Vísir - 06.06.1975, Síða 1
2000 HUNDAR I
„HUNDALAUSRI BORG"
- SJÁ BLS. 3
Slagur milli
bílaleiganna
— baksíða
Neyðar-
símanúmer
— bls. 3
Stöðva verk-
föll kónginn?
— baksíða
Rútumeð
25 mönnum
valt
Rúta með um 25 menn innan-
borðs valt inni i Sigöldu i gær-
kvöldi um klukkan hálf átta.
Enginn slasaðist.
RUtan var að koma með
vinnuflokk i mat og ök hún
veginn utan frá svonefndum
Botnrásum, sem eru suðaustan
aðalbyggðarinnar á staðnum.
í brekku, sem er á veginum,
er jafnframt beygja. Þegar rút-
an ök þar um brast kantur og
lenti rútan við það út af vegin-
um. Hún var á lítilli ferð, þegar
óhappiö varð.
Rútubillinn valt ekki strax, en
þegar farþegarnir stóðu upp til
að komastút úr henni, féll hún á
hliðina. Mildi var, að enginn
skyldi slasast. Yfirbygging rút-
unnar sjálfrar skemmdist og
rúður brotnuðu.
—JB
Mildi var, að enginn skyldi slas-
ast, er þessi rúta, hlaðin farþeg-
um, valt inni i Sigöldu I gær-
kvöldi. — Ljósm. Þórður
Agústsson.
Afleiðingar
allsherjar-
verkfalls:
Varla lífsmark
í atvinnulífinu
— Ekkert liggur fyrir um undanþágur
Lifsmark verður varla
með atvinnulifinu skelli
allsherjarverkfall á
Það ótrúlega gerðist í Laugardalnum:
næstkomandi miðviku-
dag, eins og flest bendir
til að verði, nema
stjórnvöld gripi inn i.
Ekkert liggur fyrir um,
að rikisstjórnin stöðvi
verkfallið, að minnsta
kosti ekki enn sem kom-
ið er.
Ekkert gengur eða rekur á
samningafundum ASÍ og vinnu-
veitenda. Tillögum um frestun
verkfalls hefur verið hafnað.
Verkfallið mun ná um mestallt
land. Verksmiðjur stöðvast og
byggingarvinna, fyrir utan smá-
dútl, sem verktakar geta komið
við. Verzlanir lokast, einnig
heildverzlanir, nema þar sem
eigendur og fjölskyldur þeirra
geta haldið einhverri þjónustu
gangandi. ASB fer f verkfall, svo
að mjólkur- og brauðbúðir lokast,
nema venjulega eru veittar und-
anþágur fyrir mjólk til barnafjöl-
skyldna, að minnsta kosti ef
verkfallið stendur stutt. Eigendur
bakaria geta haldið einhverri
þjónustu uppi. Dagsbrún og
Framsókn fara I verkfall, svo að
almenn vinna verkamanna og
kvenna leggst niður. Stærri tog-
ararnir og farskipin eru þegar
stöövuð. Flug mun stöðvast. Þó
hafa stundum verið veittar ein-
hverjar undanþágur. Þá hafa
dagblöð oftast gengið á undan»
þágum VR, ef verkfall stendur
stutt. Vegna anna forráðamanna
hinna ýmsu verkalýðsfélaga við
samninga i rikisverksmiðjunum
og aðra samninga, liggur ekkert
fyrir enn um undanþágur.
Smærri togarar og bátar geta
fiskaö, en vinnsla i landi stöðvast
viðast hvar. Rikisstarfsmenn
hafa samið og halda að sjálfsögðu
áfram störfum. Rikisverksmiðj-
urnar og Alverksmiðjan starfa
áfram. Aðdrættir matvæla munu
fljótt stöðvast að kalla, og birgðir
ganga til þurrðar i þeim búðum,
sem afgreiða,
—HH
VIÐ SIGRUÐUM EINA BEZTU
KNATTSPYRNUÞJÓÐ HEIMSINS
Það ótrúlega gerðist i
gærkvöldi. Island sigr-
aði þjóðina, sem varð i
5. sæti i siðustu heims-
meistarakeppni i
Þýzkalandi i fyrra,
Austur-Þýzkaland.
Rúmlega 10 þúsund
manns urðu vitni að
þessu á Laugardals-
velli, og tugþúsundir
hlustuðu með öndina i
hálsinum á lýsingu
Jóns Ásgeirssonar i út-
varpinu.
Eftir leikinn mættust
menn hvarvetna, —
umræðuefnið alls stað-
ar var það sama,
landsleikurinn. Það
getur vart verið nein
tilviljun lengur, hversu
vel íslandi gengur i
knattspyrnunni, sigur
yfir einni sterkustu
knattspyrnuþjóð
heims, og jafntefli við
sömu þjóð i fyrrahaust
á heimavelli hennar.
Jafntefli við Frakka,
eina beztu knatt-
spyrnuþjóð Evrópu, og
naumur ósigur i fyrra-
haust hér heima gegn
Belgum.
—SJÁ
OPNU
MYNDIN: Tony
Knapp, landsliðsþjálf-
arinn enski, er hér toll-
eraður eftir leikinn.
Hann hefur náð af-
bragðs árangri með
landsliðið okkar og á
heiður skilið ekki siður
en leikmennirnir.
ÍÞRÓTTIR 1
/