Tíminn - 14.08.1966, Side 5

Tíminn - 14.08.1966, Side 5
1 SUNNUDAGUR 14. ágúst 1966 TÍMINN s Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benedtktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og IndriSi G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjómar: Tóimas Karlsson. Aug- lýsingastj.: Steingrímur Gíslason. Ritstj.skrifstofur i Eddu- húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur, Bankastræti 7. Af- greiðslusími 12323. Auglýsingasimi 19523. Aðrar skrifstofur, simi 18300. Áskriftargjald kr. 105.00 á mán. innanlands — f lausasölu kr. 5.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. Fiskveiðilögsagan Samkvæmt athugun alþjóðanefndar á íslenzka þorsk- stofninum á sér stað rányrkja á stofninum, og eru það aðallega útlendingar, sem þar eru að verki. Niðurstaða rannsöknarnefndarinnar var sú, að ungþorskur væri 19% í afla íslendinga, en hvorki meira né minna en 82% í afla útlendinga. Þessar niðurstöður voru birtar á s.l. vetri og þá nokk- uð umræddar, en síðan hafa þær alveg legið í þagnar- gildi, og er það furðulegt um slik ótíðindi. Hér er um að ræða eina aðalundirstöðuna undir efna- hagsafkomu okkar á þessu landi. Og þessi tíðindi hljóta að kalla á aðgerðir af okkar hálfu til verndar þorskstofnin um. Þar liggur beinast við frekari útfærsla fiskveiðilög- sögunnar og með þau vopn á hendi, sem niðurstöður hinnar alþjóðlegu nefndar á íslenzka þorskstofninum mundum við geta fært út fiskveiðilögsöguna, þar sem þær aðgerðir væru ekki aðeins ókkur í hag, heldur öll- um þeim, sem fiskveiðar stunda í Norður-Atlantshafi og þeirra, sem fisks, er þar veiðist, neyta. Með landhelgissamningnum við Breta bundum við hins vegar á okkur fjötur og getum ekki lengur fært út fisk- veiðilögsöguna nema með samþykki Breta eða blessun al- þjóðadómstólsins í Haag. Hætt er hins vegar við, að rétt- arþróun í þessum efnum verði hægari en við mundum kjósa. Á þinginu í vetur lagði Ólafur Jóhannesson o fl. fram þingsályktunartillögu um kosningu 7 manna nefndar. er ynni að því ásamt ríkisstjórninni að afla viðurkenning- ar á rétti íslands til landgrunnsins alls. í greinargerð með þessari tillögu sagði m.a.: „Ljóst er af þessu, að möguleikar íslendinga til frekari landhelgisútfærslu og til friðunaraðgerða á landgrunninu eru mjög komnar undir því, hver þróun þjóðréttarreglna verður á þessu1 sviði. Skiptir því miklu, að fylgzt sé sem allra bezt með réttarþróuninni í þessum efnum og reynt sé með öllum tiltækum ráðum að stuðla að hagstæðri réttarþróun- En á því leikur enginn vafi, að á undanförn- um árum hefur þróun réttarreglna um landhelgi verið okkur íslendingum hagstæð, bæði um víðáttu eiginlegrar fiskveiðilandhelgi og um rétt ríkja yfir landgrunninu, hvort heldur er til rannsókna eða nýtingar náttúruauð- linda þar. Hitt er einnig víst, að með staðfastri baráttu sinni í landhelgismálinu áttu íslendingar drjúgan þátt í þeirri þróun. Þó að mikið hafi áunnizt með útfærslu landheJgmnar fer því fjarri, að framtíðarhagsmunum íslenzku þjóðar- innar á því sviði sé þar með fullnægt. Það er ekki fullur sigur unninn, fyrr en viðurkenndur hefur verið réttur þjóðarinnar yfir fiskimiðum landgrunnsins, svo að hún geti sett þær reglur um fiskveiðar þar og friðunaraðgerð- ir, sem þörf er á til verndunar fiskstofnum og varnar gegn ofveiði. En það mun nú samdóma álit allra, er gerst þekkja til, að veiði á uppeldisstöðvum fiskstofnanna á landgrunninu utan núgildandi landhelgislínu gangi langt úr hófi fram. Er þar mikil og alvarleg hætta á ferð, jafn- vel svo að lífshagsmunir þjóðarinnar eru í húfi. Nútíma veiðitækni hefur stóraukið þá hættu. Rannsóknir munu sýna, að íslendingar veiða ekki nema örlítið brot af þeim ungfiski, sem þar er um að ræða. Það er því orðin brýn og aðkallandi þörf framkvæmda á grundvelli ályktunar Alþingis frá 5. maí 1959, sbr. yf- irlýsingu ríkistjórnarinnar í auglýsingu nr. 4/1961. t>að þarf að tryggja íslandi fulla lögsögu'yfir landgrunn JOSEPH ALSOP: Lyndon B. Johnson forseti er allt annað en smámenni Hann sætir mikilli gagnrýni, en hefur alltaf gert það, sem gera þurfti. SAGT ER, að einhver óþægi- legasti atburðurinn í Geít.ys- burg síðan að orrustan fræga var háð þar forðum, hafi gerzt, þegar Eisenhower for- seta voru birt úrslit skoðana könnunar, sem farið hafði fram meðal bandarískra sagn- fræðinga. Starfsmenn Eisenhowers í Hvíta húsinu vernduðu hús- bónda sinn fyrir flestum að finnslum. En í Gettysborg var hann algerlega óvarinn og dóm ur sagnfræðinganna um hæfni bandarísku forsetanna hæfði hann að heita mátti bemt ■ andlitið. Það var út af fyrir sig nógu slæmt, að sagnfræðingarnir töldu Eisenhower meðal hmna lökustu forseta, eða ekki til muna betri en Buclianan stjórnina. Hitt var þó ef til vill enn verra, að Harry S. Truman hlaut mjög svo lof- samlegan dóm. Tímabært er að rifja þettta atvik upp einmitt núna vegna þess, hvernig tíðkaðist að tala og skrifa um Johnson forseta. Sagt er að bandarisku * þjóð- inni geðjist hvorki að Lyndon B. Johnson né treysti honum. Okkur er ennfremur sagt, að jafnvel þeir, sem fastast fylgja stefnu Johnsons, sýni ehgan áhuga á honum sem manni. Sá, sem trúir þessum orðrómi (og vafalaust hefur hann töluverð an sannleika að geyma) dreg ur sennilega af þessu þá álykt- un, að forsetinn sé í raun og veru mjög illa staddur. MESTAR líkur eru þó til, að hver sá, sem þannig ályktar, fari í hæsta máta villur vegar ins. Ferli Johnsons forseta svipar á margan hátt til feriis Trumans. Á öðru ári fyrra kjörtímabils Trumans var hægt að fara um landið þvert og endi langt án þess að heyra talað hlýlegt eða vinsamlegt orð um húsbóndann í Hvíta húsinu. Truman var niðrað af öllum hugsanlegum ástæðum, en flest ar voru þær ómerkilegar og ristu grunnt. Af einhverj um ástæðum, sem lágu síður en svo í augum uppi, vakti hann ennfremur óslökkvandi hatur flestra viðskiptajöfra í landinu, en svo undarlega vildi til, að Johnson forseti er enn furðulega vinsæli meðal þeirra. En árið 1948, þegar kjósend urnir urðu að ganga til kosn- inga, kusu þeir Truman. Og þeg ar álits sérfræðinganna var leitað árið 1961, töldu þeir Tru man meðal beztu banda- rísku forsetanna. SANNLEIKURINN er sá, að til eru þrjár gerðir forseta. Fyrsta ber að telja aðgerða- lausu forsetana, svo sem Cal vin Coolidge og Dwight D. Ei senhower. Fari þeir með völd þegar vel árar, eru þeir venju lega vinsælir. Það kemur svo i hlut sagnfræðinganna að sýna fram á, að þeir hafi sáð lofti og uppskorið.felliþyl. í öðru ,lagi,,eru svo þeir fá gætu og hamingjusömu forset- ar, sem gæddir eru meðfædd- um krafti til að vekja þjóðina, glæða áhuga hennar og leiða hana í raun og sannleika. Þess ir menn — Roosveltarnir báð ir ,Kennedy og ef til vill Wils son á þessari öld, — hljóta að gjalda fyrir aðdáun og jafnvel ást meirihlutans með grimm úðugu og óslökkvandi hatri minnihlutans. í þriðja og síðasta lagi, eru svo forsetarnir, sem gera það, sem gera þarf. Telja verð- ur þá Harry S. Truman og Lyn don B. Joímson einhverja að- dáunarverðustu einstakl- ingana í þessum hópi, eða á borð við James K. Polk, hið sígilda dæmi, þó sitt með hvor um og allt öðrum hætti sé. Vera má, að þessir forsetar hljóti litlar þakkir samtíðar innar, þvi að þá brestur ein- hvern veginn aflið til að vekja þjóðina og veita henni leið- sögn í hinni sönnustu merkingu. En sagan telur þá hafa „unnið til alls hins bezta af lýðveldinu", eins og þar stendur. HELMINGURINN af erfið I leikum Johnsons forseta hefur alla tíð stafað af. gremju fullri andstöðu hans gegn þeirri glettni örlaganna að draga hann I þennan dilk. Snemma á valdaferlin sín- um, þegar fyrst var farið að hvísla um það manna á meðal, að hann skorti hæfni fyrir rennara sína til að afla sér ást sælda, kallaði hann Dean G. Acheson á sinn fund til trausts og halds. „Það er aldrei annað en tíma eyðsla að reyna að afla sér ástsælda,“ er sagt að hin.n hispurslausi Aches.en hafi sagt upp í opið geðið á forset- anum. „En þú ert gæddur öllum hinum beztu hæfileikum, sem nokkur maður gæti verið gædd ur til að gegna þinni stöðu. Ef þú aðeins einbeitir þér að því að gera það, sem gera þarf, mun allt fara eins vel og bezt verður á kosið." Þetta góða ráð var sniðgeng ið um aíllangt skeið. Forsetinn eyddi nálega jafnlöngum tíma í árangurslausa ímynd arleit og hann varði til lausn ar þeim margvíslega vanda, sem starfið færði honum að hönd- um. Afleiðingarnir hefðu jafn- vel getað orðið hinar hörmu- legustu, ef hann hefði verið minni maður, gæddur minni gáfum og ekki búið yfir jafn óhemju mikilli elju og raun ber vitni. EN Lyndon B. Johnson með alla sina margbreytní og and- stæður í eðli, með alla sína stór vöxnu kosti og galla, er allt annað en smámenni. Hann hef ur stundum verið seinn til og farið krókaleiðir, en ávallt að síðustu horfzt í augu við hinar illvígu staðreyndir, og gert það sem gera þurfti, hversu erfitt, sem það veitt ist. Og hann sætir einmitt hinni harðvítugustu gagn- rýni vegna þess, að hann hef ur gert það, sem gera þurfti. Sagan dæmir svo í máli hans og þeirra, se^ að honum ráð ast. Og sagan hefur ávallt reynzt góðvinur þeirra for- seta, sem gerðu það, sem gera þurfti, en hinir, sem að þeim hafa veitzt, hafa ýmist gleymzt með öllu eða verið sæmdir að leiðarlokum allt annað en lofsamlegum athugasemduiu, neðanmáls. inu. Undirbúning þess máls þarf aS hefja sem skjótast. Ákvarðanir í því máli þarf að undirbúa vandlega og á svipaðan hátt og landhelgisútfærslan var undirbúin á sínum tíma. Setja þarf kunnáttumenn til að kynna sér mál þessi öll og réttarþróunina sem rækilegast, svo og til að kynna öðrum þjóðum málstað íslands og stuðla að öllum tiltækum úrræðum að þeirri réttarþróun. sem stefnt er að með framangreindri Alþingisályktun. Það er þjóðarnauðsyn, að um mál þetta og allar ákvarðanir sé sem allra mest samstaða stjórnmálaflokkanna og þjóð- arinnar allrar. Framgangur málsins er ekki hvað sízt und- ir því kominn, að um það og þær leiðir, er ákveðið verður að fara, skapist fullur einhugur innanlands. Þess vegna er hér lagt til, að Alþingi kjósi 7 manna nefnd til þess að hafa forustu í þessu máli ásamt ríkisstjórninni. Með því er bezt tryggð samstaða. Allar framkvæmdir verða, eins og áður er sagt, að byggjast á vandlegum undirbún- ingi. Það þarf að leggja höfuðáherzlu á sérstöðu íslands í þessu máli. Það þarf að safna saman og hafa tiltæk öll rök fyrir málstað tslands. hvort heldur eru siðferði- legs, sögulegs, efnahagslegs eða lagalegs eðlis En höfuð- atriðið er. að eins og málum nú er komið. bolir það enga bið. að þegar í stað sé farið að vinna að því með festu og á skipulegan hátt að tryggja íslandi fulla lögsögu yfir landgrunninu svo sem stefnt var að með þingsályktun- inni frá 1959 og landgrunnslögunum frá 1948 “

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.