Tíminn - 16.11.1966, Blaðsíða 8

Tíminn - 16.11.1966, Blaðsíða 8
TSMINN MIÐVIKUDAGUR 16. nóvember 1966 Sjötugur: Guðmundur dlafsson Ytrafelli Guðmundur Ólafsson, bóndi og fyri-verandi hreppsnefndarodd- viti i í'ellsstrandarhreppi i Dala sýslu varð sjötugur 14. nóvemher. Ilann er Dalamaður að ætt og upp runa fæddur að Staikkabergi í Klofningshreppi 14. nóv 1896, en fóreldrar hans, þau Guðbjörg Jóhannsdóttir og Ólafur Péturs son. voru þá búendur þar, en fjöl skvldan fluttist árið 1897 að Stórutungu í Fellsstrandarhreppi og tnía afkomendur Ólafs búið, þar síðan. Guðmunndur Ólafsson ó!st upp í hörðum skóla lífsins, þar sem hann varð fyrst og fremst að treysta á sjálfan sig. Móður sína missti hann ellefu ára gamall. og systkinahópurinn fjöl mennur, svo að verkefni • föður- ins vpru ærið mörg, þó að börn- in legðu sitt fram eins og þrekið leyfði. Guðmundur dró hvergi af sér. Hann sinnti jöfnum hönd- um vinnu í landbúnaði, svo sem jarðabótum, auk venjulegra starfa við heyskap og- hirðingu á búfé, og sjómennsku á vetrar- vertíðum. Hvergi lá hann á liði sínu, heldur var boðinn og bú- inn ti! hvers þess verks, sem vinna þu rfti. Guðmundui hóf sjálfstæðan bú skap á hluta af jörðinni Stóru- Tungu árið 1923, og bjó þar til ársins 1936, er hann fluttist að Ytrafelli á Fellsströnd og hefur búið þar síðan,,og, nú síðari árin í sjalfsábúð -tísöú. Lífið bjó ekki þannig að Guð- mundi á Ytrafeli í æsku, að hann gæti aflað sér þekkingar, eða á einn eða annan hátt búið sig und ir þau verkefni sem biðu úrlausn ar í lífinu. Þrátt fyrir það hefur fallið í hlut Guðmund- ar á Ytrafelli, að taka þátt í ílest um félagsmálastörfum sveitar sinn ar og jaftjvel sýslu á fjórða ára- tug og hafa forystu um mörg þeirra, m.a. var thann oddviti í hreppsnefnd Fellsstrandarhrepps í 35 ár, þar til hann baðst und- an endurkosningu sl. vor, í skatta nefnd Fellstrandarhrepps frá 1930 þar til hún var lögð niður eftir '960, umboðsmaður Bruna bótafélagis íslands frá 1934 og síðan. í sýslunefnd Dalasýslu frá 19'52, í stjórn Búnaðarfélags Fellsstrandarhr. um skeið, og gjaldkeri Bæktunarsambands V- Dalasýslu.um 10 ár. Fleiri trún- aðarstörfum hefur Guðmundur á Ytrafelli gegnt fyrir sveit sína, þó að bau verði, ekki talin hér. Öllum þessum störfum hefur hann sinnt af sérstakri samvizkusemi og umhyggju fyrir velferð þeirra. Eins og áður er fram tekið, átti Guðmundur Ólafsson ekki kost á þvj áð búa sig undir lífið með skólagöngu, en góð greind, sterk- ur vilji og óeigihgirni og það, hvað óhræddur hann er við að taka ákvarðanir ef hann telur þær -éttar, hafa skapað honum, traust samferðamannanna og skilað þeim verkefnum vel áfram, sem honum hafa verið falin. Undir hans forystu sem odd- vita var hafnargerð gerð í Hjalla nesi til mikilla hagsbóta fyrir Fellsstrandarhrepp. Einnig hafði hann forystu um það sem odd- viti. að Fellsstrandarhreppur gerð ist aðili að bamaskólanum að Laugum í Dalasýslu, þar sýndist þó sitt hverjum, eins og oft vill ve^ða í slíkum málum, þó að nú vo'rði ekki um það deilt, að rétt var stefnt,. Sömuleiðis hefur hann unnið að miklum dugnaði að þvi að koma áfram vegamálum sveitar sinnar, með fjárútvegun og fleiru. Það eru nú hart nær þrjátíu ár síðan leið okkar Guðmundar á Ytrafelli lágu fyrst saman. Mér eru þau fyrstu kynni okkar minn- rfsstæð. Ég var þá að hefja búskap I að Staðarfelli og Guðmundur vin • ur minn hafði þá ekki frekar en nú áhuga á þvj að Framsóknar- flokksmönnum fjölgaði í þeirri sveit. sem hann stjómaði. Guð I mundur er og svo hreinlyndur, að hann leynir sjaldan því, sem inni fyrir býr. Enda þótt stjóm málaskoðanir okkar Guðmundar á Ytrafelli hafi ekki dregið okk í ur saman í lífinu, þá tókst okk- ur samstarfið vel þau átján ár, er við vorum sveitungar, og það ' sem við unnum saman vegna sveit arfélagsins. Leítfdu þessi kynni til vinskaþar. er haldizf hefur síð- an. Það er mikilsvert að kynnast í lífinu mönnum jafnihreinlyndum heiðarlegum og tryggum, sem Guðmuhdi á Ytrafelli. Ég vil enda þéssar línur með því að færa Guðmundi þakkir mínar og konu minnar fyrir sam- starfið, vináttu og tryggð liðinna ára, og óska honum til hamingju | með sjötugsafmælið og framtíð- I ina. ' , Halldór E. Sigurðsson. (Vegna þrengsla í blaðinu í gær varð þessi grein að þíða blrtingar-, Ritstj.). I HUÓMLEIKASAL Sinfóníutónleikm Á síðustu tónleikum Sinfón íuhljómsveitarinnar voru það Pólverjarnir Wladyslaw Kedra, píanóleikari, og Bohdan Wodiczko stjórnandi, sem báru hita og þunga dagsins. Kedra. er fjölhæfur listamaður, með tæknilega yfirburði, skýra og skorinorða túlkun, raunsær um margt. — Mat hans á sinfónísku tilbrigðunum eftir César Franck var samt heldur dauflegt, og vel fleytt frá það djúpa og inni lega sem þessi rómantíski en þó fíngerði höfundur á í svo ríkum mæli. Glæsileg tækni listamannsins, megnaði akki að sannfæra hlustanda um neitt nýtt í innri tjáningu. — í samleik hljómsveitaj- og ein leikara, voru það strengirnir, sem áttu frumkvæðið, að því sm þar var vel gjört. Vinstri handar píanókonsertinn eftir franska tónskáldið Rável ber með sér mikla þekkingu á mögu leikum hljómborðsins, enda var hann kunnur scm mikil! píanóleikari. Ravel tjáir sig með sterkum „rythma" sveifl um og hljómasamböndum, sem líkjast innhverfu litaspili.. Wladyslaw Kedra lék þetta verk með stórkostlegum yfirburðum, en jafnframt lifandi og skemmti legri túl’kun. Gera má ráð fyrir að það séu ekki ýkja margir pianóleikarar í dag, sem gera þessu verki þau skil er Kedra gerði. Samspil einleikara og h'.'óm sveitar var óvenju vel samræiiit og unnið- — Kedra hlaut hjau anlegar móttökur, og lék auka lög og bætti þá þriðja Pól verjanum við með því að leika „Nocturne1"- eftir Chopin sýndi hann þar eim aðra hlið listar sinnar, þr hann mjög eftirminni lega dró upp þetta hugstæð-t næturljóð. Tchaiköwsky hefir í hljom sveitarsvítu sinni Mozartiana, fært í hljómsveitarþúning nok' ur hinna fögru smáverka Mo« arts. Margt óþarft hefir n!a izt upp, utan um þann tqtt’-n sem svítan myndar, en i .nef ferð hljómsveitarinnar. bættisi ennþá meira utan á þao «wm fyrir var svo æskilegt liefð verið að fá lítið hljómsveitai verk eftir Mozart , ómengáð Strawinsky, er einn um sína sérstæðu balletmúsik sem var árangur af samstarfi hans við ballettmeistarann Diaghilev. Svíta hans „Dísarkossinn" er Framhaló a ols '2 LÍTT TÓNLIST Á öðrum tónleikum Sinfóníu hljómsvéitarinnar í hinum svo nefnda B-flokki, flutti sveitin verk eftir Bach — Bernstein og Berlioz, en pólski píanóleikar inn Wladyslaw Kedra lék tvö verk eftir Gershwin. Stjórnandi var Bohdan Wodiczko. Stóra toccatan og fugan í d-moll eftir Baoh, fékk hér fyrr á árum, all glyskennda meðierð í marg stækkuðum hljómsveitum. Ef leiðin að kjama Bach er greið færari ungum hlustendum í meðferð stórrar hljómsveitar, en í sinni upþhaflegu mynd, er hún sannarlega tilvinnandi, þótt undirrituð aðhyllist efcki þá skoðun. — Konsertinn í F-dúr eftir Gershwin, er heldur lang dreginn og allt það veigamesta hefir þegar verið sagt í fynsta þætti. Wladyslaw Kedra fLutti bæði konsertinn og „Rahpsody in blue“, með glæsilegu ör- yggi bæði í rythma og tækni. ÍHljómaveátarröddin í konsert inum er fyrirferðarmikil og ; samleik mátti heita að píanó- röddin ætti fullt í „fangi með að ná rétti sínum. — Lögin úr „West Side Story“ e4ga sín föstu ítök í hlustendum og í þeim er óneitanlega músík, sem hljómsveitinni tókst vel að koma til skila. Einleikara og stjóroanda var vel fagnað, ög sýndi tVodiczko ótrúlega hæfni á enn nýjum vettvangi. Aðsókn að þessum tónlelkum var ágæt svo full þönf er fyrir slika músík sem þessa. Ráð- gjört er framhald slíkra tón- leika með breytiiegu innihaldi þó. Unnnr Arnóradóttir. Fyrsti þáttur Gunnars G. Schram, „Á öndverihun meiði“ vakti mikla athygli, enda hefur umræðuefnið, hvort leyfa eigi auknar veiðar togara í landhelgi lengi veið á döfinni 0g valdið miklum deilum. Þeir Tryggvi Ófeigsson og Andrés Finnboga son voru svo sannarlega á önd verðufn meiði um þetta við- kvæma mál, Tryggvi hélt því stíft fram, að auknar veiðar togaira í landhelgi værti bráð nauðsynlegar, en Andrés taldi, að mikil hætta myndi stafa af því, ef togurunum væri hleypt inn í landhelgina. Ekki er það mitt að dæma, hvor þeirra hafði betur í þessum kappræðum, en þátturinn var mjög fróðlegur og skemmtileg ur. Savannatríóið lýsti refilstig • um ástarinnar mjög skemmti- lega í gamanþætti sínum, „Það gerðist hér suður með sjó“. Þeir félagar kunna þá list ágæt lega að koma fram i sjónvarpi, eru léttir og þægilegir og tón- listarflutningur þeirra frábær. En minnistæðast úr þætti þess um er upplestur Valgerðar Dan leikonu, hann var með ágælum. Það hafa ýmsir velt vöngum yfir því, hvers vegna Roger Moore sé látinn aka Volvobif- reið i kvikmyndinni „Dýrling urinn“ og eru uppi um það getgátur, að þetta sé nokkurs konar auglýsingabrella fyrjr Volvo verksmiðjurnar, sem ef til vill eigi hlutdeild í þessari vinsælu kvikmynd. Hins vegar mun • skýringin á þessu vera sú, að Roger Moore notar, ekki aðra bíla en Volvo í daglega lífinu, og fyrir töku kvikmynd ar þessarar fór hann fram á að mega aka eigin bílum. Og þá er það dagskráin í kvöld. Hún hefst kl. 18.15 með leik úr heimsmeistara- keppninni í knattspyrnu og nú eru það Sovétmenn og eVstur- Þjóðverjar, sem leiða saman hesta sína. Kl. 20 eru sýndar fréttamyndir frá liðinni viku. og kennir þar margra grasa, m. a. fáum við að sjá atriði úr alheimsfegurðarsamkeppn- inni, sem stendur yfir um þessar mundir, myndir frá Kúa stríðinu á Indlandi, og þá er Þættirnir um steinaldarmennina hafa notiS mikilta vinsælda meðal sjónvarpsáhorfenda. BókabúSir hafa lengi haft fil sölu myndablóð um þessa kumpána, en þau seldust lítið sem ekki neitt tll skamms tíma. Nú hefur brugðið svo við, að þau rjúka út eins og heitar lummur. brugðið upp fyrir okkur svip myndum frá Florens, en lista verkasöfnin þar hafa orðið fyr ir miklum skemmdum vegna flóða. Svo sem kunnugt er, eni Bretar mjög svo fastheldnir á Prá iandsmóti skátá í þæftinum „Við erum ung. erfðavenjur og ýmsar meiri hátt ar athafnir hjá þeim hafa hald izte óbreyttar í aldaraðir, þrátt fyrir gífurlegar breytingar á öðrum sviðum. í fréttaþættin um sjáum við borgarstjóra Lundúna skipaðan inn í emb- ættið, og er athöfn sú afar hátáðleg og mun eflaust koma ýmsum spánskt fyrir sjónir. Þegar Steinaldarmennimir hafa skemmt okkur j hálftíma tekur við þáttur Andrésar Indr iðasonar, „Við erum ung“. 4ntfr és er mjög lúnkinn við að gera unga fólkinu til harfis, og ekki bregst honúm bojalistin að þeSsu sinni. Við fáum að sjá svipmyndir frá tandsmót' skáta. sem haldið var við Hreðavatn á s. 1. sumri, bá er tízkusýnins og fram koma margir unglins ar og sýna nýjustu latatizki'"; frá Karnabæ. Rætt er við dönsku söng- og leikkonuna Framhairt á hls I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.