Lesbók Morgunblaðsins - 18.06.1939, Page 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
191
á auðu hafinu lömdu af storm-
unum.
Ofí svo sjer maður sjer ýmis-
legt merkilegt og í vissu falli ó-
vænt. Hjer er Hollendingshatt-
urinn.
★
En bak við hana er þó enn
merkilegri eyja. en }>að er Staffa,
stuðlabergseyjan með Fingals-
hellinum, sem er heimsfrægur og
nefndur að mig minnir í landa-
fræðum Bjarna Sæmundssonar og
Karls Finnbogasonar (jafnvel
með mynd).
En lang merkilegust er þó
þriðja eyjan, sem við höfum far-
ið hjer framhjá, en það er Iona,
þar sem klaustrið mikla var forð-
um, þessi volduga trúboðsmiðstöð,
sem sendi trúboða um meginland
Evrópu. Hjer er hún þessi eyja,
að mestu berar klappir, en á stöku
stað er ljós sandur í fjöru og
græn túnrönd fyrir ofan. Þar eru
húsin. Þennan stað völdu þeir
sjer þessir heilögu menn. Hjer
sátu þeir utan við heiminn og
höfðu þó meiri áhrif á heiminn
en flestir aðrir.
Fram undan stendur vitaturn
upp úr sjónum, aleinn á eyði-
skeri. Jafnvel nú rísa brimskafl-
ar umhverfis hann. Þar má hafa
verið einmanaleg vist áður en loft-
skeyti og radio komu. Jeg sá í
kíki mann ganga frá vitanum
þessi þrjú til fjögur skref, sem
hægt er að komast eftir skerinu.
og srnia síðan aftur og hverfa
inn í vitaturninn. Það er einmana-
legt en merkilegt starf að gæta
slíks vita, ekkert annað en kynda
vitann til þess að öðrum hlekk-
ist ekki á, standa í sjórokinu með
ekkert nema brimin og haf fyrir
augum og þenna eina titrandi
strók, og halda rúðunum fægð-
um til þess að ljósið geti borað
sjer sem lengst inn í hríðar-
þyknið og varað við.
í kvöld kom hjer yndislegur
gestutr, örlítil svala. Jeg veit ekki
hvað hefir gengið að henni, en
hún hlýtur að hafa flúið undan
einhverri hættu, því að hún vildi
helst troða sjei einhversstaðar
inn. Hún flaug eftir öllum göng-
um og inn um dyr og glugga.
Hún fór yfir axlirnar á okkur og
milli okkar, altaf jafn fögur,
hvort sem hún var á fótum eða
flugi. Hjer ljeku líka máfar
skemtilegan sjónleik fram á.
Nú er vitinn mikli að hverfa
og jeg fer „til kojs“. A morgun
Cordoisan, þ. e. fast land undir
fótum.
ri---1 r=w=-=i n f=i m-at=n--un
Silungur
□
(Lag Sehuberts: ..Die Forelle“.)
Það leikur ljós á iði
und laufi’ í grænum skóg
og syngur flúð í friði,
þar fann jeg gleði og ró.
I læknum lítil branda
sjer ljek í bláum hyl
og vissi ei slíkan vanda:
að væri öngull til.
Hún blakar bleikum uggum
um bakið skúragrá
og felst í skor og skuggum
og skýst sem elding frá.
Svo full af fjöri og þokka
hún felst und vatnsins gljá.
En þann er ljett að lokka,
sem litla reynslu á.
— Þú varðist agni og átu
hins æfða veiðimanns,
en svik þig sigrað gátu;
þú sjeð ei gast til lands,
hann gruggar lækinn ljósa,
svo lífið fengi’ hann þitt,
jeg sá hann sigri hrósa. —
Ó, silungsflónið mitt.
B. B.
Vísindamenn, sem rannsakað
hafa dýpi úthafanna, segja, að
mesta dýpi, sem til sje í sjó, sje
við Fillipseyjar. Þar hefir verið
mælt 10.800 metra . dýpi. Það
myndi vanta 2 kílómetra til að
hæsta fjall heimsins, Mount Ev-
erest, næði frá hafsbotni til yfir-
borðs sjávar.
★
Bærinn Cleveland í Ohio í
Bandaríkjunum á sjerstætt heims-
met. Það eru fleiri bílar en íbúar
í bænum, eða 290.000 bílar á móti
270.564 íbúum.
Smælki.
— Hugsaðir þú ekki til hennar
litlu systur þinnai þegar þú borð-
aðir öll eplin?
Hans litli: Jú, er* ekki fvr en jeg
var búinn að borða þau.
— Jeg sje enga ástæðu til þess
að þú sýnir mjer ókurteisi rneð
því að slá boltann svona, Alfreð.
Getur þú ekki gert greinarmun á
því, »ð þú ert að spila tennis við
kvenmann.
— Má bjóða þjer vindil, vinur?
— Nei takk, jeg er hættur að
reýkja.
— Hvað heitir hún