Lesbók Morgunblaðsins - 05.05.1929, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 05.05.1929, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 143 Sýningar á Spáni. 1 þessum mánuði verða opnaðar tvær stór- ar sýningar á Spáni, önnur í Bareelona, en hin í Sevilla. Sýn- ingin í Sevilla á að sýna menningarsamband spönsku þjóðarinn- ar og hinna spönskumælandi þjóða í Suður-Afríku. Á myndinni hjer að ot'an sjest aðalsýningarhöllin og er hún ekkert smásmíði. notaðar á kvenhatta. En negrarnir í Vestnr-Indíum hafa miklar mæt- ur á hinu ljúffenga kjiii i lians og fara því, ekki meir en svo eftir friðuninni. Það reýndist því erfitf að vernda hann á Andros, enda er það skilj- anlegt, þegar litið er á við hvaða lrjör negra-grevin eiga að búa. — Þeir lifa mest á hveiti, hrísgrjón- um og fiski, og fá sjaldan nýtt kjöt. Þegar þeir á veiðiförum sín- nm mæta flamingóflokk, reyna þeir að láta greipar sópá, enda er auðvelt að veiða hann. En flam- ingóinn verpir sjaldan nema einu eggi á ári, svo að ekki má útrýma miklu til þess að tilfinnanlegt verði. Annars er fuglinn einkennilega gerður frá náttúrnnar hendi — Hann er einskonar millistig á milli vaðfugls og sundfugls; fætur hans minna á hegra, en sundfitin á gæs, hálsinn minnir á trönu og röddin — slík hljóð getur engin vera á jarðríki gefið frá sjer. Lengi vafðist. það fyrir fuglafræðingum í hvaða hóp þeir ættu að skipa honum, loks ákváðu þeir að láta hann skipa hóp fyrir sig, og skoð- uðu hann sem einasta afkomenda af útdauðri fuglategund. Svona skepna á bágt með bar- áttuna fvrir lífinu. — Hún þarfn- ast verndar mannanna, ef hún á að hafa nokkra von um að lifa lengur. Sá maður, sem best hefir reynst þessum mállausú meðbræðrum okk ar, er Elgin W. Forsyth. Verk hans í þágu fuglanna hefir vakið aðdáun meðal fuglafræðinga um allan heim, og heiðursmerkjum hefir rignt yfir hann, frá nátt- úrufræðifjelögum, söfnum og há- skólum. Engin fórn, engin áhætta hefir verið of mikil fyrir hann, þeg ar honum reið á að vernda bless- aða fuglana sína. Hann er alt í öllu á Andros, hefir á hendi allar opinberar stöður. Hann er í senn dómari, lögreglustjóri, póstmeist- ari og margt fleira. En það skyldi enginn halda að slíkt sje neitt sældarbrauð, því að þau hjónin verða að ferðast 50 km. á sjó, til að hitta hvíta menn. í upphafi hafði enginn maður þugmynd um það, hvar á eynni flamingóarnir lifðu. Menn voru að leita á svæði sem skifti þús- undum ferkílómetra, áður en þeir fundu heimkynni fuglanna. Fyrsta árið misti líka einn af samverka- mönnum Forsvth's lífið — hann festist í feni og fanst örendur löngu seinna. Loks fundu menn samt bústað- inn á sunnanverðri éyjunni, umgirt ar. af næstum ófærum mýraflák- um. Það kom í ljós, að þar lifðu um 2500 fuglar. Tveir varðmenn voru settir þar til að vernda fugl- apa fyrir veiðimönnum. Á hverju ári skifta fuglarnir um samastað, og verða menn þá að leita þeirra á ný. En hvernig sem þessu nú er varið, þá vernd- aði Forsyth fuglana sína svo vel, að tala þeirra tvöfaldaðist. En I92fi skall á ægilegt óveður. — Forsyth fekk skipun um að hjálpa fvrst hinu húsnæðislausa og svelt- andi fólki í Andros, sem hafði mist allar eigur sínar í óveðrinu. Eftir að hann hafði bætt úr ýtrustu neyðinni, gat hann farið að sinna fuglunum. Þeir höfðu farist í hundraðatali. En hann misti ekki kjarkinn. Nú var um að gera, að vernda þá vel, sem eftir lifðu, til af halda þeim við. Og það bar ekki á öðru, en að þeim ætlaði að fara að fjölga aftur, en |)á kom óveðrið í haust, sem svo að sc gja hefir útrýmt þeim. . Norskur blaðamaður liitti For- syth að máli í vetur, er hann var í Washington, til þess að tala við stjómardeild þá, er hcjfir með Yestur-Tndíur að gera.Hann skýrði frá því, að fuglinn væri einrænn og vildi helst lifa út af fyrir sig, með fjölskyldu sinni. Það hafði liðið langnr tími, áður en hann kyntist venjum fuglsins. Menn vissu ekkert um hann, fram yfir það að menn sáu flamingóa-,ský‘, heyrðu kvak þeirra, og síðan ekki söguna meir. Nú vita menn vel, hvernig þeir lifa. Með hinu langa, bogna nefi sínu, Areiða þeir lindýr og smáfisk úr sjónum, eða mýrarpollum. Fvrir nokkrum árum voru til flamingóar á Kúbu, Floridaskaga og Karaibeyjeunum, en j>ar eru jséir alstaðar horfnir. Sjeu þeir nú útdauðir á Andros, þá hefir fugla- ríkið mist einn af sínum fegurstu j>egnum. í Evrópu og í Norður-Afríku lifir önnur tegund, (Phoenicopter- us roseus) rauð á lit, en hún er ekki líkt því eins falleg og ame- ríksku flamingóarnir. ■—»—<•;«>---------

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.