Lesbók Morgunblaðsins - 12.01.1930, Blaðsíða 8
16
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Smælki.
. Það var >einu sinni trnboði, sém
hjet Armstrong. Hann kom í lítií
þon') og helt þar samkomu. Lækn-
irinn í þorpinu var alkunnur trú-
.levsingi og hann fór á samkomuna
ásamt þremur vinum sínum, til
þess' að hrella trúboðann. Fyrst
sptirði hann Armstrong: „Er það
ekki rjett að þjer prjedikið fyrir
sálir mannanna?“ —„Jú“, svaraði
hinn. Þá spurði læknirinn: „Hafið
þjer nokkru sinni sjeð sál?“ ,Nei!‘
„Hafið þjer þá heyrt sál?“ „Nei!“
„Hafið þjer bragðað sál?“ „Nei!“
„Hafið þjer fundið lykt af sá}?“
„Nei!“. „Hafið þjer fundið til sál-
ar?“ „Já, guði sje lof“, svaraði
Armstrong. „Gott, lijer eru 4 at-
kvæði gegn eiþu um það að engin
sál sje til !“
Þá spurði Armstrong læknirinn:
„Hafið þjer sjeð sáisauka?11 ,Nei!‘
,Hafið þjer heyrt sársauka?1 ,Nei!‘
„Hafið þjer bragðað sársauka?“
„Nei!“ „Hafið þjer fundið til sárs-
auka?“ ,Já‘. Þá sagði Armstrong:
„Það eru þá líka 3 atkvæði gegn
einu um það að enginn sársauki
er til. Þó trúið þjer því og vitið
það að hann er til og eins trúi jeg
því og veit það að til er sál!“
| Lögfræðingur: Ef jeg á að taka
mál yðár að mjer og reyna að fá
yður sýknaðan, þá verðið þjer að
gegja mjer alt eins og er.
Ákærði: Já, alt skal jeg segja
yðúr, nema það hvar jeg faldi
stolnu peningana.
Aðkomumaður: Hvernig er það
með póstsamgöngur hjer í sveit-
inm.
Bóndi: 'Jæja, það rekur hjer á
land flöskupóst einstaka sinnum.
— Er bankastjórinn inni ?
— Já, en hann sleppur út eftir
þrjá mánuði. ’
Rannsóknaleiðangur „DaJia“. Dr. Johs. Schmidt, sem er einn
þektasti hafrannsóknari á Norðurlöiidum hefir stjómað miklum
rannsóknaleiðangri danska skipsins „Dana“. Hefir hann siglt því
kring um hnöttinn og gert rannsóknir í öllum úthöfum. Dr. Schmidt
varð fyrir nokkrum árum kunnur fyrir rannsóknir sínar á lifnaðar-
háttum álsins. Hefir hann síðan haldið þeim rannsóknum áfram með
góðum árangri. Myndin hje'r að ofan sýnir skipið „Dana“, en neðst
til vinstri er mynd af dr. Schmidt. Myndin hægra megin er af
álsseiði. 1 miðjunni er mynd af djúpsævisfiski, sem Dana veiddi í
Suðurhöfum. Hefir hann ekki þekst fyr. Hann er afar einkennilegur
á vöxt, en þó einkum fyrir það að upp úr trantinum er geysilangur
þráður með Ijósi í endanum.
Þegar þau giftu sig Ólafur rík-
iserfingi Norðmanna og Mártha,
hin sænska prinsessa, gaf sænska
blaðið „Yecko-Journalen“ út sjer-
stakt blað í tilefni af brúðkaup-
inu, og átti alt, seúi inn kom fyrir
sölu á því blaði að ganga til góð-
gerða og Mártha prinsessu falið að
úthluta því. Agóðinn af sölunni
varð 25.000 krónur og hefir prins-
essan nú útbýtt því fje á þennan
hátt: 10 þús. ganga til góðgerða-
starfsemi í Svíþjóð, 1000 krónur
ganga til fátækþnga í hverri af
þessum þrem borgum, Ósló, Björg-
vin og Niðarósi, 1000 krónur til
fátækra í Finnmörk, 500 kr. til
Norges Utdannelsesfond, 500 kr.
í húsbyggingarsjóð K. F. U. K.
í Ósló. 10 þúsund krónum er varið
til a£ stofna sjerstakan sjóð, er
ber nafn krónprinsessunnar.
í veitingahúsi. Gestur ávarpar
þjóninn: Nei, eruð þjer nú orðinn
þjónn hjerna, Petersen?
Þjónninn: Já, en jeg borða ekki
hjer!
i* h.f.