Tíminn - 24.08.1966, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 24. ágúst 1966
TIMINN
15
Borgin í kvöld
Sýningar
MOKKAKAFFl — Myndir efUr Jean
Louis Blanc. Opið kl. 9—23.i>0
MENNTASKÓLINN — Ljósmynda-
sýning Jóns Kaldal. Opið
frá 16—22.
Skemmtanir
HÓTEL LOFTLEIÐIR — Matur fram
reiddur í Blómasal frá kl, 7.
HÓTEL SAGA — Matur framreidd-
ur í Grillinu frá kl. 7.
HÓTEL BORG — Matur framrelddur
í Gyllta salnuin frá kL 7.
NAUST — Matur frá kl. 7 Carl Bill-
ieh og félagar leika. Opið til
kl. 11.30.
INGÓLFSCAFÉ — Matur framreidd
ur milli kl. 6—8.
HÓTEL HOLT — Matur frá kl. 7 á
nverju kvöldi.
HÁBÆR — Matur framreiddur frá
kl. 6. Létt músik af plötum.
ÞÓRSCAFÉ — Nýju dansarnir í
kvöld, Lúdó og Stefán.
í TJALDI
Framhald af bls. 2.
upplýsingum, sem Tíminn
fékk í dag, eru ekki horfur
á öðru en þau verði að búa
í tjaldinu enn um sinn.
Faðir ungu konunnar,
Sveinn Sveinsson, hafði
samband við blaðið í kvöld
og kvaðst undanfarna daga
hafa leitað til allra hugsan
legra aðila hjá Reykjavíkur
borg, en hefði ekki fengið
neina úrlausn til handa dótt
ur sinni og tengdasyni aðra
en þá, að innanstokksmunir
þeirra hefðu verið teknir til
geymslu. Ekki vœri annað
sýnt en hjónm neyddust til
að búa í tjaldinu enn um
sinn með böm sin tvö, á
öðra og fjórða ári.
Sveinn kvað aðstæður
ungu hjónanna vera afar
slæmar, hvorki ættingjar
þeirra né kunningjar sæu
sér færi á að skjóta yfir
þau skjólshúsi, og þau hefðu
enga möguleika á því að
kaupa sér íbúð né heldur
taka á leigR eins og leigu-
skilmálum væri nú háttað.
MINNING
Framhald af bls. 7.
að sjálfsögðu þann heilaiga rétt,
sem Kristur boðaðí:
'Leitið og þér munuð finna.
Sveitaprestar hafa yfirleitt ekki
komizt hjá því að taka að sér ýms
almenn störf utan kirkju fyrir
sóknarbörn sín, t. d. í félagsmál-
um. Það hlaut því að koma í hlut
síra Eiríks að sinna slíkum störf-
um. Hann var snemma kosinn í
hreppsnefnd og átti sæti í henni
um tvo áratugi og um helming
þess tímabils var hann oddviti.
Hann var sýslunefndarmaður 1920
—27. f stjórn Kaupfélags Gríms-
nesinga meðan það starfaði og í
skattanefnd um nokkurra ára
skeið. Hann átti frumkvæði að
stofnun Hrossaræktarfélagsins
Grani og formaður þess meðan
það starfaði. Þá var hann formað-
ur Girðingafélags Ytritungunnar,
þar til það var lagt niður og ýms
fleiri félagsmálastörf hafði hann
á hendi, þó ekki verði talin hér.
Ótalið er þó virðingarmesta emb-
ætti hans: prófastsstarfið frá
1948—1955.
Þegar þess er gætt, hve mikill
málafylgjumaður síra Eiríkur var,
hlaut svo að fara, að einatt stæði
um hann allmikill gustur á mann-
fundum. En þess er þá skylt að
geta, að alla prestsskapartíð hans
voru hér menn, sem héldu líka
fast á málum og létu ógjarnan
hlut sinn að óreyndu. Tek ég, hvað
Sfml 22140
Hetjurnar frá Þela-
mörk
(The Heroes of Thelemark)
Heimsfræg brezk litmynd tek
in í Panavision er fjallar uœ
hetjudáðir norskra frelsisvtna
í siðasta stríði, er þungavatns
birgðir Þjóðverja voru eyðilagð
ar og ef til vill varð þess vald
andi að nazistar unnu ekki stríð
ið.
Aðalhlutverk:
Kirk ■ Douglas
Richard Harris
Ulla Jacobsson.
Bönnuð börnum innan 14 ára
Sýnd kl. 5 og 9.
íslenzkur texti.
Aukamynd: Frá heimsmelstara
keppninni í knattspymu.
HAFNARBÍÓ
Kærasti að láni
Fjörug ný gamanmynd í )tt
um með
Sandra Dee
Andy Williams
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
þetta snertir, minn hlut á mínar
herðar. En svo er fyrir að þakka,
að hægt er að deila, án þess að
til óvildar dragi og ósættis. Og
mörg merk mál skírast við skoð-
anamun og þurfa þess með, að þau
séu rædd. Þá geta hófsamlegar
deilur orðið nytsamar og orðið pip
ar á lífsins plokkfiski, eins og
Matthias sagði svo skemmtilega í
allt öðru sambandi.
Það lætur að líkum, að við síra
Eiríkur áttum mikið saman að
sælda og samstarf á svo langri
samleið. Hann fermdi mig á öðru
prestskaparári sínu og man ég
enn viss atriði úr fermingarfæð-
unni, þó flest sé gleymt. Fannst
mér þá, hann segja okkur börnun-
um vel til vegar. Hann lagði bless-
un sína yfir mig á mesta hamingju
degi lífs míns og síðustu blessun
yfir marga nánustu ástvini mína.
Við áttum líka náið samstarf um
málefni kirkjunnar á Torfastöð-
um, bæði sem aðstoðarmaður við
guðþjónustur og messugerðir og
ýmislegt annað, sem kirkjuna
snertL Og þegar ég nú lít til baka
um langan veg, við þessi leiðaskil,
er margs að minnast, sem vert er
að muna og þakka og orðið hefur
til ávinnings.
Þótt oft skini hamingjusól í
heiði yfir Torfastaðaheimilinu á
þessum tæpum 50 árum, sem þau
hjónin síra Eiríkur og frú Sigur-
laug dvöldu þar, þá dró fyrir sólu
dimmt sorgarský, er einkasonur-
inn Þórarinn Stefán, fluggáfaður
drengur, tók á barnsaldri banvænt
mein, sem hann barðist við til 17
ára aldurs, að yfir lauk. Engum
mannlegum mætti var auðið að
sigrast á þeim þungu örlögum, þótt
öðruvísi myndi e. t. v. horfa við
nú í slíku tilfelli, svo mjög sem
þekking manna hefur þokað fram
á leið. Þennan þunga harm bar
síra Eiríkur með mikilli karl-
mennsku og sálarþreki svo mjög
sem sorgarundin blæddi. Og þó
vissu allir, sem bezt þekktu hann,
að hann bar í brjósti undir brynju
hversdagsleikans, nærri barnslega
viðkvæmni.
Og enn sannaðist sem oftar, að
sjaldan er ein báran stök. Hálfu
öðru ári eftir að þau hjónin höfðu
fylgt einkasyni sínum til grafar,
urðu þau að fylgja sömu leið kær-
um fóstursyni, Kristni Jónssyni
frá Laug.
Annað þungt áfall urðu þau
Torfastaðahjón að þola. Um miðj-
an vetur 1945 kom upp eldur um
miðja nótt, svo magnaður, að íbúð
Simi 11384
„Fantomas"
Maðurinn með 100 andlitin.
Hörkuspennandi og mjög v?ð-
burðarík ný frönsk kvikmynd
í litum og scinemascope.
Aðlalhlutverk:
Jean Marais,
Myléne Demongeot
Bönnuð bömum innan 12 ára
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Slrm 11544
Ófreskjan frá
London
(Das Ungeheuer von London-
City).
Ofsalega spennandi og viðburð
arhröð þýzk leynilögreghi-
hrollvekja, byggð á sögu eftir
B. Edgar Wallace
Hansjörg Feimy
Marianne Kock
Bönnuð börnum — DanskLr
textar.
Sýnd kl. 5, 7 og 9
GAMLA BÍÓ f
Síroi 114 75
Ævintýri á Krít
(The Moon-Spinners)
Spennand) og bráðskemmtileg
ný Walt Isney-mynd 1 Utum
Hayley Mills
Peter Mc Enerey
tslenzknr textl
Sýnd kl. 5 og 9
Hækkað verð
arhúsið, sem var tvílyft timbur-
hús, heyhlaða og fjós með kúm á
hverjum bási, brann allt til kaldra
kola á einni klukkustund. Dálitlu
varð bjargað, en miklu meira af
dýrmætum munum úr gamalgrónu
búi varð eyðileggingunni að bráð.
Slíkt er alltaf óbætanlegt. Prest-
ur var fjarverandi þessa nótt og
kom að morgni að köldum rúst-
um heimilis síns. Þá þungu raun
bar síra Eiríkur með æðrulausri
karlmennsku. Að sjálfsögðu lögðu
sveitungarnir prestshjónunum
nokkurt liðsinni. En mestur var
hlutur Miklaiholtslheimilisms, sem
tók prestsfjölskylduna í hús sitt
þangað til nýtt hús var fullbúið
á grunni þess gamla á Torfastöð-
um. Mun Miklaholtsfjölskyldunni
hafa fundizt að svo ríflega væru
presthjónin á Torfastöðum búin
að leggja inn á nágrannareikning-
inn, að nokkuð þyrfti á móti að
koma.
Þegar síra Eiríkur lét af prest-
skap 1955, fluttu þau hjónin að
Laugarvatni í eigið húsnæði og
hafa búið þar síðan. Þangað hafði
einkadóttir þeirra, Þorbjörg, flutt
með manni sínum, Ásgrími Jóns-
syni, fyrir allmörgum árum, en
hann veitir forstöðu garðyrkjustöð
inni á Laugarvatni. Var það prests
hjónunum mikill hamingjuauki að
geta á efri árum búið við hlið
dóttur og tengdasonar og barna
þeirra.
Þá var þeim það mikil ham-
ingja að eiga annan fósturson frá
fyrstu bemsku hans, Karl J. Eirjks
fulltrúa hjá Kaupf. Árnesinga.
Hann var þeim kær sem bezti son-
ur, sem hann endurgalt fyllilega
alla tíð.
Síra Eiríkur var fæddur og upp-
alinn í frjósamri og fagurri sveit
norðan fjalla. Um það bil er æsku
árum lauk, fluttist hann suður yf
ir fjöllin, þar sem lífsstarfið beið
hans í fagurri og frjósamri sveit.
Slmi 18936
Lilli
(Lilith)
Frábær ný amerísk úrvaiskvik
mynd gerð eftir frægri sögu
samnefndri sem kosin var
,J5ók mánaðarins"
Warrer Beatty
ean Seaberg.
Sýnd kL 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 14 ára
AUGARASSBIO
Slmar 38150 oa 32075
Spartacus
Amerísk stórmynd í litum, tek
in og sýnd í Super Teohnirama
4 70 mm litfiimu með 6 rása
segulhljóm.
Aðalhlutverk:
Kirk Douglas,
Tony Curtis,
Charles Laughton,
Peter Ustinov og
John Cavin.
sýnd kl. 9.
Bönnuð bömum innan 1S ára
El Gringo
Hörkuspennandi ný kúreka-
mynd í litum-
Sýnd kl. 5 og 7.
Bönnuð þörnum ínnan 14 ára
Víst er það, að sterk eru þau bönd,
sem binda hvern mann við
bernsku- og æskustöðvar og mun
sú tilfinning ekki síður hafa vak-
að í brjósti síra Eiríks en ann-
arra manna. En það veit ég samt
með vissu, að Biskupstungur voru
sveitin hans framar öllum öðrum
byggðum þessa lands og Torfa-
staðir hjartfólgnasti staðurinn á
þessari jörð. Þangað er líka fallegt
heim að líta og ekki síður fagurt
þaðan að sjá.
Á þessum stað fær síra Eiríkur
sitt hinzta hvílurúm í dag, „þar
sem víðsýnið skín“ — til sólar-
áttar.
Þorsteinn Sigurðsson.
ÍÞRÓTTIR
Framhald af bls. 13.
mín, og bætti met hinnar heims
frægu sundkonu Dawn Frazer,
Ástralín (2:11,6).
14 ára stúlka, Cathie Ball, setti
heimsmet í 100 m bringusundi,
synti á 1:16,3 mín og í 200 m
baksundi kvenna setti Karen
Muir frá Suður.Afríku nýtt heims
met, synti á 2:26.4 mín. —hsím.
unuimiw »»i»»'»linnt I
KÓBAyiOiCíBI
Slm 41985
fslenzkur textl
Banco í Bangkok
Víðfræg og snilldarvei gerð, ný
frönsk sakamálamynd 1 James
Bond-stfL
Myndin sem er I liturn tilaut
gullverðlaun á kvikmyndaháiíð
inni 1 Cannes.
Kerwin Mathews
Robert Hossein.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð bömum.
Sim) 50249
Húsvörðurinn og
fegurðardísirnar
Ný bráðskemmtileg dönsk gam
anmynd i litum.
Helle Virkner
Dircr Passer.
Sýnd kl. 7 og 9.
Slm) 50184
Sautján
15. sýningarvika
GHITA N0RBY
OLE S0LTOFT
HASS CHRlSTENStN
OLE MONTY
iLILY BROBERQ
Ný dðnsk (itkvlkmynð eftir
blSD amdellda ritböfund Soy»
Sýnd kL 7 og 9
BönnuP nðnnuB
Síðustu sýningar
T ónabíó
Slm) 31182
íslenzikur texti.
Irma la douce
Hin heimsfræga og vel gerða
ameríska gamanmynd í lirom
og Panavision.
Aðalhlutverk:
Shirley Mac Laine
Jack Leanimon.
Endursýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð börnum.
ÍÞRÓTTIR
Framhald af bls. 13.
Er skemmst að, minnast þess, að
hann tapaði naumlega fyrir Don
Schollander á 01. í Tókíó — og
varð að láta í minni pokann fyr-
ir óþekktum sundmanni á brezku
samveldisleikjunum á Jamaica nú
nýl. McGregor synti 100 m á 53.7
sek, en annar varð Iljitsjev, So-
vétríkjunum, á 54.3 sek.
Framhald af bls. 13.
eyri, Óli Kristinsson, Húsavík,
Kári Jónasson, Kópavogi og Sig-
urður Þórðarson, Hafnarfirði. í
varastjórn voru kosnir: Ragnar
Þorsteinsson og Þorsteinn Lauf-
dal, Reykjavík, Bogi Sigurbjöms-
son, Sigiufirði, Guðmundur Ha-
konarson, Húsavík, Óskar Jóns-
son, Selfossi og Gestur Auðuns-
son, Keflavík.
Á fundinum gengu þrjú ný fé-
lög í sambandið. Það voru Bridge-
félög Skagastrandar, Hveragerðis
og Fáskrúðsfjarðar. Sú breyting
var gerð á framkvæmd íslands-
mótsins, að næstu munu 10 sveitir
keppa í meistaraflokki um íslands
meistaratitilinn, þar af hafa 2 sveit
ir rétt frá Norðurlandi og 2 af
Suðvesturlandi utan Reykjavíkur.
Er þess að vænta að þessi breyt-
ing verði til að auka vinsældir
fslandsmótsins.
SJÖTUGUR
Framhald af bls. T.
eyri á sínum tíma, heldur Vest-
firði og ýms önnur byggðarlög.
Það var ekki meiningin að fara
að segja sögu Jóns nákvæmlega
eða lýsa , honum og mannkostum
hans almennt, heldur aðeins rétt
stáldra við í tilefni af sjötussaf-
mæli hans og senda honum, konu
hans og fjölskyldu allri, beztu
heillaóskir.
Hj. Iljartar.