Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1935, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 01.12.1935, Blaðsíða 8
384 LESBÓK M0RGUNBLAB3INS Yfirdrifið sport. •" 'f' \i / /// 1 h <>Tef KnattspyrnumaSur. Hnefaleikari. — Segðu mjer hreiuskilnislega, hvað þykir þjer merkilegast við málve'rk mín? — Að þú skulir geta selt þau. Á sýningu hugvitsmanna, sem lialdin var í Kaupmannahðfn fyrir skömmu var meðal annars þessi gripur. Er það dálítið flug- mannsskýli, útbúið með öllum l)eim stýristækjum, sem eru í flugvjelum, og lítil eftirlíking af „Fokker“-flugvjel, sem er þar ofan á, „lætur að stjórn“ og sýnir hvernig flugvjelar haga sjer í loftinu, eftir því sem þeim er stýrt Krossmark á lofti. Abyssiniumenn trúa að það boði sjer sigur . Fyrir skömmu var verið að senda herlið frá Harar til víg- stöðvanna í Ogaden, og er herliðið lagði á stað, sást tákn á himni, ljósróf gult, grænt og rautt, en það eru litirnir í þjóðfána Abyss- iniu. Hermennirnir tóku þetta sem forboða þess, að þeir ætti að sigra í stríðinu. Nasibu he’rshöfðingi liefir sagt frá því, að enn merkilegri tákn hafi sjest á himni hjá Gorahai. Þar mynduðu ský stórkostlegan kross á lofti. Trúði hershöfðinginn og menn hans því, að þetta væri ó- tvíræður forboði sigurs Abyssiniu- manna. Smœlki. Kona: Hafið þjer aldrei haft neina atvinnu? Betlari: Jú, frú mín góð, jeg vann einu sinni sjö ár í sama stað. — En hvers vegna hættuð þjer? — Jeg var náðaður. Dómari: Jeg ætla nú að lesa upp skrá yfir afbrot yðar. Akærði: Má jeg þá ekki fá mjer sæti á meðan ? — Hef'ir liann Sigurður traust manna í viðskiftum? — Já, það er áreiðanlegt; liann skuldar öllum. — Hvers vegna látið þið kýrnar liggja úti? — Sumargestirnir sofa í fjós- inu. — Hvernig líður sonum yðar? — Þakka yður fyrir, öðrum líð- ur ágætlega og hinn er kvæntur. — Varðmaður, er þessi fíll alt- af svona 3tiltur? — Já, jeg get hvenær sem er vafið honum um fingur mjer. — Þjer lialdið kannske að jeg sje' úlfur í sauðarklæðum. — Nei, þvert á móti.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.