Lesbók Morgunblaðsins - 01.11.1925, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 01.11.1925, Blaðsíða 1
LESBOK MORGUNBLAÐSINS. Perðamenn: Skipstjóri. Bátsmaður. Vjelamaður. Stúdent. Vorið 1916 var kaupsýslumaður einn hjeðan úr Reykjavík staddur í Höfn. Honum var mjög hugleik- ið að fá fluttan vöruslatta frá Höfn hingað heim, en þá var mjög örðugt með flutning hingað. eins og menn muna. Hann hitti mann í Höfn, sem þar var í þeim erindum, að kaupa mótorkútter til sfldveiða. Ætlaði sjer að sigla kútternum hingað tfl lands. Varð það að samningum milli þeirra, að ferma kúttarann vörum þeim, sem Revkvíkingurinn vildi fá heim, og skyldi sá, sem vörurnar átti, vera bátsmaður á kútternum. Kútterinn var 38 smál. að stærð, svo eigi var/arkosturinn stór. — Hann var með 20 hesta vjel. Upphaflega var áformið, að fá viðgerð á bátnum í Höfn. Voru ráðnir til þess 4 menn. En verkinu miðaði svo seint fram, að þeim leiddist að bíða eftir því. Eftir hálfsmánaðar viðgerðardund á- kváðu þeir að ferma bátinn eins og hann var, og halda af stað. Var báturinn nú fermdur og ekkert rúm eftir skilið. þegar lestarrúg þraut var sett á þills? alt sem komst, timbur, pappír og 15 steinolíuföt. Þegar fermingu var lokið, var dagur liðinn að kvöldi. Svo er á- kveðið í hafnarreglugerðinni þar, að skip megi ekki liggja inni á höfn, með olíufarm að næturlagi. Varð því að fá hafnsögumann til þess að koma bátnum út úr höfn- inni fyrir nóttina. Báturinn var í sundinu hjá kauphöllinni. Þegar hafnsögumaður kemur, fæst vjelin eigi á hrevfingu með nokkru móti. Múgur og margmenni var nú farið að safnast á hafnarbakkann, til þess að virða fyrir sjer þetta úthafsfar, sem ekki- komst með nokkru móti hjálparlaust um höfn ina. En út þnrftú þeir að komast úr höfninni. Var þá það ráð tekið að bátsmaður og annar nafnkunn- ur borgar hjeðan úr Revkjavík, er þar var staddur, vörpuðu af sjer treyjunum, og settust snöggklædd ir undir árar á skektu einni. Ætl- uðu þeir að draga farkostinn á skektunni út úr höfninni. Tóku þeir knálega á árum, en múgurinn á hafnarbakkanum skemti sjer vel við að sjá aðfarirnar. „Þetta eru íslendingar". „Þeir eru að leggja af stað heim. )>eim veitir ekki af að hafa krafta í kögglum, ef þeir ætla að komast alla leið með þes3n móti“. En þegar þeir komu út í Knippilsbrúar-álinn tók straumur- inn við þeim og rjeðu róðrarmenn við ekkert, hvérnig sem þeir höm- uðust. Var nú þjettskipað af á- horfendum beggja megin álsins og yfir endilanga Knippilsbrú. En straumurinn bar alt saman að Kniþpilsbrú, og mátti búast '■ :i, að þar myndu þeir „stranda". En hafnsögumaður tekur það ráð, að varpa akkerum í skyndi, og fika sig síðan á akkerisfestinni inn í Kauphallarsundið aftur. Myndi nú sumum hafa þótt nóg nm, er farkosturinn komst eigi ferða sinna innan um hafnarsund- in, og átti Atlantshafið framund- an. En báturinu var fermdur og burtu þurfti liann að komast. Pónar nú hafnsögumaður til hafnarumsjónarmanns og segir honum hvernig komið sje. Ljet hafnarumsjónarmaður sjer fátt um finnast að verða fjTÍr ónæði frá annari eins fleytu og þessari. Að afloknum kvöldverði kom þó umsjónarmaður á gufubáti sínum. Þegar umsjónarmann bar að, kallaði hann hárri raustu á skip- stjóra hátkins og spurði hvert ferð inni væri heitið. Sagði skipstjóri til um það, ___

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.