Vísir - 14.05.1975, Blaðsíða 16
vísm
Miðvikudagur 14. mai 1975.
Helgar-
drykkja
vegna
verk-
falls
Sennilegast veldur verkfallið i
Sem ents verksmiðjunni mestu
um, að ölvun á Akranesi I gær-
kvöidi var eins og um helgi. Að
sögn lögreglunnar voru þrir settir
inn, en fangageymsiur iögregl-
unnar rúma ekki mcira með góðu
móti.
Gamla fangageymslan, sem er
ofarlega I bænum, er búin fimm
fangaklefum, en vegna skorts á
geymsluhúsnæði eru tveir notaðir
sem geymslur.
NU er unnið að innréttingu nýs
fangahúss við lögreglustöðina á
Akranesi og verða þar sex klefar.
Til stendur að ljUka við að inn -
rétta fangahúsið fyrir iþróttamót
Ungmennafélags íslands, sem
hefst 11. júli.
— JB
Engin-
manna-
mót
ákveðin
um
hvíta-
sunnuna
„Hvítasunnan er svo snemma
i ár, að mjög mörgum skólum er
enn óiokið. Veður og gróöur
leyfa það heldur ekki aö fariö sé
með stóra hópa á einhverja
staði,” sagði Reynir G. Karls-
son æskuiýðsfulltrúi, þegar við
höfðum samband við hann i
morgun og spurðum frétta um
mót eða skemmtanir um hvita-
sunnuna.
Hvltasunnan er um næstu
helgi. En þó að ákveðið hafi ver-
ið að standa ekki fyrir neinum
sérstökum mannamótum þessa
helgi þá ætti eitthvað að vera
fyrir fólk að gera heima fyrir.
Skrifað hefur verið til Iþrótta-
forystunnar og rikisútvarpsins,
og óskað hefur verið eftir þvi að
útvarp og sjónvarp hefðu m.a.
létt efni á dagskrá sinni og að
talsvert yrði um að vera i íþrótt-
unum. Margt ætti því að vera I
gangi, sem getur stytt fólki
stundirnar þessa löngu helgi.
— EA
Lœrbrotnaði
Ungur piltur lærbrotnaði, er
hann varð fyrir bii á hjólinu sinu á
mótum Reykjavikurvegar og
Hjallabrautar á mánudaginn.
Pilturinn var fiuttur á sjúkrahús,
þar sem hann iiggur enn.
— JB
Hitaveitan á
Akranesi:
Stöðvar bóndinn
hitaveituboranirnar?
Boranir Akranesbæjar
eftir heitu vatni í landi
Leirár gætu stöðvazt á
miðnætti annað kvöld, ef
ekki hafa tekizt
samningar milli bóndans
á Vestri-Leirárgörðum og
bæjarsjóðs.
Málið snýst um skaða, rask,
óþægindi og slysahættu er
bóndinn telur sig hafa orðið
fyrir vegna mikillar umferðar
þungavinnutækja um landar-
eign hans af völdum fram-
kvæmdanna I landi Leirár.
Kröfur i mörgum liðum eru
settar fram, þar sem krafizt er
lagfæringa á vegum á landar-
eigninni, hreinsun úr áveitu-
skurðum, er spillzt hafa vegna
ofaniburðar, lagfæringar á
hliðstólpúm, slitnum simalln-
um, vegarköntum o. fl. Eins
hefur lögfræðingur bóndans
farið fram á 812 þúsund krónur i
bætur og fyrir afnot af landar-
eigninni..
Ef ekki verður gengið að kröf-
um þessum hefur þvi verið
hótað, að veginum um landar-
eignina verði lokað, sem hefði
það i för með sér að fram-
kvæmdir <á Leirá myndu
stöðvast. -JB.
Inúk-mennirnir gera sannarlega garöinn frægan I Frakklandi um þessar mundir. Og þaö veröur ekki látið nægja. Hópnum er boöiö til
margra staða eftir aö hátiðinni I Nancy lýkur.
ÍNÚK SLÆK í GEGN
— leikhópnum boðið til sýninga í fjölmörgum Evrópulöndum
tnúk gerir stormandi lukku
á leiklistarhátiðinni I Nancy i
Frakklandi. Verkið hefur fengið
geysilega góða dóma, og éftir
sýningar, sem ailtaf er fullt á og
meira en það, stendur fóik upp og
tekur upp umræöur um heims-
málin yfirleitt.
Tvö Norðurlönd voru valin til
þess að taka þátt i þessari hátið,
Island og Sviþjóð, og óhætt er að
segja, að Sviþjóö hafi alveg fallið
i skuggann. Aðeins það að vera
valin til þess aö vera þátttakandi
þykir mjög gott, enda er þarna
valiö lið vlðs vegar að úr heimin-
um.
„Eitt það bezta við þetta er
lika, að okkar er ekki aðeins getið
I blöðum, þar sem við fáum góða
dóma, heldur náum við líka
persónulegu sambandi við áhrifa-
mikið leikhúsfólk hvaðanæva úr
heiminum”, sagði Brynja Bene-
diktsdóttir, þegar við höfðum
samband við hana i Nancy i
Frakklandi i morgun.
En það er ekki allt búiö með
þessu. Eftir þessa hatíð hefur
hópnum verið boðið með ínúk til
Munchen, Frankfurt, Nizza og
Paris, sem er hápunkturinn. „Við
komum svo heim um miðjan
júnl”, sagði Brynja.
En enn er ekki allt búið. 1 haust
er þeim boðið til Madrid, til
Baskahéraöa á Norður-Spáni,
þaðan til Hollands og Sviss, og
svo er það rjóminn: leiklistar-
hátlð i Póllandi i október, þar sem
hittist leikhúsfólk frá beztu
leikhúsum heimsins.
Brynja kvaðst hafa orðið að fá
sér bók, þar sem hún skrifar nið-
ur öll þau boð, sem berast.
„En þetta hefur verið mjög
erfið vinna hjá okkur. Við höfum
einbeitt okkur aö sýningum, sem
hafa verið tvisvar á dag. Nú eig-
um viö hins vegar 5 daga fri og
notum þá til þess að sjá aðrar
sýningar. sem eru fjórar hvern
dag. Þær byrja klukkan tvö og sú
siðasta er kl. 11 á kvöldin.”
— EA
Neita að greiða vísitöluna
— deilur vegna íbúðarkaupa i Kópavogsmiðbœnum
Nokkrir fbúðarkaupendur i
nýja miðbænum I Kópavogi
hafa nú risið upp vegna ákvæða
um visitölutryggingu kaup-
verðs, sem kveðið er á um i
kaupsamningum.
Upphaflega stóð til að um-
getnar ibúðir, sem byggðar eru
á vegum Miðbæjarfram-
kvæmda s.f. yrðu afhentar i
haust. Afhendingin hefur þó
dregizt og verða ibúðirnar af-
hentar á morgun.
t upphaflegu samningunum
var tekið fram að verð ibúðanna
skyldi visitölutryggt og hækka
með hækkandi verðlagi, þar til
verðið yrði fullgreitt. Nú hafa
kaupendurnir aftur á móti séð
sig um hönd og benda á að ólög
legt 'sé samkv. lögum að gera
fjárskuldbindingar milli inn-
lendra aðila sem séu visitölu-
bundnar eða gengisbundnar,
nema með samþykki Seðla-
bankans. Seðlabankinn hafði
ekki gefið samþykki sitt i þessu
tilfelli enda eru slikar leyfis-
veitingar fátiðar þar sem slíkir
samningar myndu auka mjög
verðbólguna i landinu.
Þá krefjast kaupendurnir
einnig að þeim sé bættur af-
hendingardrátturinn, ef ekki
verður gefin viðhlitandi og full-
nægjandi skýring á honum.
Hér er einungis um hluta af
kaupendahópnum að ræða, en
aðrir munu þegar vera farnir að
greiða visitölubætur. Þar eö
báðir aðilar standa fast á rétti
sinum, er sennilegt, að mál
þetta fari fyrir dómstólana.
Mál, sem höfðað er vegna lag-
anna um visitölubindingu inn-
lendra samninga á sér fá for-
dæmi.og verður þvi fróðlegt að
sjá hvernig dómstólarnir snúa
sér i málinu.
—- JB