Vísir - 06.11.1975, Blaðsíða 12

Vísir - 06.11.1975, Blaðsíða 12
13 12 ( Real Madrid kom mest ó óvart af meistaraliðunum — lék eins og á órunum 1950-55 þegar liðið sigraði í Evrópukeppninni fimm sinnum í röð og vann upp að því er virtist óvinnandi markatölu Englandsmeistaranna Derby Til Hanson drengur GEFÐU BOLTANN! ^ sem er þaft eina , réUa. Gott hjá þérl r rpr— drengur! Þau úrslit scm komu einna mest á óvart i Evrópukeppni meistaraiiða i gærkvöldi urðu i leik spönsku meistaranna Real Madrid og ensku meistaranna Derby County i Madrid. Fyrri ieiknum lauk með góðum sigri Derby 4:1 og voru englcndingarn- ir taldir næstum öruggir með að komast áfram i 8-liða úrslitin. En leikur spánska liðsins var frábær i gær og minnti mest á árin frægu i kringum 1950 þegar liðið sigraði iEvrópukeppninnifimm sinnum i röð. Real fékk óska-byrjun, Roberto Martinz skoraði strax á þriðju míniitu leiksins, og aðeins frábær markvarsla Colin Boulton, i marki Derby, kom i veg fyrir að mörkin yrðu ' fleiri i fyrri hálfleik. t siðari hálfleik var stöð- ug sókn á mark Derby og fljótlega sendi David Nish boltann i eigið mark og rétt á eftir skoraði San- tillana þriðja markið. Þá átti Derby góða sókn sem endaði með marki Charlie George og leikur- inn var aftur opinn. En rétt fyrir leikslok felldi Colin Todd Amancio innan vitateigs og Jose Pirri skoraði úr vitaspyrnunni og liðin stóðu jöfn að vigi 5:5. Þá var framlengt og þá skoraði Santill- ana glæsilegt mark eftir góða sendingu Paul Breitner og Real hélt áfram á markatölunni 6:5 til mikillar ánægju fyrir hina 120 þúsund áhorfendur sem sáu leik- inn. Mótherjar Keflvikinga frá i fyrra, Hajduk Split, hafa komið mjög á óvart með góðri frammi- stöðu. Liðið sigraði belgisku meistarana RWD Molenbeek i Split 4:0 og þeir gerðu sér litið fyrir og unnu lika á útivellinum, 3:2 og halda áfram samanlagt 7:2. Mörk Hajduk i gær skoruðu Suriak, Zungul og Govanik, en mörk belgiska liðsins, Teugels og Nielsen. Sviinn Conny Torsteinsson, sem leikur með Evrópumeisturum Bayern Munchen sá um sina gömlu félaga i Malmö FF á Olympiuleikvanginum i Munchen. Sviarnir unnu fyrri leikinn 1:0, en þýska liðið komst áfram á marki svians, eftir að Bernd Durnberger hafði skorað út vitaspyrnu. Hollensku meistararnir PSV Eindhoven sem unnu þá pólsku Ruch Chorzow svo óvænt i Pól- landi 3:1 voru óstöðvandi i seinni leik liðanna i Hollandi og sendu boltann fjórum sinnum i mark pólverjanna — Van der Kerhof, Van der Kuylen tvö og Lubse skoruðu mörk hollendinganna sem halda áfram 7:1. Benfica ienti i erfiðleikum gegn ungversku meisturunum Ujpest Dozsa með sitt þriggja marka forskot. Ference Bene tvö og Nagy skoruðu hjá Ujpest mörk sem hefðu komið liðinu áfram á mörkum skoruðum á útivelli. En þegar 18 min voru til leiksloka skoraði varamaðurinn Nene fyrir Benfica sem komst áfram 6:5 samanlagt. Mikil harka var i leiknum og tveim leikmönnum visað af leikvelli og niu voru bók- aðir. Leik Juventus og Borussia Munchengladbach i Turin á Italiu lauk með jafntefli 2:2 og heldur þýska liðið áfram, vann fyrri leikinn 2:0, eöa samanlagt 4:2. Mörk Borussia i gær skoruöu Danner og daninn Simonsen, en mörk Juventus Gori og Bettega. Glasgow Rangers var slegið út úr keppninni af franska liðinu St. Etienne. Frakkarnir áttu tvö mörk til góða fyrir leikinn á Ibrox i gær og þann mun reyndu leik- menn Rangers að vinna upp með opnum sóknarleik. En kapp er best með forsjá og tvivegis sendu leikmenn frahska liðsins boltann i mark Rangers eftir skyndisóknir og St. Etienne helfur áfram á markatölunni 4:1. Eina mark Rangers skoraði Alex Mac- Donald. Attunda liðið er svo Dynamo Kiev sem vann akurnesinga sam- anlagt 5:0. —BB JOHANNES Ani STORAN ÞÁn í SIGRI CELTIC! — Skoraði glœsilegt mark af 20 metra fœri þegar Celtic sigraði Boavista frá Portúgal í gœrkvöldi J*j», Georg, viö „Jóhannes Eðvaldsson var mjög góður i leiknum við Boa- vista frá Portúgal I Evrópukeppni bikarhafa á Celtic Park i gær- kvöldi” sagði skoskur blaðamað- ur sem hafði samband viðokkur i morgun til að fá nánari fréttir af leik Akranes og Dynamo Kiev. „Hann skoraði glæsilegt mark um miðjan hálfleikinn — með þrumuskoti af um 20 metra færi og sá portúgalski markvörðurinn aldrei boltann fyrr en hann lá i netinu. Celtic sigraði i leiknum 3:1, en hin tvö mörk Celtic skor- uöu þeir Kenny Dalglish og Dixe Deans. Mark Boavista skoraði Mane skömmu eftir að Jóhannes hafði skorað sitt mark. Þetta var einn besti leikur sem Celtic hefur leikið á þessu keppn- istimabili — vörnin góð og sóknin beitt, sagði blaðamaðurinn. Við spurðum hann hvað hann héldi að leikmenn Celtic hefðu fengið fyrir sigurinn og að komast i 8-liða úr- slitin, og sagöi hann okkur, að það væri ekki undir 400 sterlingspund- um — liölega 150 þúsund krónur islenskar á mann. West Ham komst einnig i 8-liða úrslitin meö þvi að sigra Ararat frá Sovétrikjunum 3:1 i London. Mörk West Ham skoruðu Paddon, Robson og Taylor. Fyrri leiknum lauk með jafntefli 1:1 og komst þvi West Ham áfram samtals 4:2. Þaö lið sem kom einna mest á óvart I keppninni var Wrexham, (Wales), sem leikur i 3. deildinni i Englandi. Það sigraði Stal Tzes- zow Póllandi, I fyrri leiknum 2:0 og náði jafntefli i leiknum I gær- kvöldi 1:1. Besta marktækifæri akurncs- inga i leikuum við Dynamo Kicv i gærkvöldi. Björn Lárusson spyrnir kncttinuin — bcr i vinstri hönd lians — liátt yfir markið. Takiö cftir hve Björn liallar scr mikið afturábak — við það verður hann að teygja sig i{g ler um ieiö undir boltann. semi af þeim sökum fer beint iipp i loftið. Ljósmyndir: Einar. Atletico Madrid, Spáni — eitt frægasta lið Spánverja — var slegið út af Eintracht Frankfurt, Vestur-Þýskalandi, sem sigraði i leiknum i gærkvöldi 1:0. Belgiska liðið Anderlecht komst einnig áfram — þrátt fyrir 1:0 tap fyrir Banja Luka, Júgóslaviu i gær- kvöldi. önnur lið sem komust i 8-liða úrslitin i meistarakeppni bikarhafa voru: Zwickau, Austur-Þýskalandi; Spartak Moskvu og FC den Haag, Hol- landi. —klp— Eftir leikinn Handall leikur á hvern ■ varnarmann Galaxy á fætur F öftrum, og stefnir aft markinu „_J Þaft er þaft sem allir halda aft sé rétt — Randall veit þaft! w, Leikmenn Galaxy vitaþaft!{j Hann heldur áfram Skagamönnum místókst að skora úr vítaspyrnu — og rússarnir sem léku aðeins á hólfum hraða fengu tvö „útsölumörk" og sluppu með skrekkinn Þaö var greinilegt að sovéska liðið Dynamo Kiev lék ekki á fullri ferð gegn islandsmeisturum Akra- ness i Evrópuleik liðanna á Mela- vellinum I gærkvöldi. Enda eiga leikmenn liðsins erfitt verkefni fyr- ir höndum, þrjá leiki á sjö dögum. En eigi að siður stóðu akurnes- ingar sig vel, sérstaklega i síöari hálfleik enda fengu þeir þá oft æði- mikið svigrúm og voru óheppnir að skora ekki. Birni Lárussyni mis- tókst m.a. að skora úr vitaspyrnu og þeir Teitur Þórðarson og Jón Gunnlaugsson voru nálægt að skora. En sovétmcnn voru heppn- ari, þeir skoruðu tvlvegis — i bæði skiptin eftir varnarmistök. Leikaðferðsovéska liðsins var nú að boltinn var lengstum látinn ganga á milli manna á miðjunni, en af og til komu svo snögg upphlaup upp kantana sem ávallt sköpuðu mikla hættu. Sovésku leik- mennirnir reyndu mun meira i fyrri hálfleik en i þeim siðari enda fengu þeir þá 7 hornspyrnur gegn engri. 1 siðari hálfleik tóku þeir lif- inu með ró nema þá helst Oleg Blokhin nr. 11 sem af og til tók miklar „rispur”, enda fengu sovét- mennirnir þá enga hornspyrnu — en skagamenn tvær. Mörk Dynamo Kiev komu i sitt hvorum hálfleik, það fyrra á 25. minútu eftir slæm varnarmistök. Þá „stal” Valdimir Onisjenko nr. 8, boltanum al 'tveim varn- armönnum akurnesinga sem stóðu eins og frosnir væru — og sendi boltann af öryggi i markið. En áöur hafði Davið markvöröur variö hörkuskot frá sama manni. Eina marktækifæri akurnesinga I fyrri hálfleik kom svo sex mlnútum sið- ar eftir aukaspyrnu — þá skallaði Jón Gunnlaugsson naumlega fram- hjá. Akurnesingar voru svo ölíu ágengari i siðari hálfleik, enda fengu leikmenn liðsins þá mun meira svigrúm og áttu þeir Matthi- as, Teitur og Þröstur allir skot á markið sem sköpuðu hættu. En sovésku leikmennirnir fengu Iika sin tækifæri og stóðu fjórum sinn- um fyrir opnu marki, en klúðruðu i öll skiptin. Sitt besta marktækifæri fengu akurnesingar á 62. minútu þegar miöherji Dynamo Kiev hindraði Matthias innan vitateigs og dómar- inn Malcolm Wright dæmdi um- svifalaust vitaspyrnu, „Hann tog- aði i peysuna á mér” sagði Matthi- as,” mér fannst dómarinn taka sérstaklega vel eftir þessum svo- kölluðu „atvinnumannabrotum” sem sovésku leikmennirnir notuðu ■mikið”. Þá var staðan 1:0 og menn gerðu sér strax vonir um að akurnesing- um tækist að halda jöfnu — en sú von brást, Björn Lárusson skaut hátt yfir markið. „Ég skaut eins fast og ég gat” sagði Björn eftir leikinn. „Það var ægilegt að sjá boltann sigla yfir”. Þrem minútum siðar lá boltinn i marki Akurnesinga — eitt mesta „Lékum ekki á fullu" — sagði Oleg Blokhín besti maður Dynamo Kiev „Völlurinn af afar slæmur og crlitt aö leika á honum,” sagði Oleg Blokhin, besti maður Dynamo Kiev, eftir leikinn. „Við lékum ekki á fullri fcrð i þcssuin leik, en geta islenska liðsins kom inér samt á óvart. Það eru þrir erfiðir leikir fram- undan hjá okkur — tveir i deild- arkeppninni og einn i Evrópu- keppni landsliða i næstu viku, svo við fórum að öllu með gát. Af fslcnsku leikmönnunum fannst mér bestir nr. 9, Teitur Þórðarson, nr. 10, Matthias Hallgrimsson og nr. 7 Karl Þórðarson. Dómarinn var mjög góöur og liann lét ekkert Irainbjá sér fara.” —BB klaufamark sem sést hefur. (Hlægilegt mark segir i frétta- skeyti Reuters) Oleg Blokhin sendi þá meinlausa sendingu fyrir markið, Jón Gunnlaugsson rak tána i boltann sem sveif yfir Daviö j markvörð i hornið fjær — og enginn rússi nálægt! Það fer ekki á milli mála að Dynamo Kiev er eitt besta félagslið sem hingað hefur komið en þó fannst manni að leikmenn liðsins | væru of fjötraðir i leik-,,kerfi” og j fengju litið að njóta sin sem ein- staklingar. Það var helst Oleg Blokhin, nr. 11 sem reyndi eitthvað uppá eigin spýtur. Hjá akurnesingum kom góð | frammistaða Guðjóns Þórðarsonar | mest á óvart, en auk hans áttu þeir Matthias Hallgrimsson og Karl Þórðarson mjög góöan leik. „Þeir | leyfðu okkur miklu meira núna en i | leiknum i Kiev”, sagði Jón Gunn- laugsson. „Þeir pressuðu okkur I ekki eins stift, heldur bökkuðu um [ leið og við fengum boltann”. „Leikurinn var mjög drengilega I leikinn og auðdæmdur”, sagði dómarinn Malcolm Wright frá | Norður-frlandi. „Þetta var vita- spyrna, sovéski varnarmaðurinn I togaði i peysuna á islenska fram-| herjanum. Ég hef oft séð verri völl I en þennan, en það var greinilegt aðl hann háði leikmönnum Dynamoj Kiev. Bestur i islenska liðinu fannst I mér leikmaður nr. 8, Jón Alfreðs-| son. —BB Ármenningar stóðu sig nokkuð vel! Töpuðu með minni mun fyrir Playboys í Finnlandi en í leiknum hér heima Eins og viö var búist sigraöi linnska liðið Playboys i siðari leikn- n m viö Ármann i Evrópnkeppni bikar- liala i körluknattleik i Ilelsitiki i gærkvöldi. Armenningar stóðu sig mun betur i þeim leik en i fyrri leikn- um, sem háður var hér heima, en honum lauk með sigri finnanna 88:65. í leiknum i gærkvöldi skor- uðu ármenningarnir 81 stig, en finnarnir 107 svo að þeir halda á- fram i aðra umferð með saman- lagða stigatölu 195:146. Ármenningarnir byrjuðu mjög vel i leiknum i gærkvöldi og höfðu yfir til að byrja með. Það var ekki fyrr en um miðjan hálfleikinn að finnunum tókst að komast yfir, en eftir það náðu þeir mjög góðum leik og voru 19 stigum yfir i hálf- leik — 55:36. i byrjun siðari hálfleiks minnk- uðu ármenningarnir bilið i 11 stig með þvi aö skora fjórar fyrstu körfurnar. Eftir það héldu þeir i við finnana, sem sigruðu i leikn- um með 16 stiga mun — 107:81. Bandarikjamaðurinn Jimmy Rogers var stigahæstur ármenn- inga i leiknum — skoraði 29 stig. Jón Sigurðsson skoraði 21 stig, en aðrir skoruðu minna. I liði finn- anna skoraði bandarikjamaður- inn Ronnie Cannon 21 stig. en stigahæsti maður liðsins — og leiksins — var Sarckarlati með 30 stig. —klp— Ipswich kom til Belgíu með 3:0 — en fór þaðan með 4:0 tap og er úr leik í UEFA-keppninni Liðunum i UEFA-keppninni i knattspyrnu fækkaði i sextán i gærkvöldi, og var viða hart barist um þau sæti. Mest var harka i leik „austan-tjaldsliðanna” Pynamo Presden frá Austur-Þýskalandi og llonved frá Ungverjalandi i Presden. Þar var tveim mönnum vísað útaf — einum úr hvoru liði — og áhorfendur köstuöu flöskum og öðru lauslegu inn á völlinn. Getur þaö haft alvarlegar af- leiðingar fyrir Dynamo-liðiö, þvi að UEFA tekur hart á öllum ólát- um i leikjunum i Evrópumótun- um þrem. A liðið á hættu að missa heimaleik sinn i næstu umferð, en það sigraði i þessum leik 1:0 og komst áfram með samtals 3:2 mörkum. Ekki var minna um aö vera i leik Stal Mielec, Póllandi, og Carl Zeiss. Jena, Austur-Þýskalandi. Pólverjarnir sigruðu 1:0 eftir framlengingu og þurfti þvi vita- spyrnukeppni, þar sem austur- þjóðverjarnir höfðu sigrað i hinum leiknum 1:0. Endaði sú keppni með sigri pólverjanna 3:2. AEK Grikklandi sigraði Inter Bratislava, Tékkóslóvakiu 3:1, og nægði þetta eina mark sem tékk- arnir gerðu þeim til að komast áfram — á fleiri mörkum skoruð um á útivelli. Johan Cruyff og Jo- han Neeskens skoruðu tvö af fjór- um mörkum Barcelona er liðið sigraði Lazio. Italiu 4:0. Italirnir mættu ekki i fyrri leikinn — af ótta við mótmælaaögerðir — og var hann dæmdur þeim tapaður 3:0, þannig að þeir töpuðu saman- lagt 7:0 fyrir spánsk/hollenska liðinu. Dundee United — sem sló Keflavik út úr UEFA-keppninni, náði jafntefli við Oporto i Portú- gal — 1:1 — og skoraði Hegarty cina mark skotanna. En þeir töp- uðu fyrri leiknum — i Dundee 2:1 — og eru þvi úr keppninni i þetta sinn. AC Milan, Italiu átti ekki i nein- um vandræðum með irska liðið Athlone Town i siðari leiknum. sem fram fór i Milanó. Mörkin urðu þrjú hjá itölunum i þeim leik, en fyrri leiknum lauk með jafntefli 0:0. Ipswich Town kom til Belgiu með 3:0 i bakhöndinni i leikinn við FC Brugeois, en tapaði leiknum 4:0 og er þar með úr leik 4:3. Lambert — sá sem skoraði mark Belgiu i landsleiknum viö Island i haust — skoraöi tvö af mörkum Brugeois i leiknum. Annað belg- iskt lið sem kom i 3ju umferð var Royal Antwerp, sem sigraði Slask, Póllandi 2:0, eöa saman- lagt 3:2. —klp— Danir í úrslit! Danska landsliðið i knattspyrnu — 23 ára og yngri — tryggði sér rctt til að leika i úrslitum Evrópu- keppuinnar mcö þvi að sigra Pól- land 2:ll i Varsjá i gærkvöldi. Þcssi sigur kom nokkuð á ovart. |>vi að i lyrri lciknum, sem liáður var i Kaupinannuhöfii fyrir nokkru. máttu danirnir þakka lyrir að uá jalntcfli 1:1. Auðvelt hjó Englendingum Eiiglaml komst i aðra umlerö i Evrópuriölinum i „Tliomas Cup”- keppuinni i badiuinton i gær- kvöldi mcö þvi að sigra Skotland i iillum leikjunum cins og lyrri dag keppninnar, scm var á miðviku- (laginn. Eiiglcndingarnir liöfðu mikla ylirburði. bæði i einliða- og tvi- iiðaleik.og unnu m.a. tvær lirinur i einliðalcikiium á núlli, cn sain- lals sigruðti þcir i kcppninni 9:0. —klp—

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.