Lesbók Morgunblaðsins - 05.10.1930, Blaðsíða 6
310
LBðBÓK MOROUNBLÁÐSINS
í talmynd er nýlega var tekin af índíánalífinu, eins og það var, er Indíánar skiftu höggum
við hvíta menn, ljeku meðal annars nbkkrir Indíánar. Sjest hjer mynd af þrem þeirra, er þeir horfa
yfir lijeruðin, sem fela í skauti sjer allar endurminningarnar um baráttu forfeðra þeirra og sigra.
Spákonan
maddama Laila.
Einhver frægasta spákona heims
ins er Terfren Laila. Hún er ind-
versk að ætt og fædd í Singapore.
Þegar hún var fjögurra ára gömul
fór að bera á yfirnáttúrlegum hæfi
leikum hjá henni, og var hún því
fengin prestum í hendur, og ólst
hún upp hjá þeim, þangað til hún
var 9 ára gömul. Síðan hefir hún
verið spákona og sjeð marga hluti
fyrir. Hún hitti Mussolini fyrir
mörgum árum, er hann var á flæk-
ingi um álfuna, og þá spáði hún
honum því, að hann mundi verða
einvaldsherra í ítalíu. Fyrir nokkur
um árum spáði hún því fyrir Carol
Eúmenaprins, að hann mundi
verða konungur í Rúmeníu 1930.
Og árið 1928 spáði hún vesturflugi
Costes á þessu ári.
Fjöldi tignarmanna og stjórn-
málamanna trúir á hana, t. d. Bri-
and, Masaryk, Mussolini og Carol
konungur. Og því var það núna eft
ir kosningarnar í Þýskalandi, að
eÍTm af helstu stjórn m á 1 a mimnun-
um þar fekk hana til þess að koma
til Berlin og spá um framtíð Þýska
lands.
Litlu eftir komu hennar þangað
fengu blaðamenn leyfi til þess að
tala við hana og gaf hún þeim þá
ofurlítinn forsmekk af spádómum
sínum. Hún sagði ,að í desember-
mánuði mundi upp rísa í Berlin
þjóðfrömuður, sem tæki sjer ein-
ræðisvald í landinu. Hann mundi
koma skipulagi á iðnaðarmálin, svo
að næsta vor væri algerlega bætt,
úi atvinnuleysinu.
Ennfremur sagði hún, að ný bylt
ing mundi verða í Rússlandi eftir
15 mánuði. Á eftir myndi verða
smábyltingar í Jugoslavíu, Albaníu
og Italíu, en byltinguna í ítalíu
mundi Mussolini kæfa þegar í
byrjun.
Hún spáði því einnig, að 1931
mv\ni dr. Eckener fara í langa
f'lugferð og uppgötva nýtt land.
Max Schmeling muni þrisvar sinn-
uin verða heimsmeistari í hnefa-
kik og prinsinn af Wales muni
gifta sig spanskri aðalsmey á
næsta árj,
Hvenær
koma farfuglarnir?
Það er kunnugt að farfuglarnir
koma hingað misjafnlega snemma
á vorin, af hverju sem það stafar.
Þjóðtrúin segir að þeir viti á sig
veður, finni það á sjer hvort vel
eða illa muni viðra hjer á landi á
vorin og komi fyr en ella þegar
snemma vorar, en seint þegar vor-
harðindi sje. Margt virðist benda
á að eitthvað sje hæft í þessu, að
fuglarnir viti á sig veður. Er til
marks um það, að stundum eru
farfuglar hjer allan veturinn t. d.
skógarþrestir. Bregst þá ekki að
vetur verður mildur. I vetur sem
ieið og í fyrravetur höfðu lóur
vetursetu hjer á Suðurnesjum, enda
var þá framvirslrarandi mild tíð.
Mönnum er og enn í fersku vninni
hvílík ókyrð og óeðli.greip rjúp-
urnar haustið fyrir frostaveturinn
mikla — löngu áður en frpstin
byrjuðu. Það var eins og þæá hefði
engan frið á sjer og þyrptust í
tugþúsundatali niður í bygðjr