Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1939, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1939, Side 5
I ÆSBÓK MORQUNBLAÐSINS 381 efni frá Kaos, þar sem Guðs andi svífur yfir vötnunum og stígur upp frá þeim“. Jeg get ekki lýst þessu með því andríki sem bjó í orðum þessa íslenska prests, en jeg þakka síra Stefáni frá Völlum í Svarfaðardal fyrir hana. Og jeg hefi breytt skoðun minni á Detti- fossi. Og jeg skil að sköpun Is- lands er ekki, lokið, hún fer fram hvern einasta dag fyrir augum okkar. Þar er altaf eitthvað nýtt og óvenjulegt, eldfjöll, gígir, heit- ar uppsprettur og ár sem breyta um farveg. Það sem er svona í dag er máske ekki eins á morgun. Þar eru fjöll með undarlegri lög- un, sem minna ekki á nein önnur í veröldinni, og skriðjöklar svo voldugir, að skriðjöklarnir okkar í Noregi verða — bornir samati við þá — eins og smábörn við hliðina á fullorðnu fólki. Skógur og hraun. Og sljetturnar, tíu — tuttugu, ef til vill hundrað sinnum stærri en hjá okkur. Þessar óendanlegu stærðir — og svo andstæður hlið við hlið. Skeiðarárjökull með brennisteinsfýluna úr ánni og hinn yndislegi Bæjarstaðaskógur þar hjá; skógur, sem jafnvel jeg, — norskur Norðmaður frá Noregi — verð að játa að er skógur. Skógur sem varla á sinn líka, með græna grasábreiðu með rauðu og hláu blómagliti. Alstaðar líf og tilbreyt ing. Sandar og hraun eru engan veginn dauð svæði. Mjer dettur Kjarval í hug, þessi stóri íslenski gígur, sem hraunmyndir streyma frá í allar áttir. Maður þarf ekki að hafa sjeð margar hraunmynd- ir hans, til þess að sjá að dauðinn getur einnig orðið miðdepill lífs- ins og gefur líf í litum^ smágert gróandi líf þegar hraunið fer að gróa upp aftur. Þegar jeg sá hin tiltölulega ungu gróandi hraun datt mjer í hug þess hending eftir Björnstjerne Björnsson: „Opstandelsens morgen ditt mindste er givet, — kun former gár tapt“. Og alstaðar, við land og sjó, frá fjöru til fjalls sá jeg þetta hríf- andi líf í lofti og á láði, fallegu jslenskn fuglana, sem svo margir Norðmenn þekkja og halda upp á eftir að hafa kynst þeim á mál- verkasýningum Höskuldar Björns- sonar í Noregi. Gunnar og Grettir. Jeg hefir sjeð ísland í góðu og vondu veðri, í skínandi sól, í þoku og rigningu. Jeg skil glansmynd Gunnars á Hlíðarenda og hina frægu setningu hans: „Fögur er hlíðin, svo að mjer hefir hún aldrei jöfnfögur sýnst, bleikir akrar en slegin tún og mun jeg heim ríða og hvergi fara“. En jeg skil einnig hinn merkilega útlaga Gretti — og mjer finst hann 'tilkomumeiri þar sem drungaleg myrkfælnin berst við hans karlmannlega góða skap. En maður getur haft inikla ánægju af að ferðast í Palestínu þó maður hafi ekki heyrt Krist nefndan. Og maður getur það einn- ig á íslandi, án þess að þekkja hið minsta til Islendingasagna og and- legs lífs á íslandi í fornri tíð — sem var þó æðst í álfunni. En hvílíkur „plús“ er það ekki, sem bætis't- við, þegar nútíð er tengd við fortíð og menn finna vængja- þyt sögunnar. Tveir fylgdarmenn. En það var ferðin til Öræfa sem jeg ætlaði að þakka fyrir. Jeg veit að henni gleymi jeg aldrei hve gamall sem jeg verð. Ólafur Lárusson prófessor sagði við mig áður en jeg lagði á stað: „Núps- vötn og Skeiðará eru hættulegustu jökulár landsins, en þó hefir aldrei heyrst að menn hafi farist þar. Hrifning mín af Hannesí Jónssyni á Núpstað og Oddi Magnússyni á Skaftafelli er takmarkalaus. Hvern ig' þeir fóru að því að finna leið yfir þessi erfiðu jökulstraumvötn er aðdáunarvert. Sjá út dýpi, kom- ast hjá sandbleytum, já blátt á- fram það að sjá út vöð sem fær muni vera, gengur nær því yfir skilning ókunnugs ferðamanns, sem sýnist alt vera ófært. Þeir og hestarnir Jieirra virðast vera eitt. Og þegar jeg heyrði að hvorugur þeirra væri syndur varð aðdáun mín og traust til þeirra enn meiri. En samt fanst mjer mjög spenn- andi að fara yfir Niipsvötnin, en þó einkum að ríða Skeiðará, sem þeir fyrstu sem fóru yfir hana eftir hlaupið í vor. Jeg var tölu- vert hugsandi, yfir hvort mig mundi svima í vötnunum, eins og svo marga sem ríða straumvötn og þrátt fyrir aðvaranir horfði jeg stundum niður í strauminn, en þegar hestarnir fóru að fara til hliðar á móti strauininum og mjer fanst vatnið renna í öfuga átt, þá skildi jeg að best væri að líta upp og horfa á „fasta“ punktinn, okk- ar góðu fylgdarmenn, Hannes eða Odd og þar með var allur svimi horfinn. Já, Hannes og Oddur — hvers vegna látið þið íslendingar ekki kvikmynda þessa tvo ágætu leið- sögumenn við starf sitt, á liest- baki í þessum erfiðustu stranm- vötnum landsins? Einsdæmi hverc sem leitað væri. Hvílík ferða- mannalýsing! En ísland sem ferða- mannaland, og alt í sambandi við það er kafli sem jeg hleyp yfir hjer. Ingólfshöfði hvarf. Og svo það að ríða yfir vatn, 6—7 kílómetra, eins og frá Fag- urhólsmýri að Ingólfshöfða, það þykir svo ólíklegt hjer að jeg fæ ekki aðra til að trúa því en þá sem eitthvað þekkja til íslenskra staðhátta. Og loftspeglanirnar — tíbráin — þegar Ingólfshöfði hvarf alt í einu fyrir okkur á Skeiðarársandi og annað landslag birtist okkur í hans stað. Eða þegar við stóðum á Hjör- leifshöfða og sáum að bíllinn, sem við höfðum skilið eftir á sandin- um fyrir neðan, var umflotinn af vatni rjett eins og Katla gamla hefði hlaupið lítinn sprett á meðan við skoðuðum eyðibýlið. Yfir þessum loftspeglunum var blær hins yfirnáttúrlega, það gat nærri því eins verið hugarflug eða draumórar. En þegar hesturinn brejdir um gang, finn jeg því mið- ur sárt til að jeg er í veruleikans heimi — eftir 11 tíma ferð á hesti yfir Skeiðarársand — frá Núps- stað að Skaftafelli og fótgöngu yfir jökulinn. Ferðamaður, óvan- ur hestum fær sína hegningu fyrir það — og það er alveg rjett sem þú sagðir, að slíkrar ferðar gæti maður ekki einungis óskað sínum

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.