Lesbók Morgunblaðsins - 05.08.1928, Qupperneq 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
247
borð og bregðum upp hafsauganu.
Sjáum við þá að skipaflotinn held-
ur áfram. En skipið, sem við höfð-
um skotið á og var um 1500 smál.,
var að sökkva. Togarar voru hjá
skipinu að bjarga mönnunum, en
tveir tundurspillar óðu þar um-
hverfis fram og aftur þangað til
mönnunum hafði verið' bjargað og
skipið sökk. Þá lagði hersingin á
stað og hvarf til norðurs.
Ekki htædd að fljdga
— þrátt fyrir ellina’.
Alderorf heitir þorp nokkurt
skamt frá Hamborg og í Alste-
dorf á heima áttræð kona, sem
heitir frtí Griittner. Það er skamt
síðan hún átti áttræðisafmæli. Ætt
ingjar hennar höfðu áður spurt
þana hvað hún vildi fá í afmælis-
gjöf — hvort hún vildi ekki fá
nýjan hægindastól, útsaujnað
skammel eða eitthvað þess háttar.
En þeim brá í brún er gamla kon-
an vildi fá það í afmælisgjöf að
fara í flugvjel! Þeir reyndu með
ölluTnóti að telja hana af því, en
hún sat við sinn keip.
— Þið þurfið svo sem ekki að
fljúga með mjeV, mælti gamla kon-
an gremjulega, og það var ekki
um annað að gera en verða við
bón hennar.
1 mörg ár hafði gamla konan
setið í hægindastól út við glugga
og horft þaðan á flugvjelar svífa
út í himingeiminn. Og hún hafði
mikið brotið heilann um hvernig
heimkynni hennar mundi líta út
ofan úr skýjunum. Þess vegna átti
hún sjer nú enga kærri ósk, en
að fá að ferðast loftvegu.
Elugvöllur Lufthansa er skamt
frá heimili hennar og á afmælis-
daginn fór dóttir hennar og sonar-
sonur með henni þangað.
— Við skulum nú fljúga langt
og eins hátt og unt er, sagði gamla
lronan, er hún staulaðist upp í
flugvjelina. Þau hin fóru með,
ekki vegna þess að þau langaði til
að fljúga, heldur vegna hins, að
þau voru hrædd um að frú Griitt-
ner mundi verða ilt á leiðinni. Það
ygr hvast og flugvjelin hoppaði
Absalon biskup. 800 ár eru nú liðin frá fæðingu Absalons biskups,
sem frægur er í sögu Danmerkur, bæði sem forvígismaður kirkjunnar
og stríðsmaður. Hann var fæddur árið 1128 í Sórey og dó þar árið
1201. Saga Absalons er merkileg á marga lund og skal hxxn ekki rak-
in hjer. En þess má minnast, að hann er „faðir Kaupmannahafnar".
Hann ljet reisa fiskimannaþorp á Sjálandi og nefndi Höfn og upp úr
því þorpi hefir höfuðborg Dana vaxið. Absalon biskup var grafinn
í Sóreyjarkirkju. Hjer á myndinni til vinstri sjest legsteinn hans. Til
hægri sjest skjaldarmerki hans, að ofan og að' neðan biskilpshringur
og silfurkaleikur sem fundist hafa í gröf Absalons.
og velti sjer á hliðarnar. En það
tók hún sjer ekki nærri. -
— Grunaði mig ekki að það væri
fallegt að líta yfir landið iir þess-
ari hæð, mælti hún.
Og svo var flogið langt og hátt.
En þegar lent var, sagði hún við
flugmanninn:
— Þetta er nú í Tyrsta sinn sem
jeg fer í flugvjel, ungi maður, en
þjer megið reiða yður á, að það
verður ekki í seinasta sinn. Þetta
hefir verið dásamlegur viðburður
í lífi mínu.
Samkepni mikil
hefir sem kunnugt er verið á
síðustu árum, milli enskra og
pólskra kolanámueigenda. Hefir
mi komið til orða að draga úr
þeirri samkepni, og vinna að' sam-
komulagi meðal námueigenda í
þessum tveim löndum.
Niðnr NiagaraO
í bolta.
í fyrra mánuði fór Kanadamað-
ur af frönskum ættum, Lussier að
nafni, niður „Skeifufoss“ í Nia-
gara í gríðarstórum gúmmíbolta.
Var liann innan í boltanum og
var honum hrundið frá landi
Kanadamegin við fossinn. Eftir
svo sem 50 mínútur var hann dreg-
inn á land nokkru neðan við foss-í
inn, Bandaríkjamegin, og er bolt-
inn var opnaður kom það í ljós,
að Lussier hafði ekki orðið annað
meint við þessa glæfraför sína, en
að hann hafði fengið nokkrai!
skrámur þegar knötturinn Ijet sem{
verst í fossinum og iðukastinrl
þar fyrir neðan. — Um 15 þúsund |
ir manna höfðu safnast saman hjá
fossinum til þess að horfa á þettai
dirfskubragð.
Lussier er þrið'ji maðurinn, sem^
farið hefir niður Niagara fossinn. *