Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1932, Síða 7
LESBÓK MORGT7NBLAÐSIN8
299
rniðnŒtursoIin.
Tileinkað síra Helga Konráðssyni, Höskuldsstöðum,
Skagaströnd.
Hvar finnur þú ljóskrafta lyfta þjer nieir,
en lágnættis draumljúfa tvísólnaveldi,
þá kvóldsól í armlögum ársólar deyr
á albjörtu, skýlausu hásumar-kveldi;
þar hálfbrunnið aftanskin ár-roðann fæðir,
í upprisu-dýrð alla sveitina klæðir. —
Þiun andi frá dufti og dauðum rís
meo degi í norðurheims paradís.
Að voldugum heimi þá verður þíu sýn.
Heil veraldarsaga er líðandi stundin.
Þjer alveldi samúðar alls staðar skín,
þá allt er að hníga í miðnætur-blundinn.
Með lífinu sjálfu til grafar þú gengur.
Þá grætur hver einasti hjarta þíns strengur.
Þjer finst eins og lífið sje lagt í gröf,
og lykjast um sál þína tímans höf.
Hver svipmikil breyting í sólnanna geim,
í sál þinni leikur á viðkvæma strengi,
og opnar þjer nýjan og ónuminn heim, —
sjá, ekkert kvöld getur varað lengi.
I hafspeglum kvöldsólin glóhárið greiðir,
þar geislandi ársólin faðm sinn út breiðir,
og gull-lokka trafið um foldina fellur,
þú finnur að lífið í brjósti þjer svellur;
og upprisukraftur í æðum þjer rennur,
þinn andi er fleygur, og hjarta þitt brennur,
þá ársólin fæðist við ystu höf
og allt rís lífið úr tímans gröf.
Pjetnr Sigurðsson.
Kvikmyndahundurinn
Bin-Tin-Tin dauður.
Símskeyti frá Hollywood hermir að
einn af kunnustu kvikmyndaleikurum,
hundurinn Rin-Tin-Tin hafi orðið elli-
dauður, 14 ára að aldri.
Rin-Tin-Tin var með í rúmlega
hundrað kvikmyndum, og andaðist
meðan verið var að kvikmynda „Eft-
irlætisgoð heiðursfylkingarinnar". —
Hann hafði kaup á við frægustu
leikendur, oft 500 Sterlingspund á
viku.
Eigandi Rin-Tin-Tin var amerískur
herforingi. Hann hafði fundið hund-
inn í þýskri skotgröf í stríðinu.
Seinustu 10 árin hefir Rin-Tin-Tin
verið frægasta leikdýr Ameríku. Að
vísu hefir hann átt nokkra keppi-
nauta, svo sem „Pjetur mikla“, en
hann bar af öllum, því að svo var
að sjá, sem hann vissi að hann var
að leika og vissi hvað kvikmyndir eru.
Það kann að þykja undarlegt, að
halda* því fram, að skepnur kunni að
leika, en svo var það samt um Rin-
Tin-Tin. Onnur dýr, sem notuð erú
í kvikmyndum, læra hvernig þau
eiga að haga sjer, en Rin-Tin-Tin
tók margt upp hjá sjálfum sjer. Hann
gat látið eins og hann væri óður,
og hann rauk á menn og ljest bíta þá
á barkann í grimdaræði, án þess að
hann gerði þeim minsta mein. Hann
gat Iíka látið ótvírætt í ljós sorg
og gleði, þegar það átti við. Hann var
snillingur, enda ljek hann aðalhlutverk
í mörgum kvikmyndum, sjerstaklega
í myndum, frá Alaska. Sjerstaklega
hefir hann orðið frægur fyrir leik
sinn í kvikmyndunum „The Call of
Wild“ og „The Wolf-Dog“, sem
gerðar eru eftir sögum .JíU'k London.
\
Minnismerki Eberts.
í Zweibriicken var nýlega afhjúp-
ui' minnismerki Eberts, hins fyrsta
l'orseta Þýskalands. Á minnismerkinu
tr eirmvnd af honum og Rathenau og
■ Erzberger, sem voru ráðherrar í stjórn
artíð hans.
Vilhjálmur
fvrverandi Þýskalandskeisari og Dom-
rnes hershöfðingi. Myndin er tekin á
baðstaðnum Zandvoort, sem er skamt
frá Amsterdam.