Lesbók Morgunblaðsins - 15.01.1939, Page 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
11
• Sfórsvikarar •
Dálkar heimsblaðanna voru
fyltir fyrir jólin af frá-
sögnum um nýtt stórkostlegt fjár-
málahneyksli. Amerískur fjesýslu-
maður, sem allir hjeldu að væri
heiðarlegur borgari, hafði svikið
út fje svo miljónum skifti. Hann
var virtur meðal fjármálamanna
heimsins undir nafninu Donald
Coster, en hans rjetta nafn var
Philip Musica. Hann hafði áður
fyr setið í fangelsi fyrir svik.
Musica framdi sjálfsmorð er lög-
reglan var á leið til að taka hann
fastan og þeir sem lagt höfðu
peninga í fyrirtæki hans sitja eftir
með sárt ennið og 120 miljón
króna tap.
★
Þegar rætt er um þessi stórsvik
svindlarans Musica detta manni í
hug hinir mörgu stórsvikarar
heimsins, sem svikið hafa út milj-
ónir úr auðtrúa fólki. Allir kann-
ast við söguna um Potemkin hinn
rússneska, sem oft er nefndur
„faðir svikaranna“. Potemkin
hafði fengið stórfje hjá Katrínu
II. Rússadrotningu til ýmiskonar
framkvæma og endurbóta. Hann
stakk fjenu í sinn eigin vasa og
endurbæturnar urðu engar. Að
lokum þegar svik hans komust
upp voru þau svo stórkostleg að
ómögulegt var nð sjá hve miklu
þau námu. Dag nokkurn þegar
keisarafrúin heimtaði að fá að sjá
hverju hann hefði komið í fram-
kvæmd fyrir fje það er hún hafði
fengið honum ljet Potemkin mála
tjöld af borgum og blómlegum
bygðum. Þegar keisarafrúin fór
framhjá leiktjöldum þessum helt
hún að þau væru veruleiki og
hrósaði ráðgjafa sínum fyrir dugn-
að og hagsýni. En hefir ekki farið
eins fyrir mörgum eins og keisara-
frúnni rússnesku1
★
Hvernig var eklti með Svíann
ívar Kreuger. Ungur fekk hann
atvinnu við timburútflutningsfje-
lag og komst til Ameríku og Suð-
ur-Afríku. Aftur kom hann heim
Donald Coster, öðru nafni
Philip Musica, einn af stærstu
fjársvikurum heimsins.
til Svíþjóðar 1907 og gerðist for-
stjóri timburútflutningsfjelagsins
Kreuger & Toll. Hann fekk áhuga
fyrir eldspýtnaframleiðslu og 1913
hafði hann stofnað eldspýntafram-
leiðsluhlutafjelag ineð samböndúm
um allan heim. Eftir heimsstyrj-
öldina tók Kreuger að lána ríkis-
stjórnum víða um heim fje gegn
því að fá einkaleyfi á eldspýtna-
sölu í viðkomandi landi. 150 verk-
smiðjum og 28 löndum var stjórn-
að af eldspýtnafjármagni hans og
hann rjeði yfir 3/4 hlutum af eld-
spýtnaframleiðslu heimsins. Loks
hrundi alt og Kreuger skaut sig á
gistihúsi sínu í París. Það skot
kom af stað skriðu gjaldþrota og
fjárhagslegra rústa.
★
Eða Samuel Irisull og bróðir
hans Martin. Líf Insulls var ein-
kennilegt. Hann lrom til New York
frá Englandi. Ilonum barst til
evrna að Edison vantaði ritara
Insull sótti um stöðuna og fjekk
hana. Hann fjekk Edison til að
skrifa undir samning, sem upp-
finningamaðurinn athugaði ekki
neitt gaumgæfilega áður en hann
skrifaði undir. Með samningi þess-
um trygði Insull sjer fjárhagsleg-
ar tekjur af uppfinningum Edi-
sons. Því næst fór Insull til Chica-
go og fleiri borga í Bandaríkjun-
um og leið ekki á. löngu þar til
hann hafði ítök í 29 raforkuver-
um víðsvegar í Bandaríkjunum
og jafnvel utan Ameríku. En hann
fell í freistni og fór út í spá-
kaupmensku, sem leiddi til stór-
kostlegra fjársvika. Stavisky fjár-
svikin voru þá á döfinni í Ev-
rópu svo menn tóku minna eftir
hneykslinu en ella hefði orðið hjer
í álfu.
★
Bankahrun í franska bænum
Bayonne varð Stavisky að falli.
Þegar það kom í ljós að Alexander
nokkur Stavisky átti sök á hruni
bankans tók lögreglan til sinna
ráða og við rannsókn kom í ljós
að IStavisky var falsspilari, sem
hafði sloppið við refsirigu fyrir
aðstoð háttsettra kunningja. í
Bayonne hafði hann svikið út fje
á fölsk ríkisábyrgðarbrjef, lánað
út á falska skartgripi og ekta
skartgripi sem voru verðlagðir svo
hátt, að hann fjekk lán sem nam
hundrað sinnum verðmæti þeirra
Fjöldi fátækra sparifjáreigenda
misti aleiguna, en Staviskv framdi
sjálfsmorð.
★
Þekt nafn í heimi fjármálanna
var Frakkinn Oustric. Hann var
upphaflega þjónn á veitingahúsi
t
og aðstoðarmaður í spilavíti. Síðar
fjekk hann stöðu í banka og komst
þá í kynni við árgentínskan auð-
mann, sem kom undir hann fót-
unum, Loks komst hann í kynni
við ítala, sem hjálpaði honum við
margskonar fjársvik. Oustric tókst
að draga sjer með svikum 600
miljónir franka frá árunum 1922
til 1930. Hann situr nú í fangelsi.
Talið er að alls sjeu nú töluð
2796 tungumál á jörðunni. Tala
hinna ,,dauðu“ tungumála er þó
miklu hærri, eða um 400.