Lesbók Morgunblaðsins - 18.06.1933, Side 6

Lesbók Morgunblaðsins - 18.06.1933, Side 6
182 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Sjálfboðavinna í Þýskalandi. Verkasveitir sjálfboðaliðanna hafa fenoið sjerstakar járnbrautarlestir til yfirráða, og’ í lestum þessum aka þær frá eir.ni vinnustöð til annarar. 1 lestum þessum eru svefn- vagnar. matvagnar, verkfæravagnar og setuvagnar. H.jer á myndinni s.jást nokkrir sjálfboðaliðar að líkamsæfingum að morgni dags, áður en þeir ganga til vinnu. neyslu munaðarvöru, klæðnaði, húsaskipun og atvinnuvegúm. Hef- ir höf. þar stuðst við hina merku óprentuðu ritgerð Skúla landfó- geta Magnússonar um Gullbringu- og K.jósarsýslu, sem hann samdi á árunum 1782—1785, og varð- veitt er nú í handritasafni Lands- bókasafnsins. Þrið.ji þátturinn heitir: Frá ein- okun til kaupstaðar (1787—1908). Er því þar fyrst lýst livernig Hafnarfjörður lá i rústum eftir einokunina og Móðuharðindin, og gjaldþroti þess danska kaupmanns, sem tók verslunina þar í sínar hendur eftir að einokuninni lauk. 8!íðan er sagt frá B.jarna riddara Sívertsen, sem byrjaði verslun þar 1794 og framkvæmdum hans. sem roarka að ýmsu leyti tímamót í sögu Hafnarfjarðar. Bjarni dó .1833 og vill því svo einkennilega til, að sama árið sem Hafnarfjarð- arkaupstaður á 25 ára afmæli, er 100 ára dánarafmæli )>essa merka manns. Er því vel farið að hans er h.jer ýtarlega minst — lýst skipasmíðum hans, sem þá voru nýung hjer á landi, siglingum hans og hvernig hann, ásamt Magnúsi Stephensen og með að- stoð Sir Josephs Banks, bjargaði íslendingum frá yfirvofandi hung- ursnéyð 1808 þegar Danir og Eng- lendingar áttu í ófriði. Síðan er sögð saga iielstu versl- ana í Hafnarfirði fram til 1908 og sömuleiðis eru mjög fróðlegir og skemtilegir þættir um sjósókn Hafnfirðinga á 19. öld og staðar- brag þar. Loks er ýtarlegt yfir- lit yfir byggingu og uppgang fjarðarins á ])essu tímahili. Á. Ó. Fasta Ganöhis. Mánudaginn 29. maí lauk hinni þriggja vikna föstu, sem Gandhi tók á sig vegna stjettleysingjanna, hinna útskúfuðu meðal indversku þjóðarinnar. 1 tilefni af þessu fluttu blöðin í London löng skeyti um Gandlii og föstuna. í stuttu máli segist þeim svo frá: — í þrjár vikur hafði Gandhi ekki næj'st á neinu tiema blávatni. Þegar hann hóf föstuna 8. maí vóg hann 491/*> kg., en nú vegur hann aðeins 40 kg. og hefir því ljest um 19 pund. Hann fastaði í höll hinnar for- ríku Lady Thaekersees. Lá liann þar á börum með línlak yfir sjer. í’imm eða 6 læknar komu til hans daglega og undrast þeir mjög livað lífsvilji hans var sterkur, og altaf var hann í góðu skapi. Þegar að þeirri stundu kom að Gandhi skyldi nærast aftur, höfðu þúsundir manna safnast saman fyrir utan höll Lady Thackersees, Hindúar, Múhamedstrúarmenn og hvítir menn. En það voru ekki nema einkavinir Gandhis, 100 menn og 50 konur, sem fengu að koma inn í höllina og sjá er hann bryti föstuna. Þetta fólk safnaðist saman i marmarasala hallarinnar. I næsta herbergi lá Gandhi hreyf- ingarlaus, með votan dúk um ennið. Glerhurð var á milli svo að allir gátu sjeð hann. Svo var bekkurinn með Gandhi borinn gætilega fram í marmara- salinn. Múhamedsmaður las upp kafla úr Kóraninum, nokkurir kristnir vinir Gandhis sungu sálm og Gyðingur nokkur las upp dánarljóð á hebresku. Síðan las Mahadev Desai, skrifari Gandhis, ;:pp kvæði, sem skáklið Rabindra- nath Tagore liafði orkt f.yrir þetta tækifæri. Síðan lásu allir uppá- haldsbæn Gandliis og á meðan reisti Desai hann upp á börunum. Þá tók Gandhi til máls: — 1 guðs nafni byrjaði jeg

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.