Lesbók Morgunblaðsins - 02.08.1931, Page 8
240
LESBÖK MORGTTNBLAÐSINS
Bernhard Shaw,
sliáldið, átti 75 ára afmæli liinn
26. júlí.
fundist rúnasteinn í Tumbokirkju
skamt frá Eskilstuna og hefir ver-
ið máiað með cinnober-rauðum lit
í rúnastafina og útílúrið, og heldur
liturinn sjer enn. Er fundur þessi
því hinn merkilegasti.
í Tumbo-kirkju voru tveir gaml-
ir rúnasteinar og mynduðu þeir
þrep upp í sakristíuna. Lagergren,
presturinn í þessari sókn, tók sig
nýlega fram um það að bjarga
þessum steinum frá eyðileggingu
af sliti, en þegar farið var að rífa
upp gólfið í kringum þá, rákust
menn á tvo aðra rúnasteina, annan
úr heiðinni tíð, en hinn frá fyrstu
dögum kristninnar. Á þann stein
er klappaður kross og rúnaleturs-
lina myndar umgjörð um hana, en
seinasta orðið er þó klappað innan
við umgerðina, milli hennar og
neðri hluta krossins. Steinn þessi
hafði verið nota-ður sem homsteinn
í kirkju þarna, fyrir mörgum öld-
um og kalkið, sem grunnsteinarnir
voru límdir saman með, hefir varn-
að því að loftið eyðdegði málning-
una.
Áletrunin á steininum er einnig
merkileg. Hún er á þessa leið:
AITSTIN. REISTI. STIN. AT.
ÞORSTIN. PAÞUR STN.
GITÞ. II.TALBT. ANT. ÞÓRSTTN.
(Þ. e. Eysteinn reisti stein að
Þorstein föður sinn. Gruð hjálpi
önd Þorsteins).
Smælki.
Móðir (með fyrsta barn sitt):
Það segja allir að hún sje lík mjer.
Vinkona: Vertu ekki að setja
það fyrir þig — hún breytist þeg-
ar hún stækkar.
Leikhúsgestur: Það sjást engin
leikendanöfn í þessari leikskrá.
— Nei, því miður, herra minn.
Við urðum að taka þau út til þess
að koma inn seinustu auglýsing-
unum.
Giáðug kýr.
Það kemur oft fyrir að í kýr-
vömb finst sitt af hverju, því að
kýr liafa það til að gleypa alls
konar ómeltanlegt rusl. En þó
mun skara fram úr kýr, sem ný-
lega var slátrað í Stavanger. Þnð
sá ekkert á henni og kjötið af
henni var fyrsta flokks. En þegar
farið var að hreinsa vömbina,
komu úr henni 128 mismunandi
hlutir. Þar á meðal voru 29 stein-
ar, brQt úr leirkrukku, 6 bein, 12
smápeningar (tveir fimmeyringar,
tveir tvíeýringar og átta einseyr-
iiigar), 28 naglar og naglabrot, 7
skrúfur, 2 rær, 5 látúnshnappar,
brotinn dyralykill, lykill að síld-
ardós, 2 grammófónnálar, 7 krók-
ar, 1 dyraspjald, lok af tannkvoðu-
hylki og margt annað smávegis.
Bóndi: Jæja, nú skal jeg kenna
yður að mjólka kú.
Borgari: Má jeg ekki heldur
byrja á kálfi?
— Það var ekki fyr en eftir
tólf ár að jeg uppgötvaði það að
jeg er ekki skáld.
— Og þá hættuð þjer að yrkja?
— Nei, því að þá var jeg orðinn
frægur.
Mamma: Hannngjan góða, þú
hefir þó ekki 'gleypt alla títu-
prjónana, Jói?
— Nei, mamma, litla systir
fjekk helminginn.
Amma: Þegar jeg var ung
stúlka, þá sagði jeg aldrei svona
ljótt; mjer datt það_ ekki einu
sinni í hug.
— Nei, og þess vegna hefirðu
ekki sagt það!
Kennari: llvaða flokki tilheyr-
ir kýrin 1
Pjesi: Jórturdýraflokki.
Kennari: En tígrisdýrið?
Pjesi: Rándýraflokki.
Kennari: Og flugan?
Pjesi: Skorkvikindaflokki.
Kennari: En síldin?
Pjesi hikandi: Hún — tilheyrir
kartöflilm.