Lesbók Morgunblaðsins - 23.07.1939, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 23.07.1939, Síða 2
220 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Rúnaristur yfir hellismunnanum. eða strompur, höggvinn upp úr berginu, kringlóttur og liart nær meter í þvermál. Við strompinn settu þeir trönur og höfðu þar í hleypiblökk, og -.Irógu síðan ruðn- inginn upp úr hellinum í körfum, og beittu hesti fvrir dráttinn. Efst í hellinum var aðeins mold. sem fokið hefir inn, eða hrunið niður um strompinn og borist með leysingavatni. En undir moldinni var komið niður 6 tuð, og var það mjög þykt. eða nokkrar skóflu- stungur. Sáust þar énn í heil kindaspörð sums staðar, eiula var ekki um neitt að villast að þetta var sauðatað. -¥> ður en lengra er haldið, er rjett að lýsa hellinum eins og liann er nú eftir uppmoksturinn. Hellismunninn er suunan í holt- inu og lægð fram úr holtinu fyrir framan hann. Holtið er lágt, og umhverfis það eru seftjarnir. Hell- irinn snýr hjer um bil út og suður. Víkkar hann þegar til beggja handa þegar inn úr munnanum kem ur. Er lengd hans um 45 fet, en breiddin víðast hvar um 15 fet, en þó er hann ofurlítið misbreiður. Hæðin er víðast hvar um 6 fet. Veggirnir eru allir ósljettir og loft ið flatt og hrufótt nema í svo sem fjórða hluta hellisins. Þar er fal- lega bogamjmduð hvelfing í hálfu þakinu og vesturveggurinn sljett- ur þar. Og þar inst í horninu er strompurinn, og ber næga birtu yfir þetta svæði. En gaflinn er ekki sljettur, heldur er því líkast sem hellirinn hafi átt að lengja enn meira; sjást þar enn meitil- för og hvernig höggvið hefir verið fyrir stóru stykki, sem átt hefir að sprengja úr veggnum. Ekkert fanst merkilegt í hell- inum, nema einmitt á þessum stað, undir hvelfingunni. Þegar komið var þar niður iir tað.'nu, tók við glerliörð leirskán, um 3 cm. að þykt. Er það eflaust gömul mold og leir, sem borist hefir inn um strompinn löngu áður en farið var að hýsa þar f je. Þar utidir var þykt lag, alt að því skóflustungu, af heyi og mosa og verður ekki betur sjeð en að heyið sje sef úr tjÖrn* Unum þar í kring. Hefir þarna verið beðja af því. Þar undir kom golfskán og var að henni sterk og vond. lykt. Annars staðar í hell- inum varð ekki vart yið golfskánf. Það væri nú freistandi að hugsa sjer að þetta hefði í fyrndinni verið mannabústaður, að undir hvelfingunni hafi verið afþiljað eða aftjaldað herbergi og stærð þess um 17X8 fet Sef hefir verið haft á gólfinu til að varna gólf- kulda og til að sitja í því og sofa á því. Er algengt að finna þess dæmi í fornum. sögum að hálmur var hafður á gólfi og að menn settust í hálm, þótt í miklu vistlegri hýbýlum væri en þessum. Hafi maður eða menn búið í þess- um helli, þá er ekkert líklegra en að þeir hafi haft hey til skjóls^ og ekkert hey var betur til þess fallið en sefið. Glugginn var nógu víður til þess að gefa full sæmi- lega birtu til hvers er vinna skyldi þar inni, og hefir því ekki verið svo óvistlegt þar inni sem margur skyldi ætla. Aðrir hlutar hellisins stinga mjög í stvif við þenna hluta. Eru þar veggir og gólf ósljett og meitlaförin alls staðar, djiipar og mismunandi stórar holur. Auk þess er þakið flatt, eins og áður hefir verið sagt. Það getur nú skeð, að hellirinn hafi ekki verið upphaflega eins og hann er nú, heldur hafi hann verið stækkaður, þegar farið var að hýsa fje í honum fyrst. Á það gæti bent mylsnuhrúga af mó- hellu, sem var undir endilöngum austurvegg, að hellirinn hafi verið víkkaður til skepnugeymslu og menn hefði ekki hirt um að hreinsa hann fúllkomlega, eða eigi uent að moka öllu ruslinu út. En það er að sjálfsögðu ekki fyrir mig, heldur fyrir fornfræðinga, að kveða upp dóm um það hvernig hellir þessi er til orðinn og hvort hann hefir verið notaður til ann- ars en að hýsa í honum sauði. I lýsingu á helli hjá Þorleifs- stöðum í Hvolhreppi, segir Brvnj- ólfur Jónsson að það sje auðsjeð að hellirinn hafi upphaflega verið í tvennu lagi með þunnu skilrivmi á milli, en að þetta skilrúm hafi síðar verið brotið niður. Má vera að þessi hellir hafi verið eins, en þá hefir skilrúmið verið vandlega brotið, því að ekki sjest neinn vottur þess. Gæti þá skeð að mylsn an við austurvegginn væri úr því. ★ egar þeir Traðhyltingar höfðu mokað upp hellirinn, sáu þeir að hann var besta fjárhús. En þó þurfti að laga innganginn nokkuð, og gerðu þeir það á þann hátt, að hlaða göng þar fyrir fram an og setja hurð fyrir. Ofan á hellismunnanum var grasi vaxin þúfa og slútti grasið fram yfir munnann. En þegar þessari þúfu var mokað burtu, kom í Ijós ofurlítið bogadregin hella yfir innganginum. Á miðju hennar var fágaður flötur, og á þann flöt ristir nokkrir rúnastaf- ir. Ilafa þeir skemst af mosa- vexti og bleytu og ekki allir læsi- legir, því að á dálitlum bletti hef- ir molnað úr berginu. Virtist mjer sem þarna mætti enn lesa: SIH L ..,. S. Af gerð rúnanna má máske ráða um hvaða leyti þær eru ristar. Ef til vill hefir sauðamaður sá, er gætti fjár í hellinum, gert það að gamni sínu að rista þær? í þessum helli hjá Traðarholti fanst ekki annað en jeg hefi nú skýrt frá. Var leitað með logandi ljósi um hann allan af heima-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.