Lesbók Morgunblaðsins - 24.11.1935, Blaðsíða 6
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
374
"a..
Sígaunaflokkur í Rúmexiíu.
Enn eru Sígaunar stöðugt á
ferli fram og aftur, eigi síst í
Rúmeníu. Ekki eru þeir vinsælir
— þegar jeg var að taka mynd
af tveimur Sígauna blómasölu-
konum fyrir utan gistihús mitt,
sagði maður, sem fram hjá gekk:
„Þjer ættuð lieldur að skjóta
þær!“ — en það verður varla kom
ist af án þeirra, í Riimeníu að
minsta kosti. Þeir hafa þar sitt
hlutverk að vinna á ýmsum svið-
um: við skírnarveislur, giftingar
og jarðarfarir eru það ætíð Sí-
gaunar, sem leika á hljóðfæri. Og
það kunna þeir. Um alla Búkarest
hljóma Sígaunalög og breiða feg-
urð yfir borgarlífið.
Og þar sem matreiðsla e!r svo
góð í rúmensku veitingahúsun-
um, þá getur verið að Sígaunar
eigi ekki minst af hróðrinum.
Því að þeir eru snillingar í mat-
reiðslu.
í Búkarest eru mörg góð veit-
ingahús og þar er góður matur
og ódýr. Fyrst fær maður sjer
eitt glas af ,,tsouica“, sterku og
bragðgóðu plómubre'nnivíni og
borðar með svarta olíuviðarávexti,
eða kavíar. Því að nóg er til af
kavíar í landinu. Og hann er
ekki síðri en sá rússneski og er
ein aðal útflutningsvaran. Svo
koma óteljandi rjettir, ekki allir
rúmenskir lieldur rússneskir,
tyrkneskir, búlgarskir og ung-
verskir. Einn rjettinn verður þó
að nefna, því að það er þjóðar-
rjetturinn og heitir „mamaliga“
— nokkurskonar grautur, sem
etinn er í öll mál.
Enda þótt nóg veiðist af fiski
í Dóná og Svartahafi, borða Rúm-
enar mestmegnis kjöt og drekka
með sín ágætu vín, reykja sínar
ága*tu sígarettur og drekka svo
tvrkneskt kaffi á eftir. Þeir lifa
vel í mat og drykk í Rúmeníu.
Og það er einkennilegt og marg
brotið líf á veitingastöðunum.
Þar er nii masað! En þegar Sí-
gaunarnir leika „l’Alonette'', svo
að manni finst maður heyra og
jafnvel sjá lævirkjann sveifla sjer
syngjandi upp í sólþrungið loftið
— þá þagnar alt mas og kliður í
veitingasalnum.
(Úr frjettabrjefi frá Búkarest).
Fjaðrafok.
Hinir helgu Yogar í Indlandi
láta sjer ekki verða mikið fyrir
því að vaða eld berfættir, og sjer
ekkert á fótum þeirra. Tveir stúd-
entar frá London ætluðu nýlega
að rannsaka hvernig á þessu
stæði. Reyndu þeir að vaða eld,
en skaðbrendu sig.
Amerískur bóndi á þrjá syni,
sem stunda háskólanám. — í
haust hafði hann ekki fje til þess
að greiða námskostnað þeirra. En
ljet þá fá 500 hænur með sjer til
háskólans. Eggin eiga þeir að
selja, og ef þau borga ekki allan
kostnað, þá eiga þeir að slátra
hænunum í vor og selja þær.
Sjúklingur nokkur í geðveikra-
hæli í Illinois í Bandaríkjunum
tók brjeflega þátt í gróðabralli á
kauphöllinni og á skömmum tíma
tókst honum að græða 75.000 doll-
ara. Þegar lögmaðurinn í borginni
frjetti þetta, skipaði hann svo
fyrir, að sjúklingurinn skyldi þeg-
ar útskrifaður úr geðveikrahæl-
inu. Sagði hann að sá maður, sem
honum varð ekki ráðafátt. Hanngæti grætt stórfje' í kauphöllinni