Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1928, Side 6

Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1928, Side 6
310 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 'r Hvanndal prentmyndasmiður. Ólafur er ættaður úr Borgarfirði, sonur Jóns Ólafssonar í Galtavík, en móðir hans hjet Sesselja Þórð- tirdóttir frá Innra-Hólmi, Stein- dórsonar, af Deildartunguætt. Ól- afur stundaði sjómensku öðru hvoru um nokkur ár á þilskipum frá Reykjavík. Síðan lærði hann ttjesmíði hjá Sámúél Jónssyni, og fekk þar sveinsbrjef. Stundaði síð- an trjesmíði um hríð, en fór til Kaupmannahafnar árið 19Q7, gekk þar á teikniskóla, og lærði jafn- framt glerskiltagerð, og var fyrsti maðurinn, sem við hana fjekkst hjer heima. Hann kom heim 1908 pg fjekst hjer um tíma við trje- smíði og skiltagerð, en fór til Kaupmannahafnar aftur um haust- jð og tók þá að læra prentmynda- gerð hjá Hjálmari Carlsen í Kaup- mannahöfn, en var síðan í Þýska- landi 1909—1911, fyrst í efnafræð- isdeihl og teiknideild við gagn- fræðaskóla í Berlín og síðan við prentmyndagerð hjá Brockhaus í Leipzig, og lærði þar til fullnustu. Hann kom heim 1911 og fjekkst við ýmisleg störf, var m. a. túlkur ferðamanna; á stríðsárunum 1914 —1919 rak hann umboðssölu. En um haustið 1919 byrjaði hann þá iðn sína, sem enn stendur. Það þurfti meira en lítinn kjark til þess að ráðast í prentmynda- gerð hjer á þeim árum, er Ólafur byrjaði. Vjelar eru mjög dýrar. en lítil eftirspurn var að mynda- mótum fyrstu árin. Rafmagnsljós var þá óvíða og varð ÓJafur að nota hvern sólargeisla, sem kom inn um glugga á myndastofu hans i Gutenberg, til þess að framkalla myndirnar. Var þetta afaróþægi- legt og seinlegt og þurfti mikla þolinmæði til að standa í slíku. Varð atvinnan Ólafi rýr fyrstu árin og var hann nauðbeygður að hafa fleirí járn í eldinum. En smám saman hefir þetta lagast. Bóka og biaðaútgefendur eru farn- ir að skilja hve mikils virði mynd- ir eru og er nú svo komið að Ól- afur hefir um nokkur ár unnið við þriðja manna á prentmyndastof- unni og varla haft undan stund- um. Hefir álit hans stöðugt farið vaxandi, enda er hann maður fram úrskarandi samviskusamur og vandvirkur með afbrigðum. Lætur hann ekkert myndamót frá sjer fara nema því aðeins að hann sje ánægður með það. Ólafur hefir starfað niikið fyrir Morgunblaðið og flestar þær myndir, sem eru í Lesbók hefir hann gert. Hefir stundum verið naumur tíminn. Einu sinni þurfti blaðið að láta gera fimtán myndamót í einu. Ólafur fjekk ekki frummyndirnir fyr en um miðaftan, en klukkan 11 voru myndamótin komin, og birtust í blaðinu daginn eftir. Þetta er til marks um það hver afkastamaður Olafur er. Ólafur hefir altaf haft mikinn hug á því að gera prentmynda- gerð sína sem allra fullkomnasta að unt væri og hefir von um að geta gert, það. Síðasta Alþingi sýndi honum viðurkenningu með því að veita honum lítilsháttar ferða- styrk til útlanda, þar sem hahn ætlaði að fullkomna sig enn bet- ur í iðn sinni, meðal annars að læra aðferð til þess að gera lit- myndir. Er sú aðferð vandasöm og frábrugðin venjulegri prent- myndagerð. Er ólafur nú nýlega kominn úr siglingunni og hefir numið aðferð þessa. Býst hann við því að kaupa sjer innan skamms nýjar vjelar til þessarar vanda- sömu myndagerðar. En þegar svo er komið, þurfa menn ekki að sækja neina myndagerð til út- landa og þá verður hægt að gefa hjer út bækur og blöð með lit- myndum. Að vísu hafa prentsmiðj-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.