Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1938, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1938, Síða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 203 Þar ber að sama brunni sem um silunginn (og fiskinnf). Sumir svokallaðir ,.sai!ðheimsk ir menu“ í sveit eru svo ratvísir í hríðum, sem eskimóar eru, að sögn Vilhjálms Stefánssonar — eða hestar, sem aldrei villast, þó að bæði sje hríðar og náttmyrk- ur. Slíkur vegtamur (fornyrði og eiginnafn á hesti) hefir fyrir sig að bera skilningarvit, sem vís- indamenn hafa eigi til að taka eða á að treysta, þó að gáfaðir sjeu á sína vísu. Brjóstbörn náttúru gömlu vita sínu viti. Þó að þessi grein heiti: 6. skilningarvit dýranna, get jeg eigi neitað mjer um að nefna menn til þessa máls, sem virðast vera gæddir þessari gáfu. Jeg drap á vegvísa menn á landi. Nú nefni jeg sjómann, sem miklar sagnir gengu um, meðan hann var í lifenda lífi, en nú fyrnast óðum. Hann hjet Jörundur og var í Hrísev, formaður langa tíð hákarladalla og útgerðarmaður. Um hann er þessi saga og er hún tekin til dæmis: Jörundur var brennivínsmaður og formaður skips iiti í hafi, ó- lærður í siglingafræði. Hann sigl- ir eitt sinn dalli sínum norður í haf og liggur ölvaður niðri í bæli sínu. Þeir hafa góðan byr. Há seti hans einn eða stýrimaður kem ur til Jörundar, þegar þeir eru komnir alldjilpt, og spyr hann, hvort lengra, skyldi sigla, því að mál myndi að renna vað og kanna það, Irvort sá grái væri undir niðri. Jörundur svarar: „Rendu sökku og færðu mjer hana sjóblauta". Maðurinn gerir svo. Jörundur drepur tungubroddi á sökkuna og segir: „Ekki er hákarl hjer und- ir! Siglum dýpra, karl minn“. Nú líður langur tími. Þá kemur sami maður til Jörundar og spyr: „Eigum við að sigla dýpra?“ Jör- undur svarar því sama sem áður fyr. Sjómaður færir honum sökk- una sjóvota og Jörundur bragðar á sökkuseltunni. Hann segir þá: „Ekki er hákarl hjer undir. Sigl- um enn“. Að alllöngum tíma liðn- um kemur sjómaður enn að máli við Jörund og spyr, hvort sigla skuli lengra norður áður en rent sje fvrir hákarl. Jörundur biður hann að renna ennþá sökkunni og færa sjer að þvi búnu. Þegar Jörundur smjattar á sökkunni í þriðja sinn, segir hann og sprettur upp: . Hjer er hákarl undir“. Hann fer upp á þiljur eða borðstokk og lætur renna út vöð- unum. Og þeir hitta á handóðan hákarl. Svo er sagt um Jörund, að hon- um slvsaðist aldrei á sjó, hitti jafnan í hafnir, þó hríð væri og kunni þó ekkert í sjómannafræði. Hann var talinn lítið gefinn í öðrum efnrm, en gat verið og mun hafa verið djúphygginn karl. Söngsnillingarinn ifreinn Páls- son er dóttursonur Jörundar. Oer margt skynsemdarfólk er vitaf honum komið. ★ Það ber við oft, að þjóðsögur skapast um einkennilega menn. Vera má, að Jörundur hafi hagað sjer í nefndu dæmi svo sem hann gerði, til þess að lokka háseta sína út á dýpstu mið. Þar var hákarlinn stærri og lifrarmeiri En hitt getur verið, að hann hafi fundið á sjer, líkt og ratvís mað- ur eða hestur, að hann var eigi kominn á áfangastað, fyrri en hann ákvað, að leggja segl og renna vöðum. Það er útaf fyrir sig harla merkilegt, að lifandi verur skuli finna á sjer það sem í vændum er. Hitt er þó enn torskildara, að dauðir hlutir skuli vera spádóms gáfu gæddir. í einni fornsögu er getið um „veðurspáa dyrabranda". Þá sögu læt jeg vera ótúlkaða. Hitt veit jeg af fullri og marg- faldri reynslu, að hey eru gædd spágáfu. Það veit hver bóndi, sem gædd- ur er eftirtekt, að í heyjum hitn- ar undan óveðrum, þó köld sjeu annars. Og hitinn kemur þannig í ljós, að hann sækir undir veðr- ið, sem svo er kallað: gerir vart við sig t. d. í austurhlið heys eða hlöðu undan austanátt, í norð- austurhorni eða suðvesturhorni eftir því sem veðurátt er í að- sigi. Þetta hugboð heystæðunnar kemur fram, stundum þrem dægr- um áður en veðurspáin segir til veðuráttar. Þessar kenjar hey- stæðnanna þykja mjer harla tor- skildar og merkilegar. Á þessari staðreynd er hægt að þreifa, bók- staflega og verður því eigi vje- fengd. Ambales á að hafa sagt: „Yind- ur kom í vatn. Og vindur fór úr vatni“ — áður en hvesti. Jeg get tekið undir þetta. Enn í dag tek- ur í fossinn undan veðrum, t. d. í suðvestri undan suðvestanvindi, og í norðaustri undan veðrum, sem koma úr þeirri átt. Oft eru þessir söngvar fossins svo langt á undan áttinni — veðrinu, að sólarhring nemur eða þrem dægr- um. Gæti það átt sjer stað, að hljóðbylgjur berist eftir hafi og landi utan úr 1000 rasta fjarlægð og að fossinn væri nokkurskon- ar móttöku eða útvarpsstöð? T'ess má geta að lokum. að skil- ríkir menn vita það, af reynslu, að vatn lækkar í lindaholum, jafn vel í brunnum. þó að eigi geti verið af völdum hækkandi sjávar eða yfirborðs vatna — lækkar eða hækkar undan veðrabrigðum. Naumast mundi rjett að tala um eða nefna á nafn skilningar- vit í heyi, brunni, berglind nje í gigtarveikri öxl gamalmennis, jaxli eða í hestlend. En hvað á þá að kalla það? Eigi skvldi taka mark á fugla- kvaki nje á innýflum fórnardýra, segir gömul ritning. En hvað sem líður boði eða banni ritninga. stendur maðurinn á stiklum og spyr og spyr — oftast út í blá- inn — þegar hann stendur and- spænis leyndardómum eða ráðgát um — og biður um svar. Rithöfundurinn, sem segir frá völvunni, sem spáði bata innan skamms (veðráttubata) í Græn- landi fyrir hartnær 1000 árum. nefnir völvuna vísendakonu. Flest það, sem jeg hefi drepið á í þess- ari grein, mundi vera á vantrúar tímum kallað hindurvitni og hje- giljur. En sje það rjett, eða hafi verið rjett, að kalla spákonu vís- endakonu á sagnaöld, þá er það enn sæmilegt að telja til vísenda Frh. á bls. 205 3. dálki.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.