Tíminn - 14.08.1966, Blaðsíða 3

Tíminn - 14.08.1966, Blaðsíða 3
SVNNtTDAGUR 14. ágúst 1966 TIMINN TÍMANS B Franskur rithöfundur heldur því fram, að það hafi verið tví- fari Adolfs Hitlers, sem framdi sjálfsmorð í stríðslok 1945, en Hitler sjálfur sé í fullu fjöri einhvers staðar í Egyptalandi ellegar Argentínu. í nýútkom- inni bók segir þessi rithöfund- ur, sem heitir Roger Be'.pey, að maður að nafni Streicht hafi oft komið fram í nafni Hitlers, þeir hefðu verið svo sláandi líkir, að jafnvel Göring og Himmler hafi ruglazt á þeim. Hann segir og, að þegar allt hefði verið komið í óefni fyrir Hitler, hefði hann komizt úr landi ásamt Evu Braun og Bor- mann og hafi þau að öllum lik- indum komizt gegnum Rúss- land. * IOtto von Habsburg, sonur Karls I., síðasta Austurríkis- keisara, er kominn heim til Austurríkis eftir 47 ára útlegð. Þessi fyrrverandi ríkisarfi kom ekki til föðurlandsins með neinni pomp né prakt, heldur ók hann yfir landamærin á Volkswagen eins og hver ann- ar óbreyttur ferðamaður. Otto von Habsburg var barn að aldri, þegar faðir hans var út- lægur ger úr Austurríki eftir 640 ára valdatíma Habsborg- ara. Eftir síðari heimsstyrjöld- ina hefur Otto von Habsburg sótt fast eftir því að fá að snúa Það eru aðeins örfáar vikur liðnar síðan þau Frank Sinatra og Mia Farrow gengu í hjóna- band, en þau hafa þegar feng- heim til Austurríkis, en sósíal- demókratarnir í landinu hafa aftékið það með öllu, og borið því við, að hann myndi leynt og ljóst reyna að koma á keisara- veldi í Austurríki á nýjan leik. En nú hafa orðið stjórnarskipti í Austurríki og íhaldsmenn ein- ir sitja að völdum. Þeir hafa leyft útlaganum að hverfa heim til ættjarðarinnar, og treysta því greinilega, að hann hafi ekkert illt í hyggju. Heim- koma von Habsburg mælist þó mjög illa fyrir í landinu, eink- um hjá róttækari öflum. ★ Frú Lady Bird Johnson gengst nú fyrir mikilli fegrun- arherferð í landi sínu. Eitt af því, sem angrar hana alveg sér- staklega, eru þessi ógrynni af bílakirkjugörðum, sem eru víðs vegar um landið. Það hef- ur sýnt sig, að bara í Texas eru 1.578 bílakirkjugarðar. ★ Bráðum fara bifreiðaverk- smiðjur að sýna nýju árgerð- irnar af framleiðslu sinni og í Bandaríkjunum er framleiðsiu á árgerð 1967 að mestu lokið. Aðeins einn bill af þeirri árgerð er enn í fram- leiðslu, en það er Mustaenge, sem Ford framleiðir enn, en salan á þeirri bifreiðategund hefur gengið sérlega vel, og mun Ford ekki hætta fram- leiðslu á árgerð 1966 á hon- um fyrr en í síðustu lög. ið nýjan fjölskyldumeðlim. Þetta er lítill hvítur hvolpur af afar góðu kínversku hunda- kyni, og fengu þau hann i Síðan að Peter Lawford skildi við Pat Kennedy er lög- reglan í Santa Monica í Kali- forníu, þar sem hann býr, ekki eins hliðholl honum og áður. Meðan hann var giftur Pat, leyfðu þeir kofta að setjast á baðströndina fyrir framan heimili hans, hvenær, sem þeim hjónum þóknaðist. Um daginn ætlaði svo Peter að fá lend- ingarleyfi fyrir kofta hjá lög- reglunni, en lögreglan lézt ekki þekkja hann og sagði: „Hvaða Peter“, þegar honum var meinað um lendingarleyfi, reiddist hann og skipaði koft- anum að lenda þrátt fyrir allt, en þetta endaði með þvi, að eigandi farartækisins var dæmd ur fyrir óleyfilega lendingu. Hann fékk 10 daga skilorðs- bundinn dóm en Peter Law- ford svaraði því til, að fyrst allt hefði verið í lagi að lenda með fyrrv. forseta þarna á ströndinni, þá ætti hann alveg eins að hafa leyfi til þess. ★ Lengi var notazt við „Litlu gulu hænuna,“ þegar kom til þess að kenna börnum að lesa, en nú er ekki lengur sú aðferð látin nægja, því að nú er kom- in á markaðinn bók, sem ætl- uð er til að kenna foreldrum að kenna börnum að lesa. Það eru auðvitað Bandaríkjamenn, sem ríða á vaðið með þetta snillibragð, og virðist bókin njóta mikilla vinsælda, því að síðan hún kom út 1964 hafa selzt af henni 70 þús. eintök. brúðargjöf frá Elizabeth Tayl- or. Þau hjónin eru ennþá í London, en þangað fóru þau í brúðkaupsferð. Þessi vigalegi náungi, segist vera ókrýndur konungur Síg- auna, en réttu nafni heitix hann Gus Symeon. Hann var fyrir skömmu dæmdur fyrir að ★ Það síðasta, sem haft er eft- ir hinum fræga hnefaleika- kappa Cassíus Clay, sem nú er 24 ára gamall, er „Einhvers staðar er 10 ára gamall strák ur, sem á eftir að slá mig i gúlfið.“ Þrátt fyrir þetta er Cassíus í bezta skapi, enda er hann nýbúinn að verja heims- meistaratitil sinn í þungavigt. ★ Michel sonur Chaplin var lengi vel svarti sauðurinn í fjölskyldunni, uppreisnargjarn ónytjungur, sem þóttist vera listamaður. Hann kvæntist ung ur rithöfundi, Patriciu að nafni og þau hafa eignazt tvö börn Timoty og Christian. Fyr ir rúmu ári afneitaði Chaplin Michel syni sínum vegna óreglu hans og leti. Nú er hins vegar svo komið, að pilturinn hefur tekið á sig rögg og er farinn að vinna eins og maður, en svo virðist sem faðir hans hafi tck- ið hann í sátt. Hins vegar hef ur gamli maðurinn ekki hirt neitt um að heilsa upp á tengdadóttur sína og harna- börn. ★ Brúðkaupsferð þeirra Bri- gitte Bardot og Giinther Sachs hefur verið hreinasti sælu- draumur. Þau dvöldu lengi á Kyrrahafseyjum sleiktu sólskin- ið og nutu þess að vera ást- fangin. Brigitte lét ekki sjá sig öðruvísi en á bikini-baðföt- um ellegar í indverskum sari. Nú eru þau farin til Acapulco í Mexico, og ætla að dveljast þar um nokkra hríð. Brátt verð ur þessi sælutíð þó á enda, því að Brigitte þarf að fara að vinna á ný, i kvikmynd, sem tekin verður í Skotlandi. Mað- ur hennar byrjar þá auðvitað á sinni fyrri iðju, að gera ekki nokkurn skapaðan hlut. hafa gabbað sex flugfélög með því að hringja og panta svo og svo mikið af farseðlum, „bara til að gera at.“ Fyrir skömmu kom skip til hafnar í New York og farmur þess voru alls konar dýr frá Afríku, sem fara átti með í dýragarða víðs vegar um Banda ríkin. Þegar skipa átti farm- inum á land kom í ljós, að gíraffarnir höfðu ekki verið rannsakaðir af dýralæknum, og því var ekki leyft að flytja þá inn í landið. Nú voru góð ráð dýr, ekki var hægt að hafa dýrin um borð í skipinu til langframa og hótuðu eigend- ur þess að varpa þeim fyrir borð. En sem betur fór fannst lausn á þessu máli, og voru dýrin send á dýralæknastofn- un í borginni, þar sem þau verða rannsökuð gaumgæfilega í tvo mánuði. ★ Einn af útsendurum Hitcb- cosks rakst á snorta sænska blondínu og réði hana til að leika í einni af hrollvekjum meistarans. Eftir skamma dvöl í Hollywood hitti hún Chris, son Bing Crosby og er þau höfðu þekkzt í níu daga, giftu þau sig með pomp og pragt. Blaðamaður hafði tal af þeim 13 dögum eftir brúðkaupið, og þá sögðust þau ennþa vera ham ingjusöm. ★ Richard Specks, sem myrti 8 hjúkrunarkonur í Chicago nú fyrir skömmu reyndi að fremja sjálfsmorð í síðustu viku, en það tókst að bjarga honum. Ein hjúkrunarkona, sem að- stoðaði við björgunaraðgerðina heitir Ahirley Azares, og hún var áður skólasystir og bezta vinkona eins af fórnardýrum Specks. „Ég varð að vera við- stödd og hjálpa til, undan þvi gat ég ekki skorizt. En ég gat ekki horft á hann,“ sagði Shir- ley að aðgerðinni lokinni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.