Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.1929, Qupperneq 1

Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.1929, Qupperneq 1
Byitingin l Hlðinræðlsliernum. í breska tímaritmu „Britannia“ er grein eftir einn af foringjmn Hjálpræðishersins, P. A. Macken- zie, um byltinguna í Hjálpræðis- hemum, þegar Bramwell Booth hershiifðingja var vikið frá. Segir þar meðal annars svo: i Hvernig stóð á byltingunni? Byltingin í Ilernum stafar af uppreisn, er vmsir rnenn gerðu gegn harðstjórn og hlutdrægni Bramwell Booths hershöfðingja. Hershöfðingiun er án efa mjög liæfur og duglegur stjórnandi. — Síðan hann tók við yfirstjórn Hersins að föður sínum látnum 1912, hefir vegur og velgengm Hersins aukist stórum. Árið 1912 starfaði Herinn í 38 löndum og nvlendum, en nú starfar hann í 83 löndum. Blaðaútgáfan hefir því nær tvöfaldast og foringjum, sem helga Hernum alla starfskrafta sína, hefir fjölgað um helming. Ef vjer lítum á Herinn sem gróðafyrirtæki, þá er Booth ein- hver snjallasti viðskiftastjóri vorra tíma. En vegna hlutverks síns, má ekki stjórna Hernum sem gróðafyrirtæki. Starf hans er mannúðarstarf. Herinn er alveg sjerstæð stofnuu. Þe^ar alt fer með feldu starfar hann þannig að eltki kemur í bág við vald og ákvarðanir hershöfð- ingjans. Hann er einvaldur um öll mál Hersins, og allir hermenn, æðri sem lægri, eru honum skil- yrðislaust undirgefnir. Hershöfð- inginn getur sett af hinn æðsta foringja, ef honum svo sýnist, fyrirvaralaust og án þess að sá foringi hefi neinn uppreistarrjett. Og hátt settan foringja í Lundún- um getur hershöfðinginn sent út Bramwell Booth og Mary dóttir hans. á ytsta hjara veraldar fyrirvara- laust, og látið hann taka þar við miklu óveglegri stöðu. Þetta fyrir- komulag getur því aðeins blessast að hershöfðinginn njóti fylsta trausts undirforingja sinna. William gamli Booth hershöfð- ingi var harðstjóri á sínu vísu, en hann var elskaður og undir- foringjar hans vildu lieldur þiggja föðurlegar ávítur hans en hól annara. Þeir vissu, að hann var brennandi af áhuga fyrir málefni Jiví, sein þeir höfðu helgað líf sitt, og hann sýndi þeim þá mann- úð að hann ávann sjer takmarka- lausa ást þeirra og trúnaðartraust. Bramwell Booth er gerólíkur honum, því að þrátt fyrir allan áhuga sinn um velgengni Hersins, virðist hann hafa verið betur til Jiess fallinn að verða bankastjóri eða lögfræðingur. Hann er framúr- skarandi skipulagsmaður, og at- hugar gaumgæflega alla smámuni, cn J>að er þó vitsmunum föðursins, en ekki iðni sonarins að þakka, að - Herinn er orðinn J>að, sem hann er. I Aðdragandi byltingarinnar. Pyrstu árin eftir fráfall gamla Booths stjórnaði Bramwell Bootli Hernum svo, að allir voru ánægðir. Þótt hann væri enginn ræðumaður, gat enginn tekið honum fram sem herráðsforingja og hann var ágæt- m skipulagssmiður. En skömmu eftir 1914 fór að bera á óánægju með hann lijá herforingjunum. Undirforingjar og alþýða fengu J)ó ekkert að vita um þetta. Ókunnugir geta ekki dæmt um það, hve rjettmæt þessi óánægja var. Aðalástæðan, sem herforingj- arnir höfðu fram að færa, var sú, að J>eir væri beittir binni mestu

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.