Tíminn - 25.08.1966, Blaðsíða 9

Tíminn - 25.08.1966, Blaðsíða 9
FEHMTUDAGUR 25. ágúst 1966 TÍMINN 9 Bernharð Stefánsson: Mððruvallamálið í Morgunblaðinu frá 6. þ. m. er birt grein undirrituð af þeim Steini Snorrasvni og Eggert Davíðssyni, sem ber yfirskriftina: „Um lýðræði í prestskosningum og Möðruvallamál hin nýju“. Virð ist grein þessi eiga að vera eins konar svar við grein, er ég reit í Dag 9. júlí s. 1. og nokkru síðar var endurprentuð í Tímanum. Þeir hefja mál sitt á því, að eng- inn (og þá auðvitað ekki þeir sjálfir) muni efast um að mér gangi gott eitt til að reyna að bera í bætifláka fyrir séra Ágústi Sigurðssyni. Ég þakka þetta hrós. En úr því mér gengur gott eitt til, hvað gengur þeim þá til? Varla það sama og mér, svo ólík sem sjónarmið mín og þeirra eru í þessu máli. Þeir segja, að mér muni málavextir naumast svo kunnir, að ég geti um þetta mál dæmt af skynsemi og því séu vangaveltur mínar um lýðræði í þessu sambandi út í hött. Bæði af þessum orðum þeirra og eins af hinni stóru fyrirsögn greinar þeirra skyldi maður ætla, að þeir hefðu þá einhverja nýja fíæðslu um lýðræði að flytja. Svo er þó ekki, heldur ganga þeir fram hjá því^ atriði í greininni. Ég er enn þeirrar skoðunar, sem ég lét í ljósi í grein minni í Degi, að lýðræði sé það að meirihlutinn ráði og það er ómótmælanleg stað reynd, að meirihluti greiddra at- kvæða féllu á séra Ágúst Sigurðs- son í prestskosningunum og að hann var kosinn löglegri kosningu. Tvímenningarnir segja, að ég slái þessu föstu í Dagsgreininni og draga í efa að rétt sé. Ég hafði þetta aðeins eftir blöðum og út- varpi og þeir aðilar beint frá herra biskupinum eða a. m. k. skrifstofu hans. Ég hygg að slíku megi treysta. Ég nenni ekki að fást við smá- vegis sparðatíning í Morgunblaðs grein þeirra Steins og Eggerts, eins og það að mér muni finnast það ofsókn á séra Ágúst aö maöur sótti á móti honum. Það er ein- mitt eðli lýðræðisins að hver sá, sem rétt hefur til, má bjóða sig fram til starfa og kjósendur kjósa hvern frambjóðanda, sem þeir vilja. En rógburður og ærumeið- ingar um frambjóðanda eru bæði óleyfilegur kosningaáróður og ofsóknir, að ég nú ekki tali um þegar baráttan gegn honum er lí'ka látin bitna á nánustu vanda- mönnum hans. Það eru nokkuð margir, sem telja. að séra Ágúst hafi orðið fyrir ofsóknum í sam- bandi við prestskosninguna: 207 kjósendur í prestakallinu hafa skriflega lýst yfir undrun sinni og hryggð yfir þeim ofsóknum, sem séra Ágúst hefur orðið fyrir og fjölskylda hans. Margir þeirra, Eramhald á bls 12 Sigurður Stefánsson: Enn um Mððruvelii - Andsvar í Morgunblaðinu 6. ágúst s. 1. birtist grein um Möðruvallamál hin nýju, sem flestir fara nú að kannast við. Grein þessi er undir- rituð af tveim mönnum — Egg- ert Davíðssyni og Steini Snorra- syni — sem fáir kunnugir trúa þó, að séu höfundar hennar. Alllangan tíma hefur tekið að sjóða saman þessa ritsmíð, sem aðallega á að vera svar við grein Bernharðs Stefánssonar, fyrrum alþingismanns, sem fyrst birtist í „Degi“ fyrir tæpum mánuði og síðan í „Tímanum“ nokkru síðar. Er það ekki ætlun mín að svara fyrir hann. Til þess er hann ein- fær, finnist honum umrædd grein svaraverð. Tilgangurinn méð þessurn fáu orðum mínum er að mótmæla enn á ný þeim móðgandi og mann- skemmandi ummælum, sem eru endurtekin í umræddri grein úr hinu alræmda kæruskjali, sem þessir tveir menn hafa nú með undirskrift sinni játað opinberlega að þeir eru frumkvöðlar að. Undirskriftarmenn kæruskjals- ins hafa 'raunar margir borið af sér þessi ummæli, en þá hefur þeim verið bent á, að annað hvort hafi þeir ekki lesið kæruna eða verið sagt annað en þar stendur. Fær rannsóknardómari að sjálf- sögðu úr því skorið. Að hinu leytinu er þakkarverð umhyggja þeirra Eggerts og Steins Framhald a bls. 12. Úrslit Piatigorski-mótsins Eins og þegar hefur komið fram í fréttum bar sovézki stórmeistar inn, Boris Spassky, sigur úr být um í Piatigorski skákmótinu í Los Angeles eftir harða baráttu við Bobby Ficher frá Bandaríkjunum. Fyrir síðustu umferðina voru þeir jafnir að vinningum, en Ficher , átti við erfiðari andstæðing að etja og gerði það gæfumuninn. Spassky tryggði sér efsta sætið með sigri yfir Hollendingnum Jan Hein Donner í síðustu umferðinni, en Fischer varð að „láta sér nægja“ jafntefli gegn heimsmeist aranum Tigran Petrosjan. Hér fer á eftir taflan yfir ein- stök úrslit í mótinu: Sigur Spasskys er fyllilega verð skuldaður. Hann tapaði engri skák og var raunar aldrei í taphættu. 5. vinningsskákir og 13 jafntefli tala sínu máli um það, að sigur inn hefur ekki verið auðsóttur, en með markvissri taflmennsku, mikilli útsjónarsemi og óhemju þrautseigju tókst Spassky að halóa sitt strik mótið í gegn. Með þess um sigri sínum hefur hann enn á ný staðfest, að hann er einhver öflugasti skákmeistari sinnar sam- tíðar og breytir þar engu um, þó að hann hafi orðið að lúta í lægra haldi fyrir Petrosjan í ný- L O K A S T A Ð A N SP FI LA PO UN . PE jRE NA IV DO Ist R.R. 2nd R.R Tota.l Spassky XX i-L X2 i^ 11 22 ii 11 22 11 22 11 22 -2-1 6 5Í Hé Fischer 0-2' XX 01 il ii 22 11 22 il 1~ 01. 11 ll 3i 7i 11 Larsen i° 10 XX li -2-0 11 il ~jX' •*-2 01 i° 6 4 10 Portisch 11 22 i° 0-2" XX 11 22 1| 11 22 11 22 éi ii 5 9i Unzicker °i 11 22 ͱ 11 22 XX 11 22 11 zZ 11 22 i£ n 22 **i 5 9i Petrosian 11 22 11 22 00 °i 11 '22 XX 11 22 11 ii 22 éi 4 5 9 Reshevsky 11 22 i° i°. n 22 11 22 11 22" XX ii 11 22 , L 5 4 9 KTajdorf 11 22 10 °i 11 22 1 1 22 00 i° XX li ?i 3i 8 Ivkov °2" 00 10 i° °i 11 22 11 22 °i - XX 4-i 3 3i Donner 2° ÍL i° 11 '22 i° °k k° '2-0 XX 4 2 6 afstöðnu einvígi þeirra um heims meistaratitilinn. Bobby Fischer var sá eini, sem veitti Spassky verulega keppni og er hans þáttur í mótinu stórkost legur. Hann var í næstneðsta sæti að lokinni fyrri umferðinni, hafði aðeins hlotið 3% vinning, og voru víst flestir búnir að „afskrifa" hann. En þá tók „drengurinn“ ein hvern mesta endasprett, sem sög ur fara af og hlaut hvorlci meira né minna en 7% vinning í síðari helmingi mótsins. Þetta mun al- gert einsdæmi í móti, sem ein- göngu er skipað fremstu stór- meisturum heims og enn stórkost fegri verður árangurinn, þegar þess er gætt, að engin heppni var með í spilinu. Allir vinningarnir fengust fyrir afburða taflmennsku og er óhætt að fullyrða, að Fich er hafi aldrei sýnt betri tafl- mennsku en hann gerði í síðari helmingi þessa móts. Bent Larsen er vel að 3ja sæt inu kominn, enda þótt báglega liti út fyrir honum á tímabili. Hann hóf keppnina dável og var í efsta sæti ásamt Spassky er lokið var fyrri helming mótsins. En þá fór I hönd ömurlegur kafli, 4 töp í röð, og Larsen hrapaði niður í 5. — 7. sæti. Flestir hefðu víst lát ið hugfailast undir slíkum kringum stæðum, en Larsen er ekki sú manntegund. Með einbeitni og hörku tókst honum að fella tvo næstu andstæðinga sína og hefja sig upp í 3. sætið. Jafntefli í síð ustu umferð tryggði svo 3. verð laun. Framhald á bls. 12.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.