Lesbók Morgunblaðsins - 16.05.1926, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 16.05.1926, Side 2
3 LESBÓK MO&aUNBLA&aiNa 16. m»í 1926. = Prentverk. = Um leið og vjer tilkynnum að vjer nú höfum fengið hið nýja og fallega prentletur vort, viljum vjer vekja athygli á að reynslan sannar, að hvergi fæst betri, fljótari nje ódýrari prentun en hjá oss. Miklar birgðir at pappir og umslðgum nýkomnar. isafoldarprentsmiðja h.f. nú vera á tvísýnu stigi. Fyrsta stórmálið ei' hreyfing sú, sem nú er uppi í þá átt, að sam- cina allar þjóðir við eitt sáttahorð — Alþjóðabandalagið og stofnanir þær, sem það hefir reist. Það eitt, að Alþjóðabandalagið skuli vera til, ber vott um, á hvc stórfeng- legum tímum við lifum. Spekingar og mikilmenni, alt frá tímum Forn-Rómverja, Leibniz, Ro- ussau, Kants, og til þeirra tíma scm „helga bandalagið“ var vi3 !ý’ði, hafa látð sig drcyma um bandalag milli Evrópuþjóða. Enginn þeirra, ekki einn einasti, gat látið sjer detta í hug, það, ser.i nú hefir komið á daginn, að stofn- rm risi, sem tengdi saman þjóðir alls mannkynsins, nndir forustn hvítra manna, þar sem allir ættu sjer fulltrúa og lög væru sett til verndar hinna verst stöddu lítil- rnagna. Yerður hægt að byggja örngga undirstöðu undir svo margþætta starfsemi? Getur alþjóðasamvinna orðið mönnum eðlileg og óþving- uð, án þess að menn tapi þeirri uppörfun, sem hið sjerstaka þjóð- erni veitir einstaklingum og þjóð- um? Takist þetta, munu eftirkom- endurnir líta til þessara ára sem tímamóta, þegar ný öld hófst, — heillarík öld fyrir mannkyn. — Mistakist þetta, verða þessi fir samt sem áður talin t.ímamót, því þá mun svo talið, að íitsjeð hafi verið um, að Evrópumenningin ætti sjer viðreisnarvon. Annað stórmálið, sem nú er á döfinni, er hin mikla umbreyting 1 verklegum efnum, sem örfaðist mikið á ófriðarárunum. Ný öfl eru nú tekin í þjónustu mann- kynsins, einkum á sviði rafmagns, ný flutningatæki fara í lofti, um láð og lög og í djúpi hafs. Og nýjar uppgötvanir á sviði þráð- lausra sendinga, boða umbylting- ar í lífi manna, sem jafnast á við breytingar þær, er stöfuðu frá vjelamenningu 10. aldarinnar. Vjelamenning 19. aldarinnar gerði Evrópuþjóðunum ldeyft að ná yfirráðum yfir heiminum, en liún leiddi líka eyðandi spillingu yfir þjóðirnar, — Hin næsta um- breyting á þessu sviði á að geta sameinað þjóðirnar og bætt nr þeim meinsemdum, sem nú baga þjóðfjelögunum hvað mest. Vjelamenning 10. aldarinnar hrakti fjölda fólks til hins óheil- næma stórborgalífs, rauf sam- heldni þjóðanna, skapaði and- stæðn milli borga og sveita. En sú breyting, sem nú er í aðsígi, ætti að jafná þessar misfellur, milli borga og sveita, og gera það að verkum, að fólk til sveita geti jafnt orðið aðnjótandi þæginda þeirra og skemtana, sem hingað til hafa verið fyrir borgarbúa eina. Miklar umbætur á sviði fjár- mála fylgdi iðnaðarskipulagi 19. aldarinnar. Þá tókst að sameina smálindir sparifjárins, í móðu stór fvrirtækjanna. Á síðari árum er framþróun fjármála komin á nýtt -svið, þar sem er skipulag láns- trausts og skuldamála um heim allan. Með þessu er fáum mönnum fengið álkaflega mikið vald í hénd ur, sem er hættulegt, fyrir þá sök, hve lítið ber á því, og hve starfs- aðferðir em lítt skiljanlegar. í þessu efni stöndum við á tíma mótum. Hjer er viðburðanna rás svo ör, að næsta kynslóð sker úr því hvort hinar síðustu fram- farir á verklega sviðinu hafa í för með sjer nýjar hörmungar og óþægindi, ellegar þær leiða bjart- ari og betri daga yfir marmkyn- ið. — Þriðja stórmál vorra tíma er þjóðfjelagsskipulagsmálin. Fram leiðslan hefir þróast stig af stígi, og við hverja breytingu, sem ú hefir orðið, hefir vinnufólkið orð- ið frjálsara. I irpphafi var vinnu- fólk í þraddóm og ánauð; síðar var það sjálfs sín ráðandi, að nafninu til; þá var samið um kaup á frjálsum grundvelli. — Vinnuveitendur voru að vísu svo sterkir, að þeir höfðu í öllum höndum við vinnufplkið i kaup- samningum. En nú eru öll þessi stig liðin hjá; nú semja fjelög og sambönd um kaup fyrir heilar stjettir. En þeir samningar, sem nú eiga sjer stað, milli verka- fóllks og atvinnurekenda, eni sí- feld barátta andvígra flokka. — Þeir ganga treglega, því þar er tortrygni og óvild ríkjandi, og 'sprettur af fyrirkomulagi þessn margt sem ilt er. Hjer þarf nýja aðferð. Sumir álíta, að engra brej*t- inga sje að vænta, fyrri cn stjettabaráttan er komin í algleym ing og annar aðili hefir gersigrað, en hinn sje að velli lagður. En aðrir álíta, að lausnina sje að finna með því móti, að samvinna takist milli andstöðuflokkanna, tr mætist á miðri leið. Næsta kynslóð mun sjá, liver endir lijer á verð- ur, og munu framfarir menningar vorrar fara eftir því, hvernig tekst að binda enda á þessi mál. — í þessu efni virðist sVo sem við stöndum á tímamótum. Má vera að hjer stefni til eyðingar og nið- urdreps — að öðrum kosti renni upp nýjir tímar friðar og rjett- dætis. •Að lokum er svo að sjá, sem

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.