Tíminn - 24.08.1966, Side 5

Tíminn - 24.08.1966, Side 5
MIÐVIKUDAGCR 24. ágúst 1966 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURtNN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og tndriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tóanas Karlsson. Aug- iýsingastj.: Steingrknur Gislason. Ritstj.skrifstofur i Edóu- húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur, Bankastræti 7. Af- greiðslusími 12323. Auglýsingasimi 19523 Aðrar skrifstofur, sfani 18300. Áskriftargjald kr. 105.00 á mán. innanlands — í lansasölu kr. 5.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. Fyrirtækin AtvmrmfyrirtæMn eru undirstaða hvers þjóðfélags. Þar fer fram sú verðmætasköpun, sem allir þjóðfélags- þegnar £á beint eða óbeint lífsframfæri sitt af. Vel rek- in og öflug fyrirtæld eru því forsenda velmegunar þjóð- félagsþegnanna 1 heild. Aukin velmegun fæst ekki nema mtíð eflingu fyrirtækjanna, bættum rekstri þeirra, auk- ini verðmætasköpun, þar sem verðmætaaukningin er meiri en aukning tilkostnaðarins við framleiðsluna, þ.e. aukin framleiðni. Aðeins þannig kemur meira til skipta á hverja vinnandi hönd. Framleiðniaukningin í nútíma- fjTÍrtækjum byggist fyrst og fremst á aukinni tækni, vél- væðingu og hvers konar hagræðingu í rekstri. Á þennan nndirstöðuþátt þjóðfélagsins leggja þjóðirnar nú æ meiri áherzlu á að efla með hvers konar ráðum. Hér á landi hafa kommúnistar og til skamms tíma Al- þýðuflokkurinn rekið heiftúðugan áróður gegn atvinnu- fyrirtækjunum og eigendum þeirra almennt. Rætur þessa áróðurs standa í stjómmálastefnum þessara flokka. Kommúnistar hafa stefnt að byltingu og viljað velta í rúst til að skapa grundvöll hennar. Sósíaldemókratar hafa stefnt að ríkisrekstri fyrirtækja. Áróður þessara flokka hér á landi gegn einkafyrirtækj- unum og eigendum þeirra, svo og lygaáróður gegn Fram- sóknarflokknum vegna stuðnings hans við samvinnu- hreyfinguna hefur valdið því, að mönnum, sem komizt hafa yfir atvinnutæki, hefur þótt allt að því óhugsandi annað en skipa sér undir merki Sjálfstæðisflokksins — og það jafnvel þótt það hafi verið fyrir atbeina og áhrif Fraipsóknarflokksins á atvinnumálalöggjöf landsins, að þeim var fært að eignast fyrirtæki. Af þessu stafa m.a. óeðlilega mikil áhrif Sjálfstæðisflokksins á íslandi bor- ið saman við íhaldslokkana á Norðurlöndum. Allt frá 1927 til valdatöku núverandi stjórnarflokka tókst Sjálfstæðisflokknum, þ.e.a.s. þeim, sem honum ráða, hins vegar ekki að koma stefnu sinni fram m.a. vegna sterkra áhrifa Framsóknarflokksins. 1960 gerð- ist Alþýðuflokkurinn hækja íhaldsstefnunnar og hefur hún nú fengið að sýna sig í framkvæmd. Menn skyldu ætla, að hagur fyrirtækjanna stæði með sérstökum blóma eftir þennan reynslutíma. Nú hafa menn rekið sig á, og vonandi ekki til þess að reka sig á aftur, því að sú reynsla, sem fengizt hefur, hefur reynzt dýrkeypt. Því hvernig er nú komið? Eitt iðnfyrirtækið af öðru hrynur, sjávarútvegur og fiskiðnað ur á heljarþröm, stjórnlaus óðaverðbólga ríkir, og hvers konar verðbólgubrask blómgast. Verðbólguframkvæmdir soga skipulagslaust til sín fjármagn og vinnuafl frá at- vinnufyrirtækjunum og þar í ofan búa þau við vaxtaokur vinnufyrirtækjunum, og þar á ofan búa þau við vaxta- okur og stranga reksturslánaskömmtun. — Og hvernig stendur á því, að „flokkur einkaframtaksins11 leikur „sína menn’” svo grátt? Svarið er: Hagsmunir þeirra, sem eiga og gera út Sjálfstæðisflokkinn. Þar ráða vissir stórir innflytjendur og fjármagnseigendur, sem hagnast af ófremdarástandinu, ferðinni. Augu fjölda atvinnurek- enda eru nú að opnast, og þeir sjá, að með Sjálfstæðis- flokknum geta þeir ekki átt samleið að óbreyttri stefnu. Meðal þeirra finnur stefna Framsóknarflokksins nú æ sterkari hljómgrunn, enda fellur hún í meginefni sam- an við þær ályktanir, sem samtök atvinnuveganna hafa gert um efnahagsmálin. TilWIWN WILLIAM TUCHY: Henry Cabot Lodge segir fjögur stríö háö samtímis í Vietnam Hann telur um árás að ræða af hálfu Norður-Vietnama, en þeir muni aldrei setjast að samningaborði, heldur draga sig þegjandi og hljóða- laust í hlé þegar ósigur blasi við HENRY CABOT LODGE sendiherra Bandaríkjanna í Vietnam var búinn að gegna þeirri stöðu í eitt ár að þessu sinni á laugardaginn var. Og hann er sannfærður um, að leið togar stjórnarinnar í Norður- Vietnam fáist aldrei til að setj- ast að samningaborði. Þetta er í annað sinn, sem hann er sendiherra á þessum stað, sem hefur stundum verið nefndur „kirkjugarður góðs orðstírs". Áður gegndi hann embættinu frá því í ágúst 1963 og fram í júní 1964. Lodge var sendiherra í Viet- nam hið fyrra sinn, þegar stjórn Diem féll og meðan á stjórn- málaóreiðunni stóð, sem fylgdi falli hennar. Frá því að hann tók við embætti hið siðara sinn hafa Bandaríkjamenn stöðugt verið að auka þátttöku sína í styrjöldinni og ennfremur má nefna þriggja mánaða stjórn- málakreppu í landinu í byrjun þessa árs. Lodge hefur reynt að gera sér grein fyrir fyrirætlunum valdhafanna í Hanoi í stríðinu í. Vietnam. Hann forðast að sjálfsögðu að birta skoðamr sín ar opinberlega, en þeir, sem gerst vita, segja hann sannfærð an um þessi þrjú meginatriði: Að Ho Chi Minh skrifi aldrei undir neitt, sem feli í sér játn- ingu á að þjóð hans eigi í styrj- öld við Suður-Vietnama, hvað þá að Norður-Vietnamar séu í þann veginn að bíða ósigur í þeirri styrjöld. Að valdhafarnir í Hanoi geri sér miklar vonir um að Banda- ríkjamenn verði veikir og tví- átta gagnvart styrjöldinni í Viet- nam að loknum þingkosningun- um í nóvember. Að uppreisninni ljúki ekki með því, að ieiðtogarnir í Hanoi ákveði að semja, heldur dragi þeir sig þegjandi og hljóðalaust í hlé, eins og kommúnistar gerðu á Filippseyjum, í Malaya og Grikklandi. LODGE trúir ennfremur statt og stöðugt, að Bandaríkjamenn heyi Vietnam-stríðið á rettum stað og á réttum tíma, gagn- stætt því, sem sumir gagnrýn- endur halda fram. Hann álítur, að einhvers staðar verði að stemma stigu við áleitni í Asíu, og telur Suðaustur-Asíu jafn æskilegan stað til þess og hvern annan. Sendiherrann er sannfærður um, að brýnir, bandarískir hags munir velti á því að sigur vinn- ist í styrjöldinni, sem sé rétt- mæt, bæði lagalega og siðferði- lega. Hann er og sannfærður um, að um árás Hanoi-manna sé að ræða og henni verði að síðustu hrundið. Henry Cabot Lodge var áður öldungadeildarþingmaður fyrir Republikana, í framboði sem varaforsetaefni og aðalfulltrúi þjóðar sinnar hjá Sameinuðu þjóðunum. Hann lætur í Ijós við vini sína, að fulltrúarnir hjá Sameinuðu bjóðunum virðast láta sér sjást yfir ákvæði stofn- skrárinnar, þegar þeir séu að ræða Vietnam-styrjöldina. Sam kvæmt stofnskránni beri Sam- einuðu þjóðunum að „stöðva árás“. Lodge lýsir því sem skoð un sinni, að ef talað sé um það í sölum Sameinuðu þjóðanna, að „stöðva árás“, ætli annar hver fulltrúi að falla í ómegin. Hann segir hina veiklundaðri fulltrúa heldur vilja nota orðið „útþenslu" en „árás“, sem að hans dómi er ekki nema rétt- nefni. Lodge er þeirrar skoðunar, að andstaðan í þinginu gegn stefnu forsetans ætti að fara að hjaðna, þar sem búið sé að rök- ræða skuldbindingar Banda- ríkjamanna rækilega fram og aftur. Vitað er, að sendiherr- ann er hlynntur eflingu Banda- ríkjahers í Vietnam á þeirri forsendu, að þess fjölmennari sem herinn sé, þess skammvinn ari verði styrjöldin og þess minna mannfallið, sem af henni leiði. Hann lítur svo á, að hæf- ir stjórnmálamenn eigi að geta skýrt þetta út fyrir kjósendum. VíÁfjiflftif s^djpírans . er munurinh á timamíuriúm tveim ur, sem hann hefur gegnt sendi herrastarfinu, jafn mikill og munurinn á svörtu og hvítu. Árið 1963 var viðleitni Banda ríkjamanna öll í molum og hver höndin upp á móti annarri. Stjórn Ngo Ding Diem var enn fremur að renna sitt skeið á enda. Lodge er enn sannfærð- ur um, að Diem hefði getað bjargað sér, ef hann hefði farið að ráðum sendiráðsins og þegið aðstoð þess. Nú er sendisveitin samhent og vinnur öll að einu marki, að dómi Lodge. Sendiherrann hefur stundum sætt gagnrýni fyrir að leggja meiri áherzlu á stjórnmálahlut- verk sitt en stjórnarhlutverk í sendisveitinni. Þeir, sem halda uppi vörnum fyrir hann, benda á, að sambandið við leiðtoga ríkisstjórnarinnar í Saigon sé höfuðhlutverk hans. Hann hafi auk þess á að skipa tveimur aðstoðarsendiherrum og fleiri hæfum starfsmönnum til að tryggja góða stjórn sendisveit- arinnar. Lodge er þakklátur Johnson forseta fyrir rausn hans í þeirri viðleitni Bandaríkjamanna, sem ekki beinist að hernaði, heldur friðsamlegri starfsemi. Hann er oft undrandi yfir þeirri gagn- rýni, sem forsetinn sætir af hálfu frjálslyndra demokrata. Hann hefur sagt í einkasamtali: „Ef það að hafa góðan heila og nota hann á nokkuð skylt við að vera gáfu- eða menntamaður, þá verður að telja Johnson for- seta til þess flokks manna“. Hvað framtíðina snertir lit- ur Lodge svo á, að fjórar styrj- aldir séu háðar samtímis í Viet- nam, en miði mjög mishratt. Hernaðurinn sjálfur gangi heldur vel, stjórnmálastyrjöld- in gangi betur en áður, enn sé all{ í tvísýnu i efnahagsstyrj- öldinni, en í glæpastyrjöldinni, eða baráttunni við hryðjuverk- in, bresti enn öll traust tök. Lodge telur brýnna en allt ann að að sigrast á ógnunum' og hryðjuverkum Viet Cong. Hanoi menn geri sér sennilega ljóst, að leikurinn sé tapaður þegar búið sé að draga „tennurnar úr drekanum". Sendiherrann hrósar Nguyen Cao Ky, forsætisráðherra, fyrir það, hvernig hann brást við í stjórnmálakreppunni í vetur. Hann telur forsætisráðherrann hafa sýnt góða hæfileika til að velja hentugan tíma. Hann hafi beðið eftir því að almenningur yrði þreyttur á herskáum mót- mælum áður en hann lét til skarar skríða. VITAÐ ER, að Lodge sendi- herra rennur stundum kalt vatn milli skinns og hörunds, þó að hann hafi ekki orð á því, þegar Ky marskálkur er að stæra sig frammi fyrir blaðamönnum og tala um innrás í Norður-Viet- nam eða virka mótspyrnu gegn Kína. Hinum ákaflynda forsæt- isráðherra er stundum nokkuð laus tungan, þegar hann ræðir við bandaríska blaðamenn og gætir þess þá etoki, hver áhrif ummæli hans hafi á vestræna menn, þegar þeir sjá þau á prenti. Sendiherrann telur Ky við- bragðsfljótan í starfi sínu og hafa orðið eins vel ágengt í um- bótum og við undirbúning kosn- inganna og hverjum öðrum, sem völ hefði verið á til starfs- ins. Sumir gagnrýnendur halda fram; að Bandaríkjamenn ættu að skipa hernaðarstjórninni fyr ir verkum, en Lodge lítur svo á, að ýtni Bandaríkjamanna í slíkum tilfellum geti gengið svo langt, að hún nálgist nýlendu- stefnu, og það teldi hann skað- vænlegt. Lodge er hlynntur kosningum til stjórnlagaþings 11. septem- ber. f einkasamtölum getur hann orðið þungorður um suma bandaríska blaðamenn, sem gagnrýna kosningaaðferð- irnar, sem stjórn Kys hyggst viðhafa. Hann lét eitt sinn svo ummælt, að þessir blaðamenn virtust ætlast til meiri aðgæzlu og öryggis við framkvæmd kosn inga meðal vanþróaðrar þjóðar, sem að sityrjöld stæði, en þeir gerðu kröfur til í Chicago-borg. Henry Cabot Lodge er 64 ára að aldri, en gæti útlits vegna verið 20 árum yngri. Hann reyn- ir að gefa sér tíma til að synda dálitið á hverjum degi og hlakk ar ævinlega til þegar honum gefst við og við tóm til að heim sækja Emily konu sína, en hún býr í Bangkok. Lodge hefur ekki á prjónun- um neinar fyrirætlanir um að hverfa frá starfi, en á því hef- ur leikið orð. Hann er alveg horfinn frá aliri þátttöku í stjórnmálabaráttu Republikana og ætlar að halda áfram starfi sínu meðan Johnson forseti tel ur sig þurfa á honum að halda.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.