Lesbók Morgunblaðsins - 24.03.1929, Qupperneq 1
12. tölublaS. Sunnudaginn 24. mars 1929. IV. árgangur.
Knattspymufielag
Reykjauíkur.
30 ára afmcFli.
Upphaf íþróttahreyfingar.
Árið 1895 fjekk Björn heitinn
Jónsson ritstjóri skotskan mann
til Isafoidarprentsmiðju, sem
James B. Ferguson hjet. Var
hann hinn mesti íþróttamaður,
hafði æft „bar“-leikfimi í'mörg
ár og hlotið 6 heiðurspeninga fyr-
ir. Þegar hingað kom safnaði
hann þegar um sig ungum mönn-
um og tók að kenna þeim fim-
leika, knattspyrnu, hlaup og fleiri
íþróttir, og má ótvírætt telja hann
brautryðjanda íþróttahreyfingar-
innar hjer á landi.
Fyrrsta veturinn sem hann var
hjer, kendi liann fjölda mörgum
og valdi svo úr þá bestu og stofn
aði úrvalsflokk og voru í honum
meðal annara þessir: Adam Bare-
ley Bigmundsson, Sigurður Þor-
láksson, Jón Sigurðsson, bræðurn-
ir Ólafur og Sveinn Björnssynir,
Vilhjálmur Finsen, Hannes Helga
son og Pjetur Jónsson söngvari.
Með þessum mönnum og nægilega
mörgum áhugamönnmn öðrum,
byrjaði hann svo knattspyrnuæf-
ingar. Má þar á meðal nefna Ólaf
Rósinkrans, Guðjón Einarsson
prentara, tvo Skota sem voru í
„Glasgow", og svo voru nokkrir
piltar úr latínuskólanum. Æfing-
ar fóru fram suður á Melum, á ó-
ruddu svæði, en þó lærðu menn
helstu reglur knattspyrnunnar.
Eftir burtför Fergusons tók 01-
afur Rósinkranz við forystunni og
má eflaust þakka honum það
manna mest, að sú list lagðist
ekki alveg niður aftur. Mestan
dugnað í því að smala mönnum
Þorst. Jónsson, Arni Einarsson,
form. 1899-1911 form. 1913—’19.
saman til æfinga sýndu þeir
Adam Barcley og Pjetur Jónsson,
en Guðjón Einarsson var ætíð
sjálfvalinn markvörður og þótti
afkastamikill þar.
Undir aldamótin voru margir
latínuskólapiltar farnir að æfa
knattspyrnu, og leiðbeindi Ólafur
Rósenkranz þeim. Má meðal
þeirra nefna bræðurna Skúla og
Pjetur Bogasyni, Gunnlaug Claes-
sen, bræðurna Ingvar og Magnús
Sigurðssyni, Jón Isleifsson, Jón
Ofeigsson, Sigurjón Jónsson og
Björn PáTsson (Kalman).
Sýndi hann sjerstakan áhuga á
Iþróttinni og skilning fyrir því
hvernig menn gæti haft hennar
best not og tekið framförmn. Náði
hann í eitt eintak af enskum
knattspyrnulögum og þýddi þau
smám saman, einn kafla undir
hverja æfingu og las upp áður
en æfing hófst. Með þessu móti
tókst mönnum að fylgja ákveðn-
um reglum í leik, t. d. um rang-
stöðu (off side) o. s. frv.
A þessum árum byrjuðu og fje-
lagsmenn á því að vinna nokkurs-
konar þegnskylduvinnu við það
að hreinsa grjót af knattspyrnu-
vellinum — unnu jafnan við það
hálfa stund áður en leikur hófst,
og reis þar seinna upp á hinu
rudda svæði hinn gamli íjþrótta-
völlur.
Fyrsta knattspyrnufjelag
íslands stofnað.
'l'alið er að „K. R.“ sje fyrst
stofnað í marsmánuði 1899, því
að þá komu nokkrir ungir menn
saman í búð Gunnars Þorbjarnar-
sonar (þar sem Halldór R. Gunn-
arsson verslar nú) og bundust
fjelagsskaj) um það að kaupa
knött. Lagði hver maður fram 25