Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1939, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1939, Page 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 383 Gestur í Skálavík. Fjaðrafok. (Siðasti róðurinn) Hafði varpað vetrarklæðum viusæl Harpa. í nýrri mynd sá hún garp í sjómannsklæðum sigla snarpan hliðar-vind. Hvert ’ann stefnir? Veginn vísa vindar gefnir. Hvað um það? Hver vill nefna hátt og lýsa höfn, á efnislausum stað? Órótt hjarta og Unnardætur elda margt við gleðileik. Hljóðar skarta heitar nætur. Hafið bjarta tendrar kveik. Oftast fór hann einn á báti út, með beitu, krók og vað. Engra var hann eftirmáti, — átti í eátri næturstað. Einrænn þótti ýmsum Gestur. Einn á þóftu, stýri við, hann bað og sókti í bænalestur bæði þrótt og sálarfrið. Höfðinglegur, hár í sessi, hafði eigin veðurspá. Guði treysti og Unnar-essi, — aldrei vjek þeim háttum frá. Margir enn þeim mætti trúa, — mjög þó fenni’ í spor þau nú. Þá var menning malarbúa: minni kenning, stærri trú. Vindur blæs af ýmsum áttum, öldur mylur tjörguð súð. Ferjan litla full af dráttum. Fengsælt er á blárri Úð. Færið hankað, búin beita, blandan þrotin, lúin hönd. Bárur upp að borði leita. —* Breytileg er Skálaströnd. björtu eyjar, með þeirri von að fáni hennar megi altaf svífa yfir frjálsri þjóð sem nýtur heiðurs fortíðarinnar —• og sem finnur til ábyrgðar nútíðarinnar vegna þess takmarks sem framtíðin ber í skauti sínu. Sven Brun. Stjórafærið upp er undið, árin skorðuð, bundin kló. „Eg er vanur að sigla inn sundið“. Sæll í kampinn Gestur hló. Bátur lítill, besta fleyta, báru hverja að toppi kleyf. Vinnustælta höndin heita hafði vald á stýrissveif. Hálsuð bára hneig af saxíi. Hrannar tár í augum sveið. Ýfist hár í öldu faxi. — Unnar-márinn flaug af leið. Gesti þótti Vinur velta. Völinn fastar þrýsti greip. Nokkuð mikil sjávar selta sýður og freyðir yfir keip. Illa lætur strauma stóðið. Stormur tætir skektuflík. Hvað þá? - Grætur fagra fljóðið? — Fymum sæta undur slík. — Sofna vorsins vindar svalir, vermir sólin hverja flík. Bundinn Gest við bitafjalir börnin fundu, í Skálavík. Flækst ’ann hafði í færi sínu, fyrir bragðið kominn var. Áður dró hann á þá línu afla sinn úr grunnamar. Brotinn kjölur, klofnar súðir: — Kvakar fugl og lyftir væng: Hálar eru flæðiflúðir. — Furðu rótt í þarasæng. Nii er Gestur fiskafælir; framar sjest á róðrum töf. Ugla sest á sand og vælir. Signir prestur moldargröf. Helgi Björnsson. í Adriahafinu veiddist nýlega háfur, sem vóg 3000 kíló. 100 menn unnu að því í þrjár klukku stundir að koma honum á land. ★ — Veistu hvað átt er við með gulu hættUnni? — Já( spanskreyrinni) herra kennari { Uppeldishæfileikar konunnar koma snemma í Ijós, segir danskt blað og birtir eftirfarándi sögu því til sönnunar: I strætisvagni sat maður með sárabindi um aðra hendina. Lítil telpa 4—5 ára sat í vagninum með móður sinni. Hún horfði lengi á manninn með sárabindið og sagði svo við hann: — Hefir þú meitt þig í hend- inni? — Já. — Kendi þig til? — Já. — Fórstu að gráta? — Nei. Þögn. — Litla stúlkan horfði með sýnilegum áhuga á hinn meidda mann, þar til móðir henn- ar tók í hendina á henni til að fara út úr strætisvagninum. Um leið og telpan fór út sagði hún við manninn: — Mundu nú eftir því að fikta ekki við sárið eða rífa ofan af því, því þá grær það aldrei al- mennilega. ★ ítalskur sendiherra, Daniele Varé, sem fyrir nokkrum árum var sendiherra í Kaupmannahöfn, hefir nýlega ritað æfisögu sína. Þar segir hann meðal annars frá því, að Kristján konungur X. hafi að jafnaði dagblað innan undir einkennisbúningi sínum, bæði á brjósti og baki, er hann fari i sína frægu reiðtúra á morgnana um Kaupmannahöfn. Þetta, segir ít- alinn, gerir konungur til að verj- ast kulda. Hann hefir þá nokkur not af blöðunum, bætir danskt blað við, sem. segir frá þessu. ★ Níræð kona í "Worthing í Eug- landi var nýlega kölluð fyrir rjett vegna þess að hún hafði gleymt að draga fyrir stofugluggann sinn að kvöldi dags. En vegna loftárásahættu er öllum skylt að gæta þess, að hvergi sjáist Ijós- glæta að kvöldlagi. Gamla konan afsakaði sig með því að hún hefði haldið að stríðið væri búið.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.