Lesbók Morgunblaðsins - 26.07.1931, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 26.07.1931, Blaðsíða 3
LESBÓK MORG-TJNBLAÐSINS W' 227 «kki. Það kom því þráfaldlega fyr- ir, að af bæjum sem voru lengst frá vörunum (það voru kallaðar varir þa.r sem skipin voru í sand- inum og róið var frá, t. d. Holts- varir, Útfjallavarir, Austurfjalla- varir, Miðbælisvarir) riðu sjómenn í sandinn, eða á næstu bæi við varirnar, og höfðu ekkert upp úr nema. ferðina. Fór mörgum sinnum á' sömu leið. Það kom líka fyrir og ekki svo sjaldan á morgni dags og ef sjó- lægt var, að sæist veifa í sandin- um (vörunum). Það var það sama. sem kall um það, að nii væri ró- andi. Þá ruku allir, sem veifuna sáu, upp til handa og fóta, tóku sinn reiðhest, skinnklæði, sjófæri, sjóvetlinga og sjóskó, og þeystu á stað, og hver þótti bestur sem fyrstur var kominn að sínu skipi. Stundum varð ekkert úr þessu anna.ð en ferðalagið, og sandstöð- ur. Að öðru leyti fór hver og einn að heiman frá sjer svo tíman- lega þegar á róðrum stóð, að hann væri kominn að skipi sínu laust áður en lagljóst var, eða laust fyrir sóla-ruppkomu, því mjög þótti það fiskisælt, að vera kom- inn á fiskimið, eða til fiskjar í sólarupprás. Svo var eitt sem kallaðar voru sandstöður. Það var ekki víst þótt einhver veifaði, að sjórinn væri fær (dauður) þegar til kom. Eins var það að þó í róðrum stæði, og farig væri frá sjónum dauðum að kvöldi, gat á honum verið svo mikill morgungúll, að engu tauti varð við hann komið. Sjálfsagt hefði hann orðið blíðari hefði mönnum þá hugkvæmst að gefa honum inn nóg af lýsi, en í þá daga var það ekki uppgötvað að lýsi ætti svo vel vig þesskonar morgungúla. Sandstöðurnar voru taldar leið- inlegar ,máske marga klukkutíma í kulda og stormi og jafnvel rign- ingu. Þó heyrði jeg mest talað um kuldann. Menn tóku því þa-ð til bragðs að glíma, fljúgast á, stökkva eða halda á sjer hita á annan hátt. Var þetta. óþægilegt í ægisandi, en á öðru var. ekki völ. Formenn og aðrir höfðingja-r, svo sem bitamenn, lögðu lítið upp úr þeirri ungmennaskerntun. Þeir voiu eiginlega altaf að „bræða hann“. Svo var kallað. Þá hljóp hver að sínum keip (stað) og var þá skipið sett niður að flæðarmáli. Þar lá það á hliðinni. meðan allir skinnklæddu sig. Ef sjór var sem kallað var vatnsdauður, fór enginn (ekki einu sinni frammístyðjendur) nema í skinnbrókina, og auðvitað sjóskóna. Þeir voru úr útlendu skinni, voru aðeins verptir en opnir í báða enda. Þegar sjór var hálf slæmur, fóru ávalt frammí styðjendur í skinnstakkinn líka. Þeir máttu til, en þrátt fyrir þetta alt, var ekki kálið sopið, því oft var það svo, að þegar niður að sjónum kom, bar meira á briminu, og svo hafði hann það til að brima með útfalli. Oft varð úr því róður og alt fór vel. En fyrir kom, að skipið var sett aftur upp á kamp og allir fóru úr sínum sjó- fötum, tóku hesta sína (sem biðu) og riðu heim; og gat þetta endur- .tekið sig jafnvel næsta dag. Róðurinn úr landi. Fyrst gætir formaður og aðrir að því að alt sje með t. d. stýri, stýrissveif, ífæra, hnallur, seilar pg önnur bönd, sömuleiðis möstur og segl, sjerstaklega ef bixist var við að fara xxt á Holtshraun; þá var neglan rekin í, ekki var gott að hana vantaði, en það mun þó hafa komið fyrir að það gleymdist að láta hana í þar til á flot var komið. Hver ár var reist upp við sinn keip, sömuleiðis mönnum rað- að, þessir skyldu vera frammí styðjendur, þessir undir árum — róa xít; þeir sem eftir voru skyldu ýta — vera við skutinn og ýta — allir þurftu að vera samtaka, og þó ekki síst þeir, sem áttu að róa út. Allir geta skilið hvað það gat gert & stjórnlausu skipi, ef einn, sem róa átti, kæmi ekki út ár sinni fyr en seint og síðar meir, jeg tala nú ekki um ef hann í staðinn fyrir að róa áfram, ræki árina í og átakið yrði alveg öfugt við átak hinna. Þetta kom nú samt fyrir, og líka kom 'það fyrir að um leið og ræðarinn stökk upp í þá datt hann á hausinn ofan í kjöl í skip- inu. En yfirleitt, var unun að liorfa á þá og alla, Nú er skipið sett svo neðarlega sem má, og svo er beðið eftir lagi. Það var talið eitt af því allra nauðsynlegasta hjá hverjum for- manni undir Eýjafjöllum, að vera góður að taka lagið. Menn reynd- ust æði misjafnir í því eins og öllu öðru. Þegar talað er um lag, þá leiðir það af sjálfu sjer að þar er líka ólag, lagið er á milli ólaga. Allir sjómenn og margir aðrir vita að í hverju ólagi eru þrjár öldur, þrír sjóir. Þegar dálítið brim var, sáu þeir þrjá fyllingarsjói koma nokkuð langt frá landi, þeir korau nær og nær, þeir fólla á Eyrunum, grynningunum, en þar sem er dá- gott hlið, falla þeir ekki á- milli eyra fyr en við sandinn. Það eru kallaðir landsjóir. Það er víst talið ófrávíkjanlegt lögmál að í ólaginu sjeu þrír sjóir. Þegar þeir ern komnir í land, kemur lagið, 'stund- um er það ekki lengra en svo, að tilviljun rteður hvort hægt er að komast á flot. Jeg held að lögin hafi verið dálítið mislöng. Oldurn- ar í ólagi voru líka misstórar, og jeg held að því stærri sem sjóarnir voru, því betra lag hafi komið á eftir. Það var mjög nauðsvnlegt að taka vel eftir hvernig ólögin hög- uðu sjer, ekki síður en lögin En það man jeg, að formaðurinn kallaði ávalt um leið og þriðji sjórinn í ólaginu fjell; um leið og hann reið undir skipið var kallað. Ef alt gekk vel, var skipið komið á flot áður en næsti sjór fjell, því þó hann væri smærri en ólagssjór- inn, þá var betra að verða ekki framan í honxim. Þegar á flot var komið var hættan liðin hjá, þvx Útrifin voru vanalega hættulaxxs í því brimi, sem róið var í. Það fyrsta sem gert er eftir að á flot er komið, er að lesa sjó- ferðamannsbænina og við þá at- höfn taka allir ofan höfuðfötin og sú athöfn endaði að mig minnir með því, að formaðurinn gerði krossmark yfir skipið. Þegar róið var út á Holtshraunið var um að gera að ná í nokkrar ýsur .í beitu, varla tiltök að fara í hraxinið annars. Ekki man jeg hvað það tók lang an tíma að róa út á hrannið, jeg held einn klukkutíma. Þar er fjöru tíu faðma dýpi, og er vfða hraxm

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.