Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1929, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1929, Blaðsíða 6
326 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS tSðum og yeðráttu og áhrifum þessa á líf og liag manna. Á öðr- um stað er lýst viðburðum, sem tcngdir eru við ákveðna daga og kafla ársins, t. d. Þorraþrælsbylur- inn í Odda. Enn eru lýsingar á venjum og hátturn í sambandi við rcerka daga, t. d. jólin, Oig heiti helstu merkisdaga ársins skýrð og útlistuð. ÞeSsu næsj er flokkur, er fjallar um Þjóðsögnr og æfintýri. I þeim fiokki eru margar helstu þjóð- sögur vorar t. d. Bakkabræður, Hellismenn, Gilitrutt, o. m. fl. og ýmis merk æfintýri erl., t. d. Hans og Grjeta, Rauðhetta, Mjallhvít, Þyrnirósa, Öskubuska; merkustu ærfintýri H. C. Andersens: Stúlk- an með eldspýturnar, Hans klaufi, Nýju fötin keisarans, Eldfærin o. fl. Þar er kafli úr för Gullivers til Putalands, Þúsund og einni nótt og Robinson Crusoe og fjölda rc.argt annað. Þá er flokkurinn Gaman og alvara. í honum er, eins og nafn- ið bendir til, sitt af hverju, og þó einkum það, sem e'kki á heirna í neinum hinna flokkanna. Þar er gletni og gamansemi, t. d. kaflinn um Hjálmar tudda, eftir Jón Thor- oddsen, og alvara og geigur eins og t. d. kaflinn Myrkfælni úr sögnnni Sigurður forinaður, eftir Gest Pálsson. Og svo eru í þessum flokki öll millistig milli þessara tveggja andstæðna. — Er nú alt safnið komið út? — Nei. Enn éru nokkrar arkir óprentaðar af þeim, sem upphaf- lega voru ráðgerðar, og svo er meiningin, eins og jeg sagði áður, að auka safnið alveg eftir þörf- um, og væri mjer kært að fá tillögur frá kennurum og öðr- um um efni, er mönnum þykir etm vanta, og mun þá fljótt verða úr því bætt. — Hverjum er Lesarkasafnið ætlað aðallega? — Efni lesarkanna er að sjálf- sögðu mjög misþungt. Þar er efni við hæfi barna, sem eru að byrja að lesa, ög efni, sem erindi á til fullorðinna, og ætti því að eiga erindi víðar eú í skóla. En eins og geta má nærri, kemst eigi að jafnaði fyrir nema lítið af hverju viðfangsefni fyrir sig, og tiltölu- lega stuttir kaflar úr heilum bók- um. Tilgangurinn er líka, eins og jtg áður sagði, frekar sá, að vekja löngun og áhuga lesendanna að kynnast því betur, sem þarna er drepið á, heldur en hitt, að tæma viðfangsefnin til hlítar. Þegar les- arkirnar eru notaðar i skólum. er það hlutverk kennaranna', að velja efnið og setja saman bók við hæfi ncmendanna, þannig að allir ne'm- endurnir hafi sömu arkir í safni sínu. / Þannig sagðist Jóni Ófeigssyni frá, og þótt ekki sje langt um liðið, síðan fyrstu arkirnar komu út, liefir það sýnt sig, að les- arkirnar eru engu síður notaðar í heiinahúsum en við kenslu í skól- um. Menn hafa lært að meta kosti þess, að geta sjálfir raðað saman fjölbreyttri og tiltölulega ódýrri bók, til fróðleiks og skemt- unar fyrir he'imafólk sitt. Þegar á f.vrsta ári voru lesarkirnar ekki aðeins notaðar af börnum og barna skólum, heldur og lesnar á vök- unni á sveitabæjum, þar se'in sá gamii og góði siður er enn við líði. Bílferð d íslandi. Englendingur, sem hjer var í sumar, R. Herring að nafni, hefir skrifað í enskt blað grein um bílferð til Þingvalla, og birtist bje'r útdrátti'r úr henni. Jeg hefi aðeins stigið upp í einn af hinum 300 bílum, senx erxx í Revkjavík, og þótt jeg hafi í hyggju að fara til fslands aftur, þá efast jeg urn að jeg stigi þar upp í annan bíl. Ekki svo að skilja, að bíllinn hafi ekki verið þægileg- xir og að bílstjórinn hafi ekki bæði verið kurteis og áræðinn, heldur var vegurinn þannig, að hann blátt áfram svifti mann þeirri til- finningu að hafa fasta jörð undir fótum. Bíllinn var ámeríkskur og við ætluðum að fara til Þingvalla. — Vegur var góður í Reýkjavík og nágrenni. En svo fór að rigna pg vegurinn versnaði stöðugt. Hann var ósljettur, grýttur og holóttur. Bílstjórinn reyndi að krækja fram hjá holunxxm, en svo sprakk einn hjólhringurinn. 1 hálfa klukku- stund var bílstjórinn að gera við hann, og kom aftur rennvotur upp i bílinn. Þetta var miðja vegu milli Þingvalla og Reykjavíkur. Eftir ]>etta opnaði hann bílhurðina eftir alla verstu hnykkina til þess að aðgæta hvort ekki hefði sprxing- ið aftur. Einu sinni þe'gar liann opnaði hurðina, fór annar bíll framhjá og hann reif hurðina af bílnum okkar, en það breytti engu öðru en því, að nú gat bílstjórinn altaf litið út án þess að þurfa að opna hurðina. A öðrum stað riðum við niður mann á bílxinga. Hann vildi ekki víkja, svo að við ókum bara á hann — hispxxrslaust, liægt en ákveðið. En þá höfðum við setið í bílnum í sex stundir og vor- um svo aðsettir, að við höfðum engan óhuga fyrir þessu og urðum ekki einxi sinni hissa. Einn glugginn á bílnuin brotn- aði af hristingnum. Jeg var altaf með hausinn uppi t bílþakinxi og var sem jeg kæmi varla við bílinn annars staðar og einu sinni, er jeg rak mig hastarlega uppundir, hljóðaði jeg, en bílstjórinn sagði: „Þetta fer í vana hjer á lslandi.“ Ekki var betra á heimleiðinni, því að þá var ekið ofan í móti og bilstjórinn hraðaði ferðum,, vegna þess, að hann var orðinn of seinn. Á einunx stað hljóp fjár- hundur fyrir bílinn og við ókum yfir hann. Mjer varð litið aftur og só að bíllinn hafði farið yfir hundinn, en liann stökk á fætur og sá ekki að neitt gengi að hon- um. Hundurinn var líka íslenskur. Það borgaði sig að fara þessa ferð. En mundi nokkur annar staður eil Þingvöllur hafa getað bætt manni upp ferðalagið? Jeg reyndi ekki að rannsaka það, því að næst þegar jeg fór í ferð, fekk jeg mjer hest og var ánægður með hann.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.