Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1939, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1939, Síða 6
70 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Orgeíið í Ocídahirkju Síðari grein. Því er ekki að leyna, að þetta var geysileg nýbreytni. Of? þessi nýbreytni mun ávalt verða talin einn þátturinn menningar- og framíarasögu Rangárhjeraðs. Þess vegna þvkir mjer rjett að rvfja hjer upp með fáeinum orðum þessa hljóðfærasögu kirknanna. eftir minni og öðrum heimildum. Jeg skrifaði hr. Túbal Kr. Magnússyni og bað hann að gefa mjer upplýsingar um þessi mál úr austurhluta sýslunnar, því þar var jeg lítið kunnugur. Get jeg ekki neitað mjer um að taka hjer upp kafla úr brefi hans, og vona jeg að hann hafi ekkert við það að athuga. „Haustið 1883 fór jeg til Bjarna Pálssonar, orgauista við Stokks- eyrarkirkju, til að læra að leika á orgel. Þá var jeg á 16. ári. Við þennan lærdóm var jeg hjá hon- úm fram að vertíð, en fór þá heiin, og var heima ]>að sem eftir var vetrar. En svo um vorið fór jeg aftur til Bjarna og var hjá honum hálfan mánuð. En þetta sama vor (1884), rjett fyrir slátt- inn, kom orgel í kirkjuna á Breiðabólsstað, og þá vissi jeg ekki af neinu orgeli lijer nærlend- is. Með vissu hafði jeg ekki sjeð nje heyrt í orgeli fyr en jeg kom til Bjarna Pálssonar haustið áð- ur. Jeg er ])ess og fullviss, að þetta orgel í Breiðabólsstaðar- kirkju er það fyrsta, sem fluttist hingað í sýsluna, eftir því sem jeg best veit. Ekki get jeg upplýst, hver átti upptökin að þessari nýbreytni. En full líkindi eru til þess, að þau lijónin síra Skú'.i og frú Guðrún á Breiðabólsstað (foreldrar síra Skúla í Odda og þeirra inerku og alkunnu systkina) hafi átt mik- inn þátt í þessu Einkum var frú Guðrún mjög söngelsk kona. og minnir mig að hún ætti mestan þátt í því, að jeg var kjörinn til þessa náms, sem að framan getur. Mig minnir þó, að sókuarnefndin ætti lijer einhvern hlut aÚ máli, hverjir sem þá hafa verið í henni. En sennilega hefir Oddur frændi á Sámsstöðum þá verið í sókuar- uefndinni og átt þátt í því að jeg lærði.*) Sem dæmi um áhuga frú Guð- rúnar fyrir þessu máli iná benda á það, að einn sunnudag tók hún mig, ásamt tveim piltum öðrum, til þess að prófa liver okkar yrði fljótastur að læra tiltekið söng- lag. Fóstri minn, Bárður Sigurðsson frá Kollabæ sótti orgelið til Evr- arbakka rjett fjrir sláttinn 1884, og flntti .það á , síðutrjám“, seni kallað var. Þetta suinar byrjaði jeg að spila á það við messugjörð- ir í kirkjunni á Breiðabólsstað og notaði ])rírödduðu Guðjohnsens- bókina“. Þannig endar þessi fróðlega og skemtilega frásögn liins mæta og mprka manns, Túbals Kr. Magn ússonar í Múlakoti. Nokkrum árum síðar, eða upp úr 1890, að mig minnir, var kevpt orgel í Arbæjarkirkju í Holtum. Mun það hafa verið gert fyrir forgöngu Runólfs hreppstjóra í S.yðri-Rauðalæk, eftir því sem jeg hefi komist næst. Nokkru síðar koin orgel í Háfskirkju í Ása- hreppi. Við þessar kirkjur var organisti Þorsteinn Jónsson, þá í Moldartungu (nú í Meiri-Tungu). Þorsteinn þótti gáfaður merkis- maður. Eftir ]>etta t'ór hljóðfærum að fjölga, enda þótt þessi nýbrevtni ætti lengi erfitt nppdráttar. Þann- ig var það eftir allharða baráttn, að síra Olafur Tómasson í Kálf- holti fekk því fraingengt, að keypt var orgel í Kálfholtskirkju um aldamótin síðustu, en um það leyti *) Oddur hreppstjóri á Sáms- stöðum, faðir Odds fræðimanns á Eyrarbakka, var föðurbróðir brjefritarans. Þ. J. fóru ýmsir.að læra að leika á þau. Organleikararnir voru yfirleitt ekki í hávegum hafðir lijá eldra fólkinu. Einkum voru það áhuga- menn og athafnagarpar, sem höfðu horn í síðu þeirra, og töldu að þetta væri ljett verk og löður- mannlegt, og sögðu að það væri mögur list að spila á hljóðfæri, — og ekki ýkja fögur. Það, sem einkum olli andúð- inni gegn kirkjuorgelunum var það, að þau þóttu spilla söngnum. Fólkið þóttist ekki geta fýlgst eins vel með efni sálmanna — ekki lievra nógu vel orðaskil ])eg- ar sungið var — o. þ. u. 1. — Og svo voru ])að jafnvel tónarnir frá hljóðfærinu, er sumir höfðu illan grun um að væri ekki af betra taginu. En svo er það versta ótaiið. Þessari nýbreytni fylgdu ný út- gjöld, því organleikararnir ósk- uðu yfirleitt eftir því, að fá of- urlitla þóknun fyrir þessi störf sín. Þau laun voru þó ærið lítil. Mig ininnir að Helgi Skúlason bóndi í Herríðarliolti (hann var bróðir síra Skúla í Odda) setti upp kr. 10.00 um árið, fyrir að spila við Kálfholtskirkju. Þessu gjaldi var jafnað niður á fólkið í sókninni og var með afbrigðum óvinsælt gjald. Og jeg tel það mjög mikið vafarnál, að Helgi hafi fengið þessar krónur að fullu greiddar. Þessi saga, um fvrstu kirkju- orgelin og viðtökurnar, sem þau fengu lijá eldri kynslóðinni, er vel sögð í litlu riti, sem kom út fyrir mörgum árum, eftir Ásmund Víking. Saga þessi lieitir „Orgel- ið“, og er alment talið að hinn raunverulegi höf. liafi verið Einar II. Kvaran. Betri mynd verður ekki dregin upp af þeim hugsun- arhætti og því ástandi, sem ríkti í þessum efnum, í mínu ungdæmi. ★ Fvrsta orgelið, sem jeg keypti, var smíðað af Einari Brynjólfs- syni frá Sóleyjarbakka, sem lengi bjó á Þjótanda við Þjórsárbrú. Einar var einstakur listamaður og gáfaður vel. Hann smíðaði jafnt úr trje og járni, batt inn bækur svo vel, að af þótti bera, gerði við úr og klukkur, Ijek afburða

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.