Lesbók Morgunblaðsins - 14.07.1935, Síða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
1 * \
Konungsbikar.
„Dana“-sly§ið.
Að ofan kort af staðnum, þar sem slysið varð, og þýski togar-
inn „Pickhuben“. 1 miðju G. Hansen skipstjóri á Dana og dr. Vedel
'Táning liafrann-sóknastjóri. Neðst er mynd af „Dana“.
Hinn 24. júní s. 1. sigldi þýsk-
sur togari, „Piekhuben" að nafni
.á danska hafrannsóknaskipið
„Dana“ ’í Norðursjó. Sökk „Dana“
nær samstundis, en togarinn bjarg
-aði öllum mönnunum og fór með
þá til Esbjerg. Þar var togarinn
kyrsettur á meðan í’annsókn fór
fram í málinu, og ekki slept nema
með tryggingu, því að danska
stjórnin gerir kröfu um það, að
útgerðarfjelagið, sem á togarann
,-greiði skaðabætnr fyrir „Dana“.
„Dana“ var í mörg ár við fiski-
Tannsóknir hjer við land, og í
'Snmar átti skipið að halda áfram
rannsóknum á þorslrgöngum milli
Islands og Grænlands. Aður ferð-
aðist það umhverfis hnöttinn í
Tannsóknarerindum undir forystu
dr. Johs. Schmidt og varð sá leið-
angur til þess að vitneskja fekst
um gotstöðvar og göngur álanna,
og þykir það merkileg uppgötvun.
Svo brátt bar slysið að, að ekki
var hægt að bjarga neinu úr
„Dana“. Komust skipverjar með
naumindum slyppir og snauðir
frá skipinu áður en það sökk. Og
um dr. Táning er það að segjá, að
minstu munaði að hann biði þar
skjótan dauða, því að togarinn
hjó stefninu inn í klefa hans, rjett
þar sem hann svaf.
Með „Dana“ fórust allar rann-
sókna-dagbækurnar og vísinda-
áhöld. Átti að gera t'lraun um að
bjarga því, en þrátt fyrir mikla
leit hefir flak skipsins ekki fund-
ist enn.
Ungur efnafræðingur í Holly-
wood, Ralph Willard að nafni,
h'efir nú um fimm ára skeið gert
ýmsar tilraunir um það hvernig
hægt er að sigrast á dauðanum.
Tilraunir þessar hefir hann gert
á dýrum og er það alveg ótrú-
legt livað honum hefir tekist að
vekja þau frá dauðum.
Einhverja merkilegustu tilraun-
ina gerði hann á marsvíni. Hann
byrjaði á því að spýta inn í það
sodium citrat, til þess að blóðið
skyldi ekki storkna. Síðan frysti
hann marsvínið í hel og geymdi
það stokkfreðið í frystiskáp í 3
daga. Þá tók hann það vit úr
skápnum og þýddi það, dældi í
það dábtlu af lifandi blóði úr
öðru marsvíni, og vaknaði það þá
þegar til lífsins aftur.
Lífgun frd dauðum,
Þessi mynd er af bikar þeim, er
konungur vor sendi Klemens
Kristjánssyni á Sámsstöðum í við-
urkenningarskyni fyrir tilraunir
hans með kornrækt á íslandi.
Á bikarinn er letrað:
Klemens Kristjánsson
Sámsstöðum í Fljótslilíð.
Ótrauður brautryðjandi korn-
ræktar á Íslandi
1935.
Hinum megin á bikarnum er
fangamark konungs.