Lesbók Morgunblaðsins - 11.04.1926, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 11.04.1926, Síða 6
1 .K8HÓK MORG0NBLÁÐSINS 11. apríl ’2tí. 0 talað í símann á ísufirði, var í verinu. Loks var það ráð tekið að sækja stúlku til næsta ba^jar, bún var heilsulaus og ónýt til ailrar útivinnu og hafði því ver- ið send á kvennaekóiann eitt ár sjer til hcilsubótar. Og svo riðu hjónin í erfisdrykkjuna. Nú hringdi tólið á Yxnalæk og kvennaskóla3túlkan fór inn til að svara. Bórnin á Yxnalðek eltu hana öil í haiarófu, þau ætluðu að nota tækifærið til að svala forvitni sinni, því þegar Guð- brandur var heima, harðbannaði hann þeim að koma inn i sima- stofuna. Nú gláptu þau öll á tól- ið eins og naut á nývirki og gátu ekki stilt sig um að láta undrun sina í ljósi með hávaða og gauragangi. Kvennaskólastúikan hafði Jagt heyrnartólið að eyranu, hallóaði en heyrði ekki neitt fyrir háreyst- inni í krökkunum, hvernig sem liún sperti eyrun. »Andskotans læti eru i ykkur, skammist þið ykkar og þegið þið, annars rek jeg ykkur út. Skárri eru það nú bölvuð ærslin«. Krakkarnir hljóðnuðu í bili og stúlkan gat greint lága rödd í simanum: »Þjer látið hæst sjálf, heyrist mjer!« Kvennaskólastúlkan náfölnaði. Hún var kjarklitil ag veikluð fyrir, og þetta var henni ura niegn. Þessi rödd kom úr und- irheimum en ekki frá menskum mönnum. Og hún hneig niður á gólfið með froðufalli og með tólið í hendinni. En börnin flýðu út og skeltu hurðinni á eftir sjer. I þessum stellingum var hún þegar hjóuin komu heira. Guð- brandur helti yfir hana fullri skjólu af vatni og hafði þrívegis endaskifti á henni. Loksins fór hún að ranka við sjer og stóð á því fastar en fótunum — á fót- unum gat hún að vísu ekki stað- ið ennþá — að hún hefði talað við skrattann í simanum. Og hún þorði ekki annað en tala í bljóði. Hún varð aldrei jafngóð eftir þetta og seint á engjaslætti sál- aðist hún. Þetta dulaifulla fyrirbrigði barst út um sveitina, og það fór hrylliugur um garala fólkið. Sím- iun varð aðal umtalsefni sveitar- Sjóvátr.: Sfsni 542. Munið eftir þessu eina innlenda íjelagi þegar þjer sjó- og bruna* ♦ryggid. Brunavátr.: Sfmi 254. Pósthólf 718. Simnefni: Insurance. Vigfns Gnðbrandssen klæðskeri. AAalstrætl 8' 4v»»lt byrgur af fata. og frakkaefnum.A1 taf ný efni með hreiTÍ ferð. AV. Saumastofunni er lokaA kl. 4 e. m. alla laugardaga. Efnalang Reykjaviknr Laugaveg 32 B. — Sími 1300. — Símnefni: Efnalaug. Hrein8ar með nýtísku áhöldum og aðferðum allan óhreinan fatnað og dúka, úr hvaða efni sem er- Litar upplituð föt, og breytir um lit eftir óskum. Eykur þægindi! Sparar fje! innar ogflestir urðu þeirrar skoð- unar að það væri bráðhættulegt að koma nærri honum. Hann gæti beinlínis drepið fólk. Guðbrandur bar sig karlmann- lega og kvað þetta vera hjátrú og kerlingabækur. En í laumi ljet hann líftryggja sig. l’eim fækkaði óðum sera komu að Yxnalæk til þess að nota sím- ann. Stundum liðu tvær vikur milli þess að Guðbrandur fjekk fimmeyring og stundum þrjár. Og það kom ekki ósjaldan fyrir að fólk, sem kvatt var til viðtals i símann, neitaði að svara. Að minsta kosti vildi það vita vissu sina fyrst um það, hver væri »hinu megin við vírinn«, Land8Ímastjórinn furðaði sig á skýrslunum frá Yxualæk. Á víð- lendum eyðiblöðunum var lítið annað að sjá en gapandi eyður; aðeins ein og ein tala á stangli eins og mús i eyðimörkiuni Sa- ba ra. Og bann ákvað að leggja stöðina niður, vegna þess að hún væri óþörf. Þetta vakti fögnuð í sveitinni, og þingmaðurinn, sem hafði út- vegað símann, fjell við næstu kosningar. En enginn varð þó glaðari en Guðbrandur. Hann hafði elst um 20 ár á þessum stutta tíma, sem hann var simastjóri og var orðinn hjartveikur og taugaveiklaður eins og rammfælinn hestur, þó haim ljeti lítið á þvi bera. Nú var hann laus úr stofufangelsinu og eins og nýr maður. Svoua fór um simanu á Yxna- læk. Og sveitinni var borgið. En um ástæðuna til þese, að svo fáir notuðu síraann þar, fjekk landsímastjóritm aldrei að vita. Síst kann mína svekkja lund^ síður yndi banna, Þótt jeg yfir gangi grund götu forlaganna. Björn Oiafssou.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.