Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1939, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1939, Síða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 67 Frá Minorca: Tvær myndir frá evjunni Minorco í Miðjarðarhafi, sem er á siglinga- leið Fraltka til nýlendna þeirra og hefir því stórpólitíska þýðingu. Á efri myndinni sjást fornminjar, sem eru margar á eyjunni. Neðri myndin sýnir sveitabæ í grend við höfuðborgina Makon. Gömlu hjónin gáfu Árna hafra- köku mikla að skilnaði, og svo hjelt hann af stað. Nú átti að sigla beina leið til Hafnar. En þegar skipið var kom- ið 8 mílur til hafs fengu þeir enn mótvind, og urðu að snúa til lands að nýju. Vörpuðu þeir akkerum við Brevik. Þar varð Árni enn að fara í land og leita gistingar. Þar fekk hann inni hjá stýrimanni sem lá í rúminu fyrir sakir ofdrykkju Hann drakk mikið brennivín. Móðir lians, gömul, hafði tiús- stjórn á hendi. Þar gisti Árni í 3 nætur. Gamla konan tjet liann fá 2 potta af góðu öli fyrir skilding, en annars kostaði slíkt öl 4 skild- inga. Slíkt var verðið hjá henni. Ilún gaf honum líka kaffi að skilnaði, þegar hafnsögumaðuv að morgni dags sótti liann út í skipið. Nú var siglt áleiðis til Hafnar. En er þeir voru ltomnir 14 mílur frá Noregi kom austanvindur, svo þá hrakti og voru þeir nærri strandaðir á Jótlandsskaga. Þeir lentu þar milli skerja um dimma nótt. En í dögun drógu þeir upp neyðarmerki. Koin þá hafnsögu- maður og vísaði þeim út á rúmsjó að nýju. I 5 daga voru þeir að velkjast í stormi á hafinu, en síð- an fengu þeir bvr suður Kattegat, voru þó nærri strandaðir nálægt Kullen í Svíþjóð. Er þeir komu til Krónborgar urðu þeir að fara þar í land, til þess að sýna tollseðil sinn, sem hljóðaði upp á 500 tunnur af Þrándheimssíld og 4 skippund af salfiski. Síðan fóru þeir út að toll- skipi kouuugs til að sýna að tollur væri greiddur. Er þeir komu til Hafnar, fóru }>eir út að tollvarðarskipinu til að sýna þar tollseðilinn. Varð Árni að sýna „kommandör kon- ungs“ vegabrjef sitt frá Islandi. Því næst fóru þeir að tollbúðinni. og þar sýndi Árni „lautinantin- um“ vegabrjef sitt. Þar spvirðu menn skipstjórann livaða ókunn- ugi maður þetta væri, sem fram- vísaði vegabrjefi sínu. Sagði hann að þetta væri íslendingur, og landið væri slæmt, því þar yxi ekki korn. Þá sagði vigtarstjór- inn að sú þjóð gæti ekki haft mikla krafta, sem ekki æti brauð. En skipstjóri sagðist hafa reynslu fyrir því, að Árni væri tveggja manna maki. Þegar Árni kom frá því að sýna vegabrjefið, var hann kallaður á fund vigtarstjóra, er vildi reyna hvort hann hefði krafta í kögglum. Bað hann Árna að lyfta tveim lóðum er hvert vóg 10 lýsipund. Hann taldi að sjer mvndi ekki verða mikið fyrir því, tók vasaklút sinn og hnýtti honum um handfangið á öðru lóðinu og hálsbindi sínu um liitt handfangið, en tyfti þeim síðan með löngutöngum, sínu í hvorri hendi. 300 mauns voru í tollbúðinni er þessu fór fram og gat enginn gert þessa aflraun neina Árni og mað- ur einn frá Borgundarhólmi. En livoruugr þeirra gat gengið með lóðin úr sporunum. Því næst kveðst Árni hafa farið að heimsækja konu Mörks skip- stjóra, er hann sigldi með frá ís- landi. Skilaði hann kveðju manns- ins til hennar og sagði henni að hann væri heill og óskaadaður, og honum liði vel að öðru leyti en því, að hann dveldi fjarvistum við hana. Sýndist honum sem hiin ekki liði mikið við fjarveru bónda síns, eins og hann bar það vel í Noregi að vera án hennar. Skipstjórakona þessi bauð Árna að vera með sjer, uns hann hitti einhverja landa f Höfn.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.