinautum slnum innan flokks-
ins, sem muni vilja stemma stigu
við ásælni hinna róttækari eftir á-
hrifaaöstöðu þeirra I flokknum. —
Aðspurður um þetta I sjónvarps-
viðtali um slðustu helgi lýsti Wil-
son þessum ólátabelg slnum sem
manni á borð við einhvern spá-
mann bibllunnar, er boðaði nýja
Jerúsalem.
„Sérhver flokkur á einn slik-
an,” sagði Wilson. En hann lagöi
áherzlu á, að það væri miðstjórn
flokksins, sem mótaði stefnuna,
og að eftir þjóðaratkvæðið yrði
tekið hart á agabrjótum innan
flokksins.
Einn af elztu fréttaskýrendum
London Times, David nokkur
Wood, lýsti Benn nýlega I grein á
þennan veg:
....hættulegur stjórnmála-
maður, sem hrindir af stað
stjórnmálahreyfingu, sem hann
notar slðan til þess að stuðla að
efnahagslegu hruni Bretlands i
þvl skyni hugsanlega að reisa
samyrkjubúskap upp úr rústun-
um. Mætti þá líta á hann sem eins
konar Kerensky, sem kom
hugmyndum slnum I fram-
kvæmd.”
En stuðningsmenn Benns aftur
á móti halda þvl fram, að hann
hafi verið gerður að sektarlambi
einkaframtaksmanna, sem búnir
séu að koma öllu I óefni I iðnaðin-
um.
Wilson minnti sjónvarpsáhorf-
endur á — við ofangetið tækifæri
— að fjármagni hefði verið beint I
fasteignir og aðrar fjárfestingar,
sem ekki gæfu af sér arð, I stað
þess að beina þvl I iðnaðinn og
framleiðsluna.
I iðnaðarhéruðum norðanlands
er Benn mjög vinsæll og hylltur á
ferðum sinum meðal verkafólks.
Innan verkalýðssamtakanna nýt-
ur hann virðingar og trausts. Þar
sem verkalýðsfélögin eru megin-
bakhjarl Verkamannaflokksins,
verður sérhver frammámaður
flokksins, sem vill bola Benn frá,
að fara með gát.
Margar þeirra hugmynda, sem
Benn hefur kveikt, hafa verið
teknar upp I stefnu flokksins. Wil-
son er sjálfur stoltur af fram-
kvæmdaráði rlkisins, sem Verka-
mannaflokkurinn gekkst fyrir, að
sett var á laggirnar.
Benn segir, að auka verði fram-
leiðni brezks iðnaðar, en ekki gef-
ast upp og loka, þegar erlend
samkeppni harðnar og enginn
fæst hagnaðurinn. Hann hefur ró-
iö að þvl, að rlkið taki við rekstri
skipasmiðaiðnaðarins og flug-
vélaverksmiðjanna og dreymir
um, að tekin verði upp á sem
flestum sviðum samvinna vinnu-
þega og atvinnurekenda á hverj-
um vinnustað.
Hann hefur lent nokkuð á önd-
verðum meiði við fjármálaráð-
herra flokks slns, Denis Healey,
sem I baráttu sinni gegn verð-
bólgunni hefur hvatt til þess, að
launþegar slökuðu á launakröfum
og geymdu þær helzt um sinn,
meöan erfiðustu tlmarnir stæöu
yfir. — Menn kvlða þvl, að til þess
að vinna bug á verðbólgunni verði
að gripa til harkalegra ráðstaf-
ana og þeim muni fylgja aukið at-
vinnuleysi.