Vísir - 14.08.1975, Blaðsíða 9

Vísir - 14.08.1975, Blaðsíða 9
Vlsir. Fiinmtudagur 14. ágúst 1975 9 V’Isir. Fimmtudagur 14. ágúst 1975 Ég skal hjálpa ^þér, Bommi Þetta er i lagi Tókst ekki að sló metið Ekki tókst tR stúlkunum að hnekkja tslandsmetinu i 4x100 m boðhlaupi kvenna á innanfélags- móti tR i gærkvöldi, eins og þær ætluðu sér. Tlmi þeirra varð 50,9 sek og stendur þvi enn met Ar- manns 50,2 sek — sett I fyrra. Þá var einnig keppt i 400 m hlaupi og urðu úrslit þar þessi: Björn Blöndal KR 52,7, Gunnar P. Jóakimsson tR 53,2, Þorvaldur Þórsson UMSS 53,3 og Hafsteinn Óskarsson ÍR 57,4 sek. IR-ingar verða með annað inn- anfélagsmót i kvöld og verður þá keppt i kúluvarpi og kringlukasti á nýja kastsvæðinu i Laugardaln- um. Hefst keppnin kl. 18.30. Bommi ber Nitu upp á ströndina © King Fe«ture» Syndicate, Uic., 1974. World righl» rexrved. Er allt i lagi? Náðu i lækni. Z töpuðu Svíum Þriggja ára sigurgöngu knatt- spyrnuliðs Þórs frá Akureyri lauk i gærkvöldi, þegar liðiö tapaði fyrir KR 2:1 I Bikarkeppni KSt á Akureyri. A þessum þrem árum hefur lið Þórs ekki leikið marga leiki — fyrr en I sumar, að liðið hóf að leika i 3. deild, en það er samt afrek út af fyrir sig að tapa ekki leik i þrjú ár. Þórsarar náðu forystunni i leiknum i gærkvöldi, þegar Arni Gunnarsson fékk sendingu inn I vítateig KR og vippaði laglega yfir Magnús Guðmundsson mark- vörð, rétt I lok fyrri hálfleiks. KR-ingar hófu seinni hálfleik- inn með miklum látum og voru búnir að jafna eftir aðeins tvær minútur. Markið skoraði Atli Þór Héðinsson með föstu lágskoti alveg út við stöng. Sigurmark KR skoraði svo Haukur Ottesen með þrumuskoti frá vitateig 10 minútum fyrir leikslok. Metaðsókn var aö leiknum á Akureyri eða á milli 1000 og 1200 manns. 1 hinum bikarleiknum, sem leikinn var i gærkvöldi léku FH og' 1A og riðu FH-ingar ekki feitum hesti frá þeirri viðureign. Skaga- menn sigruðu örugglega 3:0 og sýndu oft á tíðum stórgóða knatt- spyrnu, sérstaklega I seinni hálf- leik. Haldi Skagamenn áfram að leika svipað i þeim leikjum sem eftir eru, verða þeir illviðráðan- legir, og kannske tekst þeim nú það, sem þeim tókst ekki I fyrra — að vinna tvöfalt — eða bæði deilda og bikarkeppnina. FH-ingar stóðu i Skagamönn- um fyrsta hálftima leiksins, en þá fengu þeir á sig mark og eftir það var mótspyrna þeirra litil sem engin. Mark Skagamanna skoraði Jón Alfreðsson, eftir að nafni hans Gunnlaugsson hafði skallað til hans eftir hornspyrnu Árna Sveinssonar. 1 seinni hálfleik léku Skaga- menn svo á fullu og sýndu oft stórgóðan leik, sérstaklega Karl Þórðarson, sem þá lék vörn FH oft mjög grátt og átti heiðurinn af báðum mörkum Skagamanna i seinni hálfleik. Það fyrra kom á 25. minútu, þá lék Karl upp, sendi á Matthias Hallgrimsson, sem sendi boltann áfram á Teit Þórðarson, sem var kominn i gott færi — og hann skoraði örugglega. Seinnamarkið kom nokkrum minútum siðar, aftur var það Karl, sem óð upp — lék á hvern varnarmanninn á fætur öðrum og sendi svo boltann i mark FH — stöngina og inn! Ólafur Danivalsson, hættuleg- asti sóknarmaður FH var tekinn úr umferð allan leikinn og slapp aldrei úr gæzlunni. Hjá Skagamönnum voru þeir Karl Þórðarson, Jón Gunnlaugs- son og Jón Alfreðsson beztu mennirnir, en hjá FH, þeir Janus Guðlaugsson og Helgi Ragnars- son. Tveir leikmenn voru bókaðir fyrir „röfl”, þeir Leifur Helgason og Logi ólafssoni FH. Það eina sem þeir höfðu upp úr krafsinu, var, að þeir komust i svörtu bók- ina hjá dómaranum og siðan kippti þjálfari FH, Billy Hodge- son þeim útaf, þvi honum likaði greinilega ekki framkoma pilt- anna. Aðeinsof seinn!.... Einn af varnarmönnum FH er aðeins of seinn með hægri fótinn, þegar Jón Alfreðsson hefur spyrnt knettinum a^marki FH I bikarleiknum i gærkvöldi. Augnabliki slðar lá knötturinn I neti FH-inga og fyrsta mark Skagamanna íleiknum var komið. LjósmBj. Bj. „Það virðist vera nægilegt fyrir sum félög hér á íslandi að taka upp simann og segja ...„Halló.... við getum ekki komiö I dag — sjáum ykkur kannski á morgun”. Þetta sagði heldur brúna- þungur þjálfari Vals, Joe Gilroy, er við hittum hann að máli út á Melavelli, þegar leikur Vals og Vestmannaeyja I bikar- keppninni átti að hefjast I gær- kvöldi. „Þetta þekkist áreiðanlega hvergi I heiminum, og hvað þá heldur, að eitt félag hafi bevis upp á vasann um, að það þurfi ekki að koma með áætlunar- flugvélunt til leiks. Við höfum a.m.k. engan svoleiðis bevís, þegar við þurfum að fara til Eyja til að leika” Það var þungt I mörgum Valsmanninum út af þvl, að Eyjaskeggjar mættu ekki i leik- inn — og sérstaklega eftir að þeir höfðu heyrt, að niu vélar hefðu komið frá Eyjum um dag- inn. Var mikið talað um að kæra leikinn og fá hann dæmdan tap- aðan Vestmannaeyingum. En mótanefndin tók af skarið setti hann á aftur — þ.e.a.s Melavöllinn i kvöld. -Itlp En °g □ Norðmenn Hearts lagði Celtic að velli í bikarnum Önnur umferðin i skozku deildarbikar- keppninni var leikinn i gærkvöldi og urðu þá þau óvæntu úrslit, að Celtic tapaði fyrir Hearts á útivelli. Celtic var afar óheppið I leikn- um.í upphafi fékk liðið á sig mjög klaufalegt mark, þegar mark- vörðurinn misstiboltann inn i eig- Þeir voru hressir og kátir þessir fjórir sveinar, sem voru að æfa sig I stangarstökki þegar Bjarn- leifur Ijósmyndari okkar kom inn á Laugardalsvöll eitt kvöld- ið i vikunni. Þeir eru talið frá vinstri: Þorvaldur Þórsson, Stefán Hallgrlmsson, Asgeir Þór Eiriksson og Gunnar Páll Jóakimsson. oftur Sviar sigruðu Norð- I menn 2:0 i 3. riðli i Evrópukeppni landsliða i Osló i gærkvöldi og | fyrir eiga þeir þvi enn smá von um að komast i úr- slit i keppninni. Sviar sýndu oft ágætan leik i ið mark. Og ekki bætti það úr skák, þegar liðið fékk vitaspyrnu nokkru siðar, en markvörður Hearts gerði sér litið fyrir og varði. Leikmenn Celtic gáfust samt ekki upp og sóttu mjög stift allan leikinn og átti þá Jóhannes Eð- valdsson m.a. skalla i stöng. 1 lok leiksins, þegar Celtic sótti sem mest, átti Hearts eitt skyndiupp- hlaup sem endaði með þvi að dæmt var viti á Celtic, og þeim urðu ekki á nein mistök með spyrnuna — skoruðu örugglega. Fyrirkomulagið i keppninni er þannig, að liðin leika i riðlum og er Celtic með Aberdeen, Hearts og Dumbarton i riðli. Öll liðin hafa tapað tveim stigum, svo að allt getur gerzt ennþá. Deildar- eða „Top-Ten” keppn- in hefst 30. ágúst og leika þá stór- veldin, Rangers og Celtic á heimavelli Rangers, Ibrox Park i fyrsta leiknum. Úrslit helztu leikjanna i Skot- landi I gærkvöldi urðu þessi: Aberdeen—Dumbarton 2:0 Ayr Utd.—Hibernian 2:1 Clyde—Rangers 0:1 Dundee—Dunfermline 4:0 Hearts—Celtic 2:0 Morton—Stranrae 2:5 Partick—Dundee Utd. 3:1 gærkvöldi, sérstaklega þeir Roland Sandberg og Ronnie Hellström i markinu. Sandberg skoraði fyrra mark Svlanna i fyrri halfleik, en Roland Anders- son hitt I seinni hálfleik. Næsti leikur I riðlinum er miili N-tra og Svla 3. september og verður leikið i Belfast. Fyrri leiknum lauk með óvæntum sigri N-tra I Svlþjóð 2:0. Staðan i Júgóslavla N-trland Sviþjóð Noregur riðlinum er nú þessi: 4 3 0 1 8:4 6 3 2 0 1 4:2 4 4 2 0 2 6:5 4 5 1 0 4 5:12 1 Þetta er eiginkona knattspyrnu- kappans Guðgeirs Leifssonar, sem nú hefur gert samning við belgiska 1. deildarliðið Charle- roi — Andrea Steinarsdóttir ásamt börnum þeirra, Steinari Þór til vinstri og Ellnu Bubbu. — Myndin er tekin suður á Keflavikurflugvelli I fyrradag, þegar þau voru að leggja af stað til Belgíu, þar sem Guðgeir hefur skrifað undir samning um aö dvelja i tvö ár. Ljósmynd emm— Skagamenn komust í ham í Hafnarfirði og sigruðu FH 3:0 -- en KR-ingar áttu í hálfgerðu basli með 3. deildarlið Þórs á Akureyri KR OG AKRANES KOMUST ÁFRAM í BIKARKEPPNINNI „Hallá: við getum ekki komið í dag" Þeir minnstu í keppninni stóru-unnu sœtan sigur! Seinni hluta keppni fjögurra beztu lands- liða I Evrópu og fjögurra beztu landsliða i Ameriku I körfuknattleik hófst I gærkvöldi og voru þá leiknir tveir leikir. IRióléku Sovétmenn og Brasiliumenn og lauk leiknum með sigri Rússanna 76:72, I hálfleik höfðu þeir yfir 42:40. Hinn leikurinn var milli Mexíkana og ítala iMexíkó og komu hinir lágvöxnu Mexikanar — (þeirra hæsti maður er 2.04 m) — ntjög á óvart og höfðu yfir i hálfleik 58:45. ttalir geröu allt sem þeir gátu til að jafna metin iseinni hálfleik, cn Mexikanarnir gáfu hvergi og unnu sætan sigur 97:93. Júgóslavar , I forystu I keppninni, en Brasiliumenn eru i öðru sæti. Rússar og Bandarikjamenn konia þar á eftir, en hafa lcikiö tveim leikjum minna. Mœta þeir í úrslitin? Einherji frá Vopnafirði trvggöi sér I gær- kvöldi rétt til að lcika I úrslitakeppninni i 3. dcild I knattspyrnu með þvi að sigra Austra frá Eskifiröi 5:2 i úrslitaleik I öðrum Aust- fjarðariðlinum. Þótt Vopnfirðingarnir hafi unnið sér þennan rétt, er samt vafasamt að þcir mæti I úrslitakeppnina, sem á að fara fram hér I. Reykjavik um aðra helgi. Margir af leik- mönnum liðsins hafa ekki tök á þvi aö fara suöur, og ekki vist að hægt verði að „skrapa” saman I iið ef þeir hætta við. Leikurinn I gær fór fram á hlutlausum velli — Eiðavelli — og voru leikmenn liöanna langt i frá ánægðir meö hann. Ahorfendurnir voru ekki nema á milli 15 og 20 talsins, en hefðu verið mun fleiri ef hann hefði fariö fram niðri á fjöröum. Var þvi bullandi tap á leiknum fyrir bæði liðin. Þá þótti völiurinn ekki neitt sérstakt — lítið annað en mishæðir og þúfur — og mörkin undarlcg, svo ekki sé meira sagt. Hallaði annað þeirra — sem var úr járni — en I hitt vantaði aðra slána til að halda netinu uppi svo það lá á og yfir marklinunni þeim ntegin!!! Útimótið af stað í kvöld tslandsmótið i útihandknattleik hefst við Mýrarhúsaskólann I kvöld, og verður svo kcppt á hverju kvöldi i fimm daga. Liðin sem taka þátt i mótinu að þessu sinni eru 10 og er þeim skipt I tvo riöla. t A-riðli eru: tR, FH, Afturelding, Vikingur og Hauk- ar, en i B-riðli: Armann, Grótta, KR, Valur og Fram. t kvöld kl. 6. leika Armann-Grótta, ÍR- FH og Afturelding-V Ikingur. Annað kvöld lcika svo tR-Haukar, KR-Val- ur og Armann-Fram. Tvöfaldur Coca Cola! Tvö opin golfmót verða háð hér á Suöur- landi um næstu hclgi. Annaö þeirra er Coca Cola-keppnin I Grafarholti — elzta op.na golf- mót landsins — sem auk þess er stigamót á vegum GSt. Að þessu sinni er keppnin tvi- skipt. Keppnin hefst á laugardaginn kemur og vcrða þá leiknar 36 holur með og án forgjaf- ar. Helgina á eftir verður þvi haldiö áfram og þá leiknar 36 holur án forgjafar. Skráning og allar nánari upplýsingar um mótiö eru veittar i Golfskálanunv i Grafar- holti næstu kvöld. Þá fer fram á sunnudaginn sveitakeppni unglinga á Hólmsvelli I Leiru. Þar verða lciknar 27 holur og byrjar keppnin kl. 10.00 á sunnudag. Þeir golfklúbbar seni ætla að senda lið I keppnina eru beðnir um aö til- kynna það til Helga Hólm — slmi 2313 I Kefla- vlk.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.