Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1940, Side 1

Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1940, Side 1
JVtorðttnMajfaráð 51. tölublað. Gamlársdag 31. desember 1940. XV. árgangur. Kristleifur Porsteinssorr. Páll Jakob Blöndal hjeraðslæknir í Sfafholfsey 100 ára minning. Fæddur 21. desember 1840. rjá síðustu áratugi 19. aldar var Páll Blöndal einn ai' allra glæsilegustu hjeraðsböfðingj- um í Borgarfirði. Er því ástæða til þess að minnast lians á þessu aldarafmæli. Þar sem jeg er einn af þeim fáu mönnum, sem enn eru á lífi, er var gagnkunnur þessum stórmerka manni, kemur það í minn hlut að gera nokkra grein fyrir uppruna íiaus, ætt- mennuni og æfiatriðum. Foreldrar Páls voru Björn sýslu- maður Auðunsson í Hvammi í Vatnsdal og kona hans, Guðrún Þórðardóttir, kaupmanns á Akur- eyri, Helgasonar, en móðir Guð- rúnar var Oddný, dóttir Ólafs frá Vindhæli og Guðrúnar Guðmunds- dóttur Skagakóngs í Höfnum. For eldrar Björns sýslumanns voru síra Auðunn Jónsson, prestur í Blöndudalshólum (frá 1782—1807) og kona hans, Halldóra Jónsdótt- ir, prests á Auðkúlu Björnssonar, en móðir Halldóru og kona síra Jóns á Auðkúlu, var Halldóra Árnadóttir í Bólstaðarhlíð Þor- steinssonar sýslumanns s. st., Benediktssonar s. st. og svo fram- vegis, beinan karllegg til Jóns biskups Arasonar. Með Birni sýslu- manni Auðunssyni hefst Blöndals- Páll Jakob Blöndal. nafnið, sem fylgt hefir ættinni síðan. Er það dregið af bæjar- nafninu Blöndudalshólar. I valdatíð Björns sýslumanns var víða sökótt hjer á landi, en þó hvergi eins og í Húnavatns- sýslu. Var liann talinn bæði rjett- látt og skörulegt yfirvald, þegar til hans kasta kom í rannsókn saka mála. Voru þá enn í gildi hin hörðu refsiákvæði, sem hann, eins og önnur yfirvöld varð þá að byggja dóma sína á. Kom það á hans herðar að uppkveða hinn síðasta líflátsdóm, sem fullnægt hefir ver- Elín Guðrún Blöndal. ið lijer á landi, yfir Friðrik og Agnesi, og vera sjónarvottur að hinni átakanlegu athöfn, er dómn- um var fullnægt. Hefir sú harm- saga brent sig inn í meðvitund þjóðarinnar fram á síðustu ár, þó nú sjeu liðin 110 ár frá því hún skeði. í nafni embættisins varð Björn sýslumaður að leggja á sig þessa ógleymanlegu þolraun. Björn sýslumaður var meðal þjóðkunnustu valdsmanna á fyrri hluta 19. aldar og heimili hans talið eitt af höfuðbólum í Húna- vatnssýslu. Bújörðin kostarík í bú-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.