Lesbók Morgunblaðsins - 24.11.1935, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 24.11.1935, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSÍNS 375 æiííte. s.'.'-- ■■■■:'■■ L . , » _ : Kappsigling hjá Nýju Guinea, sem er næst stærsta eyja í heimi. Þar eru mjög einkennilegir bátar, eins og sjá má á myndinni. Eru þeir góð sjóskip og fara íbúarnir langar leiðir á þeim. Nýja Guinea er fyrir norðan Ástralíu og er Torressundið þar á milli. Er það nafnkunnugt fyrir það hve mikið er þar af hákarli. Ásamt nokkrum eyjum í kriug er Nýja Guinea 807956 ferkílómetrar að stærð og íbúar eru taldir 700.000. Þeir eruaf fjölda mörgum kynþétttum. á þessum krepputímum, gæti alls ekki verið geðveikur. * Lögreglan í London fekk nýlega peningabrjef með 15 shillings. í brjefi sem fylgdi gat sendandi þe'ss, að hann hefði tvisvar ekið á ljóslausu hjóli um borgina að kvöldi dags. Að vísu hefði lög- reglan ekki staðið sig að því, en til þess að rjettlæti væri fullnægt sendi hann sektarfje. * Áströlsk kona hafði verið í heimsókn hjá systur sinni í Eng- landi, en nú var hún komin um borð í skip á heimleið. Þá mundi hún eftir því, að hún hafði skil- ið lyklana sína eftir hjá systur sinni. Var nú símað í ósköpum og flugvjel fengin til þess að elta skipið og skila lyklunum. Það tókst. En eftir þessu að dæma ætti það að vera kostnaðarsamara að smíða nokkra lykla í Ást.ralíu, heldur en leigja flugvjel í Eng- landi! Arfi afsalað. Það er sjaldgæft, að þeir, sem erfa, neiti að taka við arfinum, en þetta hefir Roosevelt Banda- ríkjaforseti gert. Sjervitur karl nokkur í Banda- ríkjunum hafði lagt svo fyrir í erfðaskrá sinni, að hinir rjettu erfingjar sínir skyldi fá sinn doll- arann hver, Roosevelt forseti 1000 dollara og Stalin 1000 dollara. Roosevelt lýsti þegar yfir því, að hann vildi ekki taka við fje, af sýnilega geggjuðum manni. Þá sneru erfingjarnir sjer til Stalins, en það stóð nokkuð á lokasvari hans, en þó afsalaði hann sjer arfinum. Og þannig fengu erf- ingjarnir þessa 2000 dollara. En auk þess hafa þeim verið boðnir 5000 dollarar fyrir erfðaskrána og brjefin frá Roosevelt og Stalin. — Safnið þjer gömlum bókum? — Já, já, en jeg kaupi þær altaf eftir vigt. Skemtileg mistök. „Svenska Dagbladet“ segir eft- irfarandi sögu frá Kaupmanna- höfn: Fjórir góðir vinir höfðu verið að skemta sjer, og voru þeir all- mjög ölvaðir er þeir komu á jám- brautarstöðina. Þrír þeirra staul- uðust upp í járnbrautarvagn, en sá fjórði stóð eftir eins og glóp- ur þegar lestin rann á stað. Alt í einu byrjaði hann að hlæja al- veg óstjómlega hátt. Stöðvar- vörður gekk þá til hans að þagga niður í honum. — Það er ekkert hlægilegt hjer á seiði, sagði hann. — Jæja, finst yður það? En mjer finst nú þetta hlægilegt. Jeg ætlaði að fara með lestinni, en hinir fylgdu mjer aðeins hingað til þess að kveðja mig. — Hvers vegna svarar þú hverri spurningu með nýrri spurningu? — Geri jeg það?

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.