Lesbók Morgunblaðsins - 25.08.1929, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 25.08.1929, Síða 6
270 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS «f fornum Eskiuióa bygðum. En bvernig á því stendur, að Eskimó- a-r flýðu ]>essi hjeruð, vita menn e.igi, því að þó loftslagsbreyting íiafi orðið, hefir slíkt ekki sv'o mikil áhrif á afkomu Grænlend- ing'a, En eftir þeim athugunum, sem jeg hefi gert þarna norður frá, er auðsætt, að loftslag í Scor- esbysund hjeruðunum er hlýrra nú e» verið hefir á undanförnu tíma- bili. Koma þær athuganir lieim við þam athuganir, er dr. Nörlund hef- ir gert á Vestur-Grænlandsströnd- inni, að þar sje einnig að hlýna. Mínar athuganir á því efni byggi jeg m. a. á því, að til Scoresby- sund eru nú að koma fuglategund- ir, sem eigi hafa verið þar áður. Má m. a. nefna urt og kjóa og álftir. Á næstu árum ætlar Alwin Pe- d%rsen að vinna úr rannsóknaefni því, sem hann hefir safnað í Sco- resbysund, en siðar býst hann við að fara norður til Thule, nýlendu Knud Rasmussen, sem er nyrsta iftannabygð á vesturströnd Græn- lands, og gera þar samsknnar rann- sóknir og hann hefir gert á austur- ströndin'ni. Svíarnir frá Ukrainc komnir til Svíþjóðar. í skeytum hingað hefir verið getið um íbúa sænska þorpsins í Ukraine, er nýlega .eru komnir til Sví])jóðar. Saga þeirra er allein- kennileg. Það var árið 1781, að nokkrir sænskir bændur fluttu búferlum til Rússlands. Það var langt frá, að þeir færu góðfúslega. Þeir höfðu blátt áfram verið seldir þangað. Það var Katrín drotning II., sem fjekk af Magnúsi Stenbock, er þá rjeð ríkjum í Svíþjóð, eignarhald ó eynni Dagöy, gegn því, að hún greiddi spilaskuld hans. í þá daga fylgdu bændur jörðum eins og kvikfje, og Katrínu drotningu datt því í hug, að nota bændurna til að rækta blett í Ukraine, en það hjerað var í mestu niðurlæg- ingu. Þeim var skipað um borð í rússneskt herskip, er flutti þá til Eistlands. Þaðan fóru þeir á kerr- um, er uxar drógu, til Moskva. Þar höfðu þeir vetrarsetu. En vor- ið eftir lögðu þeir af stað aftur og undir árslok 1782 voru þeir komnir á áfangastað sinn í Ukra- ine við ána Dnjepr. Þeir höfðu mist marga menn á leiðinni. 1300 talsins höfðu þeir verið, er þeir fóru frá Dagöy í Eystrasalti, en 900 vtoru eftir, er á áfangastað kom. 400 höfðu dáið á leiðinni af sulti og kulda. Árið eftir braust út farsótt og ljest þá nær helmingur útflytjend- anna. í byrjun 19. aldar voru að- eins 300 sálir eftir af þeim, er kom ið höfðu, en lífsþrótturinn var mik ili, og það sýndi sig brátt, að nýja kynslóðin þoldi betur lofts- iagið og umhverfið. Hið merkilega var, að þeir hjeldu tungu sinni og siðum og blönduðust mjög lítið nábúunum. Þeir sem giftust út fvrir kynstofninn, voru teknir í tölu Ukrainebúanna og hjelst því sænski stofninn óblandaður. Það var.ekki fyr en 1880 að Svíar fóru að veita þessum lönd- um sínum athygli. Ljetu þeir þá byggja handa þeim kirkju og hafa þeir síðan haft sænska presta. Einnig hjálpaði heimalandið þeim til betri mentunarskilyrða. Eigin- lega líkaði Svíunum þama vel, enda þótt þeir mistu aldíei endur- minninguna um heimalandið, en

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.